Tíminn Sunnudagsblað - 01.12.1963, Page 16
PÁLL ÓLAFSSON FRÁ SÖRLASTÖÐUM:
ALOARMINNING FftÆDAÞULS UR FNJOSKADAL
I.
Árið 1847 nófa búskap á Snæbjarn
arstöðum í Fnjóskadal hjónin Bjarni
Davíðsson og Kristín Sigurðardóttir.
Bjarni fæddist árið 1824 í Sellandi
í Fnjóskadal. Voru foreldrar hans
Davíð Bjarnason og Sigurbjörg Guð-
múndsdóttir. Þaj hjón voru bræðra-
börn, bæði af Reykjaætt í Fnjóska-
dal. Þau byrjuðu búskapinn í Sellandi,
voru þar og á Bakka í sömu sveit
í fáefn ár, en árið 1830 fluttust þau
‘að Reykjum og bjuggu þar um 40
ár.
Á Reykjum hefur sama ættin búið
því nær óslitið síðan snemma á 18.
öld og allt til þessa dags, um það bil
hálfa þriðju öld
Davíð og Sigurbjörg eignuðust níu
börn, sex sonu og þrjár dætur. Þau
h'étu: Bjarni, Guðmundur, Davíð, Si.g-
urður, Jónatan, Helgi, Sigurbjörg,
Guðfinna og Guðrún. Þessir sex bræð
ur bjuggu allir um skeið í suðurhluta
Fnjóskadals og sumir mjög lengi.
Bjarni bjó á Snæbjarnarstöðum 40
ár. -Guðmundur bjó í Hjaltadal og
Fjósatungu. Talið er að hann sé sá
tnaöur í Fnjóskadal, sem lengst allra
hefur stjórnað þar búi um næstliðn-
ar tvær aldir. Hann bjó alls í 60 ár.
Sigurður bjó á Veturliðastöðum 52
ár. Jónatan bjó í Brúnagerði og
Reykjum, alls í 36 ár. Davíð og Helgi
bjuggu í Bakkaseli, þó eigi samtímis;
hvorugur þeirra mun hafa búið lengi.
Sigurbjörg bjó í Helgárseli í Eyja-
firði. Guðfinna og Guðrún giftust
ékki og eignuðust ekki börn.
Jafnan féll vel é með þeim bræðr-
um, Bjarna og Guðmundi Davíðsson-
um. Voru þeir nijög samrýmdir, enda
jíkir um imargt. Þeir voru næstu ná-
gr'annar um 30 ára skeið, þar sem
annar bjó í Hjaltadal, en hinn á Snæ-
þjarnarstöðum.
Bærinn Hjalladalur stóð í mynni
sanmefnds dals vestan Hjaltad.alsár,
gegnt norðurhyrnu Kambfellshnúks.
Snæbjarnarstaðir standa nokkru norð
hr en Hjaltadalur, pegnt Sörlastöðum,
sem, er innsti bær austan ár. Timbur
.valladalsá og Hjaltadalsá falla saman
þpölkorn sunnan Sörlastaða og Snæ-
bjarnarstaða, en nokkuð norðan
Hjáltadals. Þessir þiír bæir voru um
Jangan aldur syðstir byggðra bæja í
Fnjóskadal. Nú eru þessar þrjár jarð
ir komnar í eyði.
II.
Bjarni á Snæbjarnarstöðum var,
að sögn kunnugra, mikill léttleika-
maður, afburðaþolinn, duglegur,
bjartsýnn og greiðvikinn, ör i lund
og skjóthuga, en þó eðlisgreindur.
Hann var tvíkvæntur, og hétu báðar
konurnar Kristínar. Fyrri kona hans
var Kristin Sigurðardóttir frá Þor-
móðsstöðum í Sölvadal. Voru foreldr-
ar hennar Sigurður Jónasson, bóndi
á Þormóðsstöðum og kona hans, Guð-
rún Gunnlaugsdóttir, bónda á Guð-
rúnarstöðum í Eyjafirði.
Bjarni og Kristín eignuðust sex
börn, fjögur þeirra dóu ung, en þau,
sem upp komust, hétu Guðrún og
Sigurður. Guðrún var fyrri kona
Benedikts Jónatanssonar frá Þórðar-
stöðum. Þar bjuggu á Bakka í Fnjóska
dal og áttu mörg börn. Guðrún lézt
ung að árum, liðlega þrítug.
Sigurður Bjarnason fæddist hinn
31. ágúst 1863 á Snæbjarnarstööum,
og var jafnan kenndur við þann bæ.
Fer vel á því, að þessa minnisstæða
manns sé minnzt í tilefni aldaraf-
mælis hans.
Sigurður ólst upp í föðurgarði við
góðan efnahag, gott atlæti og marg-
háttaða greiðasemi við gest og gang-
andi. Eigi var hann þó til mennta
settur, þótt hugur hans hafi eflaust
staðið til skólagöngu. Um tvitugs-
aldur dvaldist Sigurður þó á Akur-
eyri við nám i einn vetur. Var kenn-
arinn hinn kunni alþýðufræðari
þeirra tíma Guðmundur Hjaltason.
Mun námsdvölin hiá Guðmundi hafa
orðið Sigurði góð leiðsögn í lífinu
og á alla staði notadrjúg. Minntist
hann ætíð kennara síns með virð-
ingu og þökk.
III.
í júlímánuöi 1887 gerðist sá sjald-
gæfi atburður, að þeir Snæbjarnar-
staðafeðgar, Bjarni og Sigurður, héldu
báðir brúðkaup sitt hinn sama dag.
Kvæntist Bjarni Kristínu Jónsdóttur.
Þau eignuðust eina dóttur, er hlaut
nafnið Guðrún. Hún giftist Kristni
Sigurpálssyni. B.juggu þau lengi á
Húsavík og áttu sex börn, sem öll
eru á lífi. Kristinn er látinn fyrir
fáum árum, en Guðrún er nú búsett
á Akureyri. Hún er 75 ára að aldri.
Um ætt Kristínar, seinni konu Bjarna
er mér eigi nógu kunnugt.
Sigurður Bjarnason gekk að eiga
Hólmfríði Jónsdóttur. Voru foreldrar
hennar Jón Guðlaugsson frá Stein-
kirkju og Helga Sigurðardóttir frá
Brúnagerði.
Var Sigurður þá tæpra 24 ára, en
Hólmfríður á 20 aldursári.
Bjarni á Snæbjarnarstöðum andað-
ist úr lungnabólgu mánuði eftir brúð
kaupið, 63 ára gamall, en Kristín,
fyrri kona hans, lézt átta árum
fyrr.
IV.
Ungu hjónin, Sigurður og Hókn-
fríður, settu saman bú þegar á hinu
fyrsta hjúskaparári sínu og bjuggu
tvö ár á hálílendu Snæbjarnarstaða,
en á hinum jarðarhelmingnum bjó
Kristín, ekkja Bjarna. Eins og fyrr
er frá sagt, var mjög góð vinátta
þeirra bræðra, Bjarna og Guðmund-
ar Davíðssona. Þegar Bjarni á Snæ-
bjarnarstöðum -ézt, hafði Guðmundur
búið í Fjósatungu um nokkur ár,
ávallt í tvíbýli, stundum í margbýli.
Ólafur, sonur Guðmundar Davíðsson-
ar, hafði um 10 ára skeið búið í
Fjósatungu í tvíbýli á móti föður
sínum. En árið 1^B9 fluttist hann
að Sörlastöðum og fór að búa þar.
Þá bregður Gúðmundur í Fjósatungu
á það ráð að bjóða hinum unga bróð
ursyni sínum, Sigurði á Snæbjarnar-
stöðum, að taka tvo þriðju hluta af
Fjósatungu lil ábúðar. Tók Sigurð-
ur boðinu fúslega og fluttist að Fjósa
tungu og bjó þar i eitt ár. Árið 1890
flyzt hann aftur í Snæbjarnarstaði,
er þá höfðu losnað úr ábúð, þar sem
Kristín, stjúpa hans, brá búi þá um
vorið.
Þótt Sigurður væri nú setztur að
búi á æskuheimili sínu, mun hann
eigi hafa verið alls kostar ánægður,
því að vel féll tionum ábúðin í Fjósa-
tungu þetta rina ár þar.
Á Snæbjarnarstöðum búa Sigurður
og Hólmfríður þó í 18 ár eða til árs-
ins 1908. En þá tóku þau sig upp
þaðan, fluttust vestur yfir Vaðla-
heiði og fóru að búa á Garðsá í Kaup-
angssveit. Þar bjuggu þau í þrjú
ár í tvíbýli. Á Garðsá varð Sigurður
fyrir því áfalli, að heilsa hans bilaði,
og varð hann að ganga undir hættu-
legan uppskurð. Heppnaðist þó skurð
aðgerðin ágætlega vel og náði hann
aftur allgóðri heilsu. En veikindin
urðu þess valdandi, að um árabil varð
hann því nær óvinnufær.
Árin, sem Sigurður var sjúklingur
og fyrst þar á eftir, átti hann og
fjölskylda hans heima á Akureyri.
En þegar heilsan tók að batna, hugð-
ist hann hefja búskap enn á ný. Árið
1916 fluttust þau hjónin, ásamt sum-
um barna sinna, að Hvassafelli í Eyja-
1000
T f M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ