Pressan


Pressan - 19.05.1993, Qupperneq 15

Pressan - 19.05.1993, Qupperneq 15
BOSSANOVA Miövikudagurinn 19. maí 1993 PRESSAN 15 Heillaðist af saxófóninum á kirkjutónleikum ViQ mælum með ...fleiri kvennasalernum á vertshúsin. Það er í raun ótœk hugsanavilla að þau skuli ekki verafleiri en karlaklósettin. .. .símum á kvennasalemin svo hægt sé að vera þar örlítið leng- ur. .. .að ofsóknum gegn Hrefrium linni. Þœr eru þegar í útrýming- arhœttu samkvæmtþjóðskránni. ...Óla Haralds og kokkerínu hans Cancún. Að tala tungum í ástarsamböndum. Segja eitt og meina annað. Það er í sjálfu sér ekki inni; það sem er inni er að geta séð í gegnum tungutakið. Reyndar er það með ólíkindum hve margir karlntenn tala einkennilegt tungumál þegar þeir eru að kljást við að tjá tilfinningar sínar. Svo dænii séu tekin. Hann segir: „Ég er þreytt- ur á stefhumótum.“ Hann á við: „Ég er tilbúinn í ástarsamband.“ Láti hann þessa setningu frá sér: „Þú ert ofgóð fyrir mig,“ meinar hann: „Ég er búinn að halda nokkrum sinnum framhjá þér.“ Láti hann sig dreyma um framtíðina í þriðja sinn sem þú stingur upp á því að fara á Homið orðar hann drauminn svona: „Ég sé okkur fyrir mér spikfitna af pasta- áti,“ meinar hann: „Ég ekka líka ítalskan mat; með öðmm orðum eigum við ekki að fitna og eldast saman.“ Segist hann hins vegar ekki ætla að gifta sig meinar hann það. Láti hann einhvem tíma út úr sér setninguna „Ég hef aldrei verið ást- fanginn,“ meinar hann, ef hann er um tvítugt: „Ég hef aldrei orðið ást- fánginn áður, er ástin þá svona?" Um þrítugt: „Ég hélt að ég hefði áð- ur orðið ástfanginn. Þessi ást er miklu sterkari." Sé hann um fertugt á hann við: „Ég er tilfinningalega brenglaður.“ Að finnast Júróvisjón hallærislegasta glamúrkeppni í heimi en horfá samt á hana. Að vera reiður yfir gengi ís- lenska lagsins, af hvetju var það ekki ofar, yfir hvelvítis Idíkunni, en finn- ast keppnin samt yfirmáta púkó. Það er inni að vera hallærislegur og púkó af heilindum; líkt og Júróvi- sjón er, Sniglabandið eða jafhvel Davíð Oddsson og outfittið. Þetta em allt fyrirbæri sem hafa gaman af því að vera púkó. Sá sem er sifellt að bölva því sem er púkó er í raun sá hinn sami og er yfirfúllur af áhuga á því sem er hallærislegt. Það gefur augaleið að þeir sem bölva því, sem haUærislegt er, em úti. Þeir sem em hins vegar hallærislegir ffá rótum em inni, líkt og Siggi hor í gaggó semerennþámeð hor kominn á fertugsaldur- inn. Meilcaða konan í mið- bænum og allir hinir eða hitt sem staðnaði á álcveðnum ráðs, var þar einnig að ógleymdum framtíðarmann- inum Atla Bergmann. Þeir sem voru ekki heima hjá en létu sjálfsagt taka hana upp á myndband fyrir sig—voru útskriftarhópurinn úr Mynd- listar- og handíðaskóla íslands og Egjll Helgason. Allt þetta gengi hafði það hins vegar þokkalegt á Sólon Islandus. 22 er augljóslega staður þeirra sem þykir sopinn góður, hvort sem hann er í formi kjafta- sagna, vatns eða víns. Þama voru saman komnir nokkrir úr hópi káta gengisins úr Hafrtar- firði, þar á meðal Limbódreng- urinn Davíð Þór Jónsson guð- fræðinemi og Jakob Grétars- son, sem er alltaf fremur hátt uppi. Hærra uppi en hann var þó Heimir Már Pétursson, fféttamaður á Stöð 2. Af kven- kyns Hafrifirðingum á 22 sást til ferða StefaníuÆgisdóttur, menntaskólakennara og til- vonandi fræðimanns, ásamt andlegri systur sinni, Sif Ein- arsdóttur, sem eLmig er til- vonandi fræðimaður og menntaskólakennari. Hún er reyndar Kópavogsmær. Gellumar Sonja Scott, ísól Karlsdóttir og Kristbjörg sóttu Bíóbarinn á laugar- dagskvöldið. Sagnffæðingamir Hörður Amarsson og Sverrir Jakobsson sáust bæði kvöldin á bamum en einnig brá þar fyrir Sigurgeiri Orra Sigur- geirssyni, skáldi og fræði- manni. Talandi um skáld og ffæðimenn þá vantaði ekki fr emur en endranær þau Lindu Vilhjálmsdóttur og Mörð Ámason. Þar vom einn- ig Borgfirðingamir og gleði- gjafamir Sigríður í Fönn og Hrafrdiildur. Meðal fjölmiðla- manna vom blaðamennimir Ari Sigvaldason og Pálmi Jón- asson, sem varð aldarfjórð- ungsgamall á laugardag, Popp og kók-maðurinn Láms Hall- dórsson, Sigursteinn Másson ogEiríkur Jónsson. Þama mátti einnig sjá Sturlu- dóttur, Amar Jónsson í SUS, Margréti Jónasdóttur háskólamær, Heimi Hansson í Penslinum á Isáfirði, Ólöfu Guðmunds- dóttur, Flosa Eiríksson, tré- smið og sagnffæðinema, Helga Hjörvar og Unnar frá Svína- dal. Fjölmenni drakk i sig menn- ingarloftið á Tunglinu um helgina. Inn litu meðal annarra Andri Már Ingólfsson, Dóra Takefusa, fyrirsætumar Brynja Valdis og Thelma Guðmundsdóttir, Sæmundur Norðfjörð, Kjartan Magnús- son, formaður Heimdallar, og urmusta hans, Brynja Skúla- dóttir, Guðlaugur Þórðarson, formaður SUS, og hans ffú, Ingibjörg Kaldalóns. 5 við- skiptaerindum var Philip Cra- ig, forstjóri Jim Beam Intema- tíonal, ásamt umboðsmönn- um þess hérlendis, þeim Birni og Þóri. Bjöggi Thor leit inn sem og Styrmir Bragason skífuþeytari og Þorsteinn Sig- urlaugsson einkabílstjóri. Það rifjaðist uppfyrir mér um daginn afhverju égvau hœttur að elta kvenfq Það kom ein ný á barinn um helg- ina, engin ungfrú' fótleggir, en svoncð straufín oggæðaleg. Hún negldi mig meðþvt\ að bjóða mér í glas, en svt sagðisthún hafa týntvísa' kortinu sínu. Þaðan varð ekki aftur snúið: enda- lausir leigubílar og svo þurftu vinkon- umar sitt. Það er eins gott að maður á hvergi heima. Éghefði ekki áttfyr- ir bílnum heim. tímapuntld og ætlar ekki upp úr hjólförunum. Það er halló og inni. Djassarar verða glaðir nœstu vikurþví nú erRÚ- REK-djasshátíðin aðfara afstað á ný. Þekkt núm- er, innlend sem erlend, verða á efnisskránni en einn dagskrárliður vekur þó eftirtekt umfram aðra: Barnadjass. Jón Grétar Gissurarson er eittþessara barna, og munfara á kostum á saxanum sínum ásamtfélögum sínum í Bossanova-band. Jón Grétar er ellefu ára og hefiir lært á hljóðfærið í þrjá vetur. Upp- haflega var hann ákveðinn í að læra trommuleik en hætti við öll slík áform þegar mamma hans benti honum á hávaðann sem af því hlytíst. Skiljanlega. „Ég byrjaði að æfa á blokkflautu þegar ég var átta ára og effir nokkur ár var tími tíl kominn að finna sér annað hljóðfæri. Á kirkjutónleikum hlustaði ég svo á saxófónleik og heill- aðist af hljóðfærinu. Upp ffá því ákvað ég að læra á saxófón og sé ekki eftir því,“ segir tónlistarmaðurinn ungi og bætir við að það sé ekkert erfitt að ráða við svona stórt hljóðfæri. Bossanova-band einbeitir sér aðallega að suður-amerískum lögum, en á djasshátíðinni ffum- flytja drengirnir tónverk eft- ir Lárus Grímsson sem er sérstaklega samið fyrir þá. Jón Grétar segir lagið fallegt og ein- ungis einn kaflinn sé erfiður. En djasshá- tíðin er ekki eini vett- vangurinn fyrir tónlist drengjanna og fara þeir víða til að skemmta áhorfendum. Vill annríkið þá stundum verða mikið, sérstaklega hjá þeim sem einnig koma fram með lúðrasveitinni. En er þá tími aflögu fyrir önnur áhugamál? „Já, já, það er svo margt hægt að gera,“ segir Jón Grétar. „Það er til dæmis voðalega gaman að fara í hjól- reiðatúra og spila körfubolta, þótt ég æfi hann nú ekki sér- staklega. Ég saftia líka körfu- boltamyndum og á núna 376 slíkar.“ JÓN GRÉTAR GISSURARSON er elÞ efu ára saxófónleik- arí í Bossanova- band, sem kemur fram á tónlelkum RÚREK- djasshátíö- arinnar. Skemmtilega hallærislegir að vanda Sniglabandið hefur með reglulegu millibili sent frá sér afar hallærisleg lög, svo vægt sé til orða tekið. Eitt slíkt er auðvit- að aðfinna á nýjustu plötu Sniglabandsins sem ber nafnið.. .þetta stóra svarta. Lagið er reyndar svo skemmtí- lega hallærislegt að það hefur þegar yfirstigið flestar torfærur hins íslenska vinsældalista. Á nál- um heitir umrætt lag og er ekki sungið með fagurri röddu Skúla Gautasonar heldur blökku- mannsröddu Björgvins Ploder. „Lagið samdi Pálmi Sigurhjartar- son á Öxnadalsheiðinni þegar við vorum á leið til Akureyrar. Allt í einu gerðist hann hljóður og ein- rænn. Þegar við renndum inn á Akureyri var lagið komið,“ sgir Skúli Gauta og rifjar í rólegheit- unum upp öll hallærislegu lögin sem Sniglabandið hefur sent ffá sér. „Síðast var það Wild Thing, en áður kom út í okkar útsetn- ingu Úti er alltaf að snjóa. Gunnakafifi var með eindæmum hallærislegt að ekki sé talað um Jólahjól, sem raunar er geysilega gott lag. Það er ótrúlega gott lag,“ segir Skúli stoltur, enda á hann sjálfur heiðurinn af laginu. Nýju plötuna segir Skúli í öll- um stíltegundum í heiminum, svona eins og Sniglabandsins sé von og vísa. „Platan er tileinkuð öllum í heiminum. .. .þetta stóra svarta fetar þó þetta hárfina ein- stigi milli þess að vera fjölbreytt og sundurlaus." Upp úr hvaða jarðvegi er Á nálum sprottið? „Þetta er svona Motown-lag. Pálmi var eitthvað að hugsa um Motown og blökkumenn og sauð alla þessa frasa saman í eitt lag. Textinn er hins vegar afrakstur hópeflis.“ Ér eitthvað skemmtilegt ffam- undan hjá Sniglabandinu? „Við erum auðvitað bókaðir á sveitaböllin út sumarið og förum svo til Danmerkur í lok ágúst til að spila á gríðarlega mikilli mót- orhjólasamkundu. Við höfum þegar farið þangað tvisvar til að spila í partíum hjá Hells Angels og fleirum. Þeir vildu enga aðra en uppáhaldshljómsveitina sína til að spila fyrir sig! Meginástæð- an fyrir ferðinni til Danmerkur er þó til að mótmæla EB-samþykkt- um. Það stendur nefnilega til að gelda mótorhjólin." ÁCafe Parísí vikunni — um miðjan dag— sásttil ferða Lindu Pétursdóttur og langa mannsins með stutta naffiið, Les. Þar sötruðu líkakaffið sitt Krist- jánHrafris- son og Mel- korka Tekla Ólafsdóttir. Á Sólon íslandus var hins vegar Ása Richardsdóttir, fyrr- um sjónvarpskona, ásamt litl- um en þó ekki alveg nýfædd- um erfingja. StefaníaTrausta- dóttir, starfsmaður jafhréttis-

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.