Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 5
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993
S KI LA BOÐ
PRESSAN
F
J__J itt af þeim málum
sem Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra þarf að
leiða til lykta er hvað verð-
ur um lóranstöðvarnar
tvær hér við land. Ætlun
Bandaríkja-
manna er að
leggja stöðv-
arnar niður
á næsta ári
og hafa þeir
tilkynnt að
þeir ætli að
leggja fram fjármagn til að
rífa þær. Á hvorum stað
vinna á milli 10 og 12
starfsmenn. Hafa komið
fram tillögur til að nýta
fjármagnið, sem nota á til
niðurrifs, til þess að gera
endurbætur á stöðvunum
sem gæti leitt til áframhald-
andi starfrækslu þeirra, þó í
mun minna mæli yrði.
Hefur komið til tals að þær
gætu nýst sem leiðrétting-
arstöðvar fyrir GPS gerfi-
hnattakerfið...
E . , „.
-1—/nn emn lögmaðunnn
hefur verið tekin til gjald-
þrotaskipta samkvæmt úr-
skurði Héraðsdóms
Reykjavíkur. Það er Grétar
Haraldsson hæstaréttar-
lögmaður sem hefur verið
úrskurðaður gjaldþrota en
kröfulýsingafrestur hefur
enn ekki verið gefinn út.
Grétar var á sínum tíma
tengdur Von Veritas með-
ferðarstofnunni og mun
upphaf fjárhagserfiðleika
hans vera að rekja þangað.
Hann hefur um skeið veitt
Innheimtustofunni sf. for-
stöðu en er þó ekki eigandi
hennar, aðeins launaður
starfsmaður. Þá má geta
þess að hann var einu sinni
í stjórn knattspyrnudeildar
Vals og er því áreiðanlega
ekki fyrsti Valsarinn sem
lendir í fjárhagskröggum...
T
ed Turner eigandi
bandarísku sjónvarpsfrétta-
stöðvarinnar CNN og eig-
inkona hans leikkonan
Jane Fonda komu til lands-
ins í morgun í einkaþotu
sinni. Hjónakornin eru
hingað komin á vegum
Stöðvar 2 í þeim tilgangi að
hvíla sig frá amstrinu vest-
anhafs og njóta íslenskrar
náttúru í nokkra daga.
Turner og Fonda munu í
dag snæða hádegisverð
með forsætisráðherra Dav-
íð Oddssyni að Valhöll á
Þingvöllum og að því
loknu hitta forseta Islands
Vigdísi Finnbogadóttur að
máli. Þá liggur leið þeirra
hjóna upp í Norðurá þar
sem þau hyggjast kasta fyrir
lax. Stöðvar 2 menn hafa
tryggt sér að þeir muni fá
eitthvað fyrir sinn snúð og
ætla að gera viðtalsþátt um
fýrirfólkið sem tekinn verð-
ur upp við Norðurá. Það
verður sjálfur Ingvi Hrafh
Jónsson fréttastjóri sem
tekur viðtal við Ted Turn-
er, en Bryndís Schram
framkvæmdastjóri Kvik-
myndasjóðs hefur tekið að
sér að spyrja stórstjörnuna
Jane Fonda spjörunum
úr...
GALTALÆ KJARS KO GI
Allan tímann verður gaman enda er umhverfið
sérlega fallegt, nóg við að vera, allur aðbúnaður og
aðstaða til fyrirmyndar. Og allt án áfengis.
Rútuferðir frá:
REYKJAVÍK (bsí)
KEFIAVÍK (sbk)
CRINDAVÍK (sbk)
SANDCCRÐI (sbk)
GARÐAR (sbk)
VOGAR(sbk)
FORSALA TIL 26. JÚLÍ
SEGLAGERÐINNI ÆGI REYKJAVÍK
SHELLSTÖÐINNI LAUGAVEG1180, REYKJAVÍK
SHELLSTÖÐINNI V/VESTULANDSVEG, R.
SHELLSTÖÐINNI BORGARNESI
SHELLSKÁLINN SELFOSSI
SHELLSTÖÐINNI FITJUM NJARÐVÍK
BSí REYKJAVÍK 0G SBK KEFLAVÍK
MIÐAVERÐ
Fullorðinn 5.300.-
Unglingur 4.800.-
12 ára og yngri fá frítt inn í fylgd með fullorðnum
íforsöjlw
4.800.-
4.30Ój4
HVAD VERÐUR UM AD VERA?
Skógrækt með Skeljungi
Á kvöldin sveiflast mannskapurinn í takt við skagfirska
sveiflu Geirmundar, hljómsveitirnar Pandemonium og
Örkin hans Nóa sjá um ýkt fjör fyrir unglingana.Á
laugardagskvöldinu mun stórfengleg flugeldasýning lýsa upp
himininn og rómantískur varðeldur stafa hlýlegri birtu um
Bríkina.
Á daginn verður hjólreiðakeppni BFÖ og ökuleikni
BFÖ, Lukkuland, leiktaekjaland, minigolf að ekki sé minnst
á barnaball og söngvarakeppni fýrir börnin. Spaugstofan
skemmtir og Mikki refur og Lilli klifurmús verða á sveimi.
Magnús Scheving þolfimimeistarinn glaðlegi stjórnar
hádegisþolfimi.Talandi risa kanínur munu
rölta um skóginn. Séra Pálmi Matthíasson
messar í fögrum lundi og hefur hresst fólk
sér til aðstoðar.
Á kvöldvökum leikur Spaugstofan
við hvern sinn fingur, HörðurTorfa trúbador
syngur við raust og Raddbandið gefur tóninn. Magnús
Scheving þolfimimeistari sýnir á sér alla enda og kanta.