Pressan - 22.07.1993, Síða 7

Pressan - 22.07.1993, Síða 7
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993 S KI L A BOÐ PRESSAN 7 Mart Laar forsætisráðherra Eistlands „Mikson drap í versla falli einhverja kommúnista“ Simon Peres, utanríkisráðherra Israels, fór opinberlega fram á það við Mart Laar, forsætisráðherra Eistlands í síðustu viku að frekari rannsókn færi fram á meintum stríðsglæpum Evalds Miksons. Eistneski ráðherrann var þá stadd- ur í tveggja daga opinberri heim- sókn í Israel. Peres hefur hins veg- ar sagt opinberlega að hann muni ekki að svo stöddu fara fram á frekari rannsókn af hálfu íslenskra stjórnvalda. Tzvi Maz-El, yfir- maður Austur- Evrópudeildar ísraelska utanríkisráðuneytisins, staðfest ummæli utanríkisráðherr- ans í samtali við PRESSUNA. Sagði hann að máhð væri álitið al- varlegt. Þetta er í fyrsta sinn sem ísraelsk stjómvöld kunngera afstöðu sína gagnvart Eistlendingum í máli Miksons. Tilmælunum er ætlað að auka líkur á að hann verði framseldur og réttað verði í máh hans í Eistlandi. Forsætisráðherr- ann eistneski svaraði því til að stjóm hans hefði þegar rannsakað málið en hygðist halda því áfram samvinnu við Wiesenthal-stofn- unina í Israel í von um að varpa ffekara ljósi á máhð. I tilefni af heimsókn eistneska ráðherrans til Israel birtist viðtal við hann í ísraelska dagblaðinu Ha’aretz. Yossi Melman, virtur ísraelskur blaðamaður, innti ráð- herrann meðal annars eftir því MflRT LAAR Ætlar að halda áfram að rann- saka málið. hvernig samvinnu eistneskra borgara við hermenn nasista í síð- ari heimsstyrjöld hefði verið hátt- að og bar sérstaklega ffarn spurn- ingu varðandi meinta stríðglæpi Miksons og ffamgang stjómvalda í rannsókn málsins. I samtali við PRESSUNA skýrði Melman frá því að eftir forsætisráðherranum hefði verið haft að engin gögn hefðu fundist ffam að þessu sem sönnuðu sekt Miksons og al- EVALD MlKSON ísraelsmenn vilja að Eistlendingar fái hann framseldan. mennt hefðu afar fáir eistneskir borgarar starfað í samvinnu við hermenn Nasista, ef til vill ekki nema um 20 manns. Melman tel- ur orð forsætisráðherrans langt ffá sannleikanum því vitað sé um fjölda manna og kvenna sem unn- ið hafi með Þjóðverjum í seinni heimsstyrjöldinni. Melman er þekktur í ísrael og víðar fyrir skrif sín um öryggis- og utanríkisrmál. Forsætisráðherrann sagði orð- rétt í viðtalinu: „Við fundum eng- in gögn til staðfestingar ásökun- um á hendur Evald Mikson. I versta falli hefur hann drepið ein- hverja kommúnista. Við erum reiðubúin að halda leit okkar áfram en engin gögn hafa enn komið fram sem staðfesta orð- róm um meinta stríðsglæpi af hans hálfu.“ I gögnum, sem framvísað hefur verið í málinu, kemur ffam vitn- isburður fólks sem segist hafa séð Mikson myrða óbreytta borgara. Mikson hefur haldið ffam sakleysi sínu á þeim grundvelli að gögn sem fundist hafa í skjalasöfnum fyrrum leyniþjónustu Sovétríkj- anna, KGB, séu óráreiðanleg og jafnvel fölsuð. Eistnesk stjómvöld hafa tekið undir þessa skoðun og er Yossi Melman svartsýnn á að við frekari athugun muni fátt koma fram sem er ekki vitað um nú þegar. Hann segir það hins vegar fúrðu gegna að staðið sé að þessu máli á þann hátt sem raun ber vitni þar sem ísraelsk stjórn- völd og fræðimenn hafi margoft notað hliðstæð gögn í dómsmál- um án þess að vafi hafi leikið á um réttmæti þeirra. Nefndi hann meðal annars að dómur muni falla í máli meints stríðsglæpa- manns, Ivans Demjanjuks í næstu viku í Hæstarétti ísraels á gmnni nýrra gagna sem fúndust í skjalasafni KGB. Telma L. Tómasson Dugmikið sölufólk Við leitum að kraftmiklu og áhugasömu fólki til starfa við markaðssetningarátak Tónlistarklúbbs AB. Góðir tekjumöguleikar fyrir rétta fólkiö. Ahugasamir vinsamlegast komi til viðtals á Nýbýlavegi 16, Kópavogi, mánudaginn 26. júlí milli kl. 16:00 til 20:00. (Ath. aö upplýsingar eru eingöngu veittar á staðnum, ekki í gegnum síma). ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ H F ES3 Flat Uno Arctlc -fyrir norðlœgar slóðir Aðeins kr. Uno. arcac Flat Uno býðst nú á frábæru verði. 748.000 á götuna - ryðvarinn og skráður. Ath. Gerið verðsamanburð við aðra bfla! UNO 45 3D er sérbúinn fyrir norðlægar slóðir: Styrkt rafkerfi - Stærri rafall - Sterkari rafgeymir - Oflugri startari - Bein innspýting - Betri gangsetning - Hlifðarpanna undir vél - Öflugri miðstöð - Aukin hljóðeinangrun - Ný og betri 5 gíra skipting. Komió og reynsluakið Frábær greiðslukjör Úrborgun kr. 187.000 eða gamli bíllinn uppí. Mánaðargreiðsla kr. 20.094 í 36 mánuði með vöxtum og kostnaði auk verðtryggingar. ITALSKIR BILAR HF. Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sírai (91)677620 ITSALAN HANZ ÚT^p*N HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSfi HANZ ÚTSALAN mUZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HAh ITSALAN HAN HANZ ÚTSAL. ITSALAN HAN HANZ ÚTSAL, N HANZ UTSA ÚTSALAN HAf> N HANZ ÚTSA ÚTSALAN HAh ITSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSA HANZ UTSALAN HANZ ÚTSALAN ITSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ HANZ UTSALAN HANZ UTSALAN kNZ UTSALAN HANZ UTSALAN HAt> sALAN HANZ UTSALAN HANZ UTSA m HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HAb ITSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSA HANZ UTSALAN HANZ ÚBtLAN HANZ ÚT ITSALAN HANZ UTSALAH ■ fSALAN HANZ UTSALAN NZ UTSALAN HANZ ÚTSALAN HAf> ■ 4Z UTSALAN HANZ UTSA HANZ UTSALAN HANZ UTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HAb fSALAN HANZ UTSALAF / \ ^ ' iLAN/ANZ UTSALAN HANZ UTSA KRINGLUNNI ITSALAN HANZ UTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSA HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HANZ ÚTSALAN HAh

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.