Pressan - 19.05.1993, Blaðsíða 27
A F PETA L A N U M
Miðvikudagurinn 19. maí 1993
\ -
PRESSAN 27
Krans Tannhjólin að aftan. Flest
af Shlmano- eða Suntour-gerð.
Ættu að hafa Hyper Gllde sem
gerir það að verkum að keðjan
fer á milli á 1/5 úr snúningi í
stað hálfs eða heils hrings áður.
Tryggir mýkri skiptingu og létt-
ari, til dæmis í brekkum.
HNAKKUR Sætið hefur lítið
breyst. Hægt að fá kven-
hnakka sem eru breiðari og
með gel-púðum. Mismunandi
þyngd til fyrir þá sem kepi
BREMSUR Átaksbremsur eða gaffalbrems-
ur; tvö orð yfir sama hlutinn. Vængja-
bremsur festar á gaffalinn í staðinn fyrir
stellið. Eru kraftmeiri fyrir vikið. Þrýsta
beint inn í gjörðina.
STELL Rest eru í dag úr chromoly-
léttmáimi. Einnig er hægt að fá
þau úr stáli og svo léttari úr áli.
Sum stell eru samsett úr fleiri en
einni málmtegund.
GÍRSKIPTINGAR Eru af sömu gerð og
kransinn, þ.e. Shimano eða Suntour.
Shimano á 93% af markaðnum.
Gjarðir og NÖF Nauðsynlegt að hafa
hvort tveggja úr áli vegna endingar.
Það er næstum því lífsspursmál að hafa
gjarðirnar úr áli vegna þess að í rign-
ingu taka bremsurnar í og stoppa farar-
tækið ólíkt því ef gjörðin er krómuð og
bremsað er i bleytu; þá er næsta víst
að þú stoppir ekki fyrr en eitthvað
stoppar þig, svo sem bíll eða veggur.
þægilegust eru svo-
kölluð alhliða eða
heilsársdekk, sem
hvorki eru of gróf
fyrir borgarumferð
vegna viðnáms við
malbik né þannig
aö þú veröir ósjálf-
bjarga þótt þú lend-
ir í smámöl.
DEKK Mismunandi
geröir eru til en
Keðja Hefur lítiö breyst, en þó
mjókkað vegna fjölgírakerfis-
ins. Ávallt vel smurð.
LEGUR Þetta eru viökvæmustu
partar reiðhjólsins. Vegna veðr-
áttu hér á landi er nauðsynlegt að
hafa gúmmíþéttingar og vatns-
vörn á öllum hiutum.
Frumskógur fótstigsins
POPP
• Space nam Spiff og Passlve
Agressive eru ekki mjög gamlar
hljómsveitir. Þær verða á út-
gáfutónleikum í Tunglinu í kvöld
undir tónstjórn Grétars. Bryndfs
Einarsdóttir tekur nokkur létt og
nett dansspor aö hætti flóð-
hestsins.
• Sigtryggur dyravörður er
einskonar pöbbaband. Þaö
veröur á Gauk á Stöng.
• Kokkteilpinnarnir eru þeir
Hjörtur Howser og Atli Geir
Grétarsson. Þeir bera svo sann-
arlega nafn meö rentu. Nillabar-
inn bíöur þeirra.
• Pelican kemur fram á Tveim-
ur vinum í kvöld. Margir voru
víst mjög hrifnir af gömlu mönn-
unum er þeir komu fram á jóm-
frúartónleikunum sínum á
Gauki á Stöng í síöustu viku.
• Kúba líbra án Rúnars Júlíus-
sonar en ágætt engu aö síöur.
Á Blúsbarnum.
• West Side Story, Cats og
fleiri söngleikjum veröa gerö
skil á stórskemmtun meö söng-
smiöjunni á Hótel Islandi. Yfir
eitt hundraö manns koma fram
á þessari stóru skemmtun.
Flytjendur eru nemendur Söng-
smiöjunnar, kór íslandsbanka
og aörir. Stjórnandi er Ester
Helga Guðmundsdóttir. Aöeins
ein sýning.
• Sýn treöur upp á Rauöa Ijón-
inu. Þeir bregöa sér f hlutverk
stórpoppara og þrykkja sér í
gegnum slagarana. Alhliöa
grúppa semsagt.
• Lifandi tónlist á Fógetanum.
Ekkert er lengur einfalt.
Einu sinni þurfti maður bara
að fara út í mjólkurbúð til að
kaupa mjólk. Núna þarf mað-
ur að flækjast inn í stórmark-
að og týnast í leit að mjólkur-
kælinum. Að kaupa mjólk er
orðið vandamál, nýr frum-
skógur, og þú getur líka ratað
inn í frumskóg ef þú vilt
kaupa reiðhjól og veist ekki að
hverju þú leitar. Þróunin er
þvílík í reiðhjólum að stund-
um er varla þorandi að kaupa
hjól því það gæti orðið úrelt
stuttu seinna. En eins og í öll-
um frumskógum leynist hér
lítill tarsan. Og hér kemur
kortið og útskýringin sem ger-
ir þig meira en mellufæran
þegar að því kemur að kaupa
framtiðarreiðhjólið.
Eljólafrumskógurinn er
ekki svo agalegur, fljótt á litið,
en eins og í svo mörgu öðru er
stutt í öfgarnar. Það er talað
um þá sem hafa tekið létta-
sóttina. Baráttan við að létta
hjólið sem mest kostar líka
mest. Venjuleg stálhjól vega
um 14 kíló; fúllbúin chro-
moly-hjól vega 12-13 kg og
léttustu hjólin eru úr áli og
vega 11-12 kíló. Þegar komið
er í þann þyngdarflokk má
segja að hvert gramm sem
hjólið léttist um eftir 11 kíló sé
þyngdar sinnar virði í gulli. Til
eru gjarðir sem kosta 250.000
krónur stykkið — parið er
jafnvirði nýrrar Lödu. Dýrasta
reiðhjól landsins nálgast í
verði 350.000 krónur.
Til að hjólin kljúfi vind bet-
ur er svo farið að hanna spor-
öskjulagaða teina og til eru
stell sem líka eru hönnuð í
þeim tilgangi. Einnig er byrjað
að nota títaníummálm svo og
karbofiber, svona rétt til að
hafa hjólin sem léttust. Létt-
ustu hjólin vega um 7 kíló, en
ekki er hægt að búast við að
dekkin endist meira en 25
kílómetra.
Með tilkomu fjallahjólsins
hafa vinsældir reiðhjólsins
rokið upp. Samt sem áður
virðist það enn vera mikið
mál að ferðast um á reiðhjól-
um þótt fólk víli ekki fyrir sér
að tæta upp í fjöll méð skíðin
og renna sér niður brekkur sér
til heilsubótar. Það er léttara
að gera reiðhjólið að parti af
daglegu lífi og heilsubót en
margan grunar; eina sem þarf
er að stökkva á bak og þeysa á
brott.
Það sem helst ber að hafa í
huga þegar fjárfest er í nýju
hjóli er að það hafi álgjarðir,
átaksbremsur, hyperglide og
góðar þéttingar á öllum leg-
um.
• Sniglabandiö, Tregasveitin,
Bobby Harrison, Páll Rósin-
kranz og fleiri efna til blúspartís
á Tveimur vinum í kvöld. Til-
gangurinn er aö safna fyrir ferð
fyrir Vini Dóra, sem ætla á fest-
íval í Chicago 30. maí. Allir
hvattir til aö mæta svo öruggt
sé aö viö losnum viö Vini Dóra
úr landi.
• Dos Pilas, Bone China og
SSSpan, þó ekki Síöan skein
sól og Panhópurinn, á Tunglinu
í kvöld. Aö auki veröur þar
tískusýning.
• Sú Ellen er aö ströggla viö
frumsamiö efni en endar líklega
í koverversjónum eins og flestir
hinir. Ágætt engu aö síöur og
veröur á Gauki á Stöng.
• Kúba líbra og allir hinir hrist-
ingarnir á Blúsbarnum.
• Amina hin seiömagnaöa
heldur tónleika á Hótel íslandi.
KK hitar upp.
• Forboöin sæla, Yucatán,
Niöur, Tjalz Gissur, T-World,
Burn, Professor Finger, Still-
uppsteypa, Curver, Bílllnn og
Reptilicus halda rokkveislu á
Tunglinu í kvöld.
• Sú Ellen heldur áfram að
ströggla viö þaö ómögulega á
Gauk á Stöng.
• GCD tekur Hafnfirðinga meö
trompi í Firðinum. Það er ein-
mitt um þessa helgi sem stór-
sýningin í Krikanum hefst.
• Bogomil Font og hinir illarnir
verða á Hressó eftir aö hafa
leikið fyrir matargesti Ömmu
Lú. Sagt er aö Fonturinn kalli
fram skjálftabylgjur í hnjáliöum
íslenskra kvenna meö augna-
ráöinu einu saman. Hvaö sem
því liöur er garöurinn á Hressó
farinn að taka við sér og fugl-
arnir aö syngja í hugum gesta
Ömmu Lú.
• Þórarinn Gíslason kráarpían-
isti reytir af sér lögin á Djass í
Ármúlanum. Hann hefur víst
ótrúlegt lagaminni.
• Stjórnln er ekki alveg af baki
dottin. Hún leikur í besta tón-
listarhúsinu í bænum; á Tveim-
ur vinum, þar sem fólk hangir
enn í Ijósakrónum.
• Verölr laganna mínus löggu-
búnlngar. Skvetta úr brunni tón-
listarinnar á Rauöa Ijóninu.
• Amina á Hótel íslandi. Tón-
POPP
Garðyrkjumenn á mótorhjólum
SNIGLABANDIÐ
ÞETTA STÓRA SVARTA
SLÍM HF./JAPIS
★★
Sniglarnir eru ballhljóm-
sveit og engar refjar. Þeir bera
með sér gust töffaraskaparins
þegar þeir mæta leðurklæddir
á sveitaböllin. Á þeim rúnti
hafa þeir hjakkað undanfarin
ár og lítið látið taka til sín á
hljómplötumarkaðnum —
einna helst slógu þeir í gegn á
jólamarkaðnum um árið þeg-
ar Stebbi Hilmars söng með
þeim. Síðast gáfu þeir út
ágæta tónleikaplötu sem
sýndi þá á heimaslóðum, á
balli á Gauknum, en nú eru
þeir mættir með sína fyrstu
„alvöru“ plötu.
Á böllum hefur Snigla-
bandið jafnan leitað fanga
víða, spilað „allt“, og þegar
kom að gerð „Þessa stóra
svarta“ tóku þeir þann pól í
hæðina að láta flest fljóta með
og vera ekkert að hafa fyrir
því að koma sér upp eigin stíl.
Fyrir bragðið er platan óheil-
steypt og ómarkviss, en um
leið nokk skemmtilega fjöl-
breytt.
Sniglarnir hafa ágætan
húmor, sem reyndar verður
stundum fúllbyggingarvinnu-
legur. Húmorinn kemst
ágætlega til skila og það er
vissulega skondið að heyra
lögreglukórinn baula
„Brennivín er bull“ í upphafi
plötunnar. „Geðræn sveifla“
kemur næst, íslensk sérsveifla
í ætt við Júpíters, nema
óírumlegri, og textinn þunn-
ur. „I góðu skapi“ er ágætt
popp-ska í anda Madness
með sniðugri upprifjun á æv-
intýrum Sniglabandsins í
Rússlandi. „Éttu úldinn
hund“ er hammond-popp í
nýdönskum stíl, textinn til-
valinn fýrir þá sem þola ekki
kerlinguna sína. Kannski það
sé leðrið, en hefimetalið hefúr
loðað við Sniglana. Samt er
„... gooott!“ eina þungarokk-
ið á plötunni, þokkaleg laga-
smíð, poppuð upp með
lúðraleik. Sniglabandið virðist
hafa slegið í gegn með laginu
„Á nálum“, enda er þar tjald-
að öllu tiltæku; bæði lúðrum
og ágætu sál-söngkvenna-
tríói, og lagið þetta fína og
grípandi Motown-sálarpopp.
Það er eins og Hálft í hvoru sé
mætt í næsta lagi, hinu rólega
„Blæs“, sem státar af texta eft-
ir Þórarin Eldjárn. „Hægða-
tregðublús“ var hljóðritaður
„lífs“ á heimaslóðum drengj-
anna, Gauk á Stöng, og er
heldur þreytulegur blús með
hægðarembingi fyrir texta —
leiðinlegasta lag plötunnar, en
þeim hefur væntanlega fúnd-
ist þetta rosafyndið strákun-
um og viljað hafa það með.
„Engin miskunn“ er önnur
þreytuleg tónsmíð. Einkar
lúðalegt lag, óaðlaðandi og
gamaldags — gæti allteins
hafa komið út með Módel í
denn. Sniglar semja flest efni
plötunnar (Kári „Islandsvin-
ur“ Waage á tvo og hálfan
texta og Þórarinn Eldjárn
einn, eins og áður er nefnt),
en Magnús Þór Sigmundsson
semur lokalagið, „Hvern
dreymir þig?“, og Magnús
Einarsson á textann. Hér er á
ferð eitt besta lag plötunnar,
ballaða sem greinilega hefúr
mikið verið dundað við, með
lúðrum, mjúkum poppbak-
röddum frá höfúndinum og
allar græjur.
Eins og þessi upptalning
sýnir kennir „margra grasa“ í
rokkgarði Sniglanna. Skikinn
er skipulagður, merkimiðar
standa upp úr moldinni sem
hefur að geyma að megninu
til hið þokkalegasta græn-
meti, þótt sumt sé vissulega
trénað. Uppskeran, „Þetta
stóra svarta“, ætti að gleðja
vanar grænmetisætur af
Gauknum og böllunum —
þeir, sem langar aftur á móti í
ffamandlegra rokkmeti, verða
að leita annað. Eitt að lokum:
Umslagið er hörmung — ég
hélt verið væri að auglýsa
tryggingafélag þegar ég sá það
fyrst.
Fegurðardís
AMINA
WA Dl YÉ
★★★
Hún er sæt og getur svo
sannarlega sungið. Og enn á
ný ætlar hún að syngja fýrir
ffosna íslendinga og reyna að
bræða þá upp með aðstoð
veiganna á barnum. Amina
gaf út sína nýjustu plötu í
fýrra. Wa Di Yé er önnur
plata hennar. Sú fýrsta, „Yal-
il“, sem kom út 1989, vakti
feiknaathygli og kom henni á
kortið bæði sem söng- og
leikkonu. Flestir muna svo
eftir Aminu í Júróvisjón og á
tónleikunum á Hótel Islandi í
hittifýrra.
Amina er upprunin í Túnis
en ’nefur búið í París alla sína
tíð. Tónlist hennar er smekk-
leg og tilgerðarlaus blanda ar-
abískrar tónlistarhefðar og
vestrænnar. Á nýju plötunni
eru fjarlægari áhrifin sterkari,
Amina notast nær eingöngu
við Iífræn hljóðfæri og fyrir
vikið ber lítið sem ekkert á
harðsoðnu danstónlistinni
sem hún var að fitla við á
fyrstu plötunni. Hér ríkir
andi eyðimerkursandanna og
allt það, í temmilega popp-
uðu formi, svo hinir vest-
rænu með sæmilega opinn
tónlistarsmekk ættu ekki að
fúlsa við krásunum: tólf vel
útfærðum og unnum Am-
inu-lögum. Ámina syngur á
ffönsku og arabísku og jóðlar
þegar vel liggur á henni. Þetta
er rólyndisleg tónlist, ekki það
sem maður setur á í partíum,
heldur einmitt passleg hús-
tónlist ef veiðin á börunum
hefúr gengið vel.
Amina og stórhljómsveit
verða á Hótel íslandi annað
kvöld með KK-bandi og svo
aftur á föstudagskvöld með
Júpíters. Kannski kemur þá
sumarið loksins?
leikar númer tvö og nú meö
Júpíters. Þeir hita upp og hreyfa
síöar viö danstám.
• Tónlistin lifir á Fógetanum.
• Anna Þorláksdóttir veröur
með þaö nýjasta frá New York í
kvöld á Tunglinu. Hún stjórnar
tónlistinni ásamt Grétari. Latin-
dans, kokteill og flugfreyjur fá
frítt inn.
• Pelican, gömlu jálkarnir
ásamt Gvendi Jónssyni. Dóra
Takefusa veröur örugglega ein-
hvers staöar nálægt. Þeir taka
Fjöröinn í framhaldi af GCD.
• Gelri Valtýs og síðvetrar-
sveiflan á Hótel Islandi.
• Blúsbrot er eöalsveit sem
heldur sig í bænum og leggur
ekki í sveitaböllin. Hún verður á
Blúsbarnum.
• Þórarinn Gíslason kráarpían-
isti á Djass í Ármúla.
• Veröir laganna aftur og ný-
búnir.
• Geirmundur Valtýsson í
syngjandi sveiflu ásamt völdu
tónlistarfólki á Hótel íslandi.
• Er þaö satt sem viö segjum
um landann? spyrja Halli,
Laddi, Lolla og ekkifréttamaöur-
inn Hjálmar Haukur Hjálmars-
son I síöasta sinn í Súlnasal
Hótels Sögu. Þau kveðja í bili.
Bo Haldors tekur við og fylgir
danspörum inn í sumarnóttina.
• Og enn lifir tónlistin á Fóget-
anum.
• Friörik 12. er bráðskemmti-
legt stórband sem veröur á
Gauknum.
• Blúsbrot enn aö verki á Blús-
barnum. Vignir Daðason vælir
sig inn í hjörtu kvenna.
SVEITABÖLL
M IÐVI KUDAGURINN 1
1 9. MAÍ |
• 1929, Akureyri: Hinir hallær- islegu meölimir Sniglabandsins skemmta. 1
FÖSTUDAGURINN
2 1 . MAÍ
• Edinborg, Keflavík: GCD leik-
ur bílaverkstæöarokk af bestu
tegund.
• Sjalllnn, Akureyri: Töffararnir
úr Todmobile.
• Víkurröst, Dalvík: Snigla-
bandiö verður aöhlátursefni
kvöldsins.
• Sjallinn, ísafiröi: SSSól á
heimaslóðum.
• Pelican, Akranesl: Pétur
Kristjáns og fyrrum sálin Guö-
mundur Jónsson trylla.
• Pláhnetan kemur fram í
fyrsta sinn á 1929 á Akureyri.
Hvaö sem veöurspár koma til
með aö segja verður heitt fyrir
noröan.
LAUGAR DAG U R 1 N N 1
22. MAÍ
• Sjallinn, Akureyri: Todmobile
alveg örugglega í nýju átfitti.
• Sjallinn, ísafiröi: SSSól og
Helgi Björns í hlébaröaskónum.
• Hótel Borgarnes: Snigla-
bandið gerir sig aö fífli.
• Leikur aö vonum er heit stór-
sýning sem hann samdi gamli
Mánagítaristinn Ólafur Þórarins-
son. Þetta mun vera svo heitt
austanfjalls aö nú þegar er upp-
selt.
• Diskó frlskó á Hótel Akra-
nesi.
• Pláhnetan á fyrsta dansleik
sumarsins í Ýdölum í Aöaldal.
Hvernig líöur dömunum á Akur-
eyri?