Tíminn Sunnudagsblað - 01.12.1963, Side 17
, - , ' *%■ *
''. ••
ÉiííSílÍi
;
: : ■ : ■
SnæbjarnarstaSir í Fnjóskadal. Myndin var tekin sumarið 19S7.
firði og dvöldust þar í eitt ár. Næstu
níu árin áttu þau heima á ýmsum
stöðum í Saurbæjarhreppi og höfðu
jafnan nokkurt bú. Alls munu þau
hafa búið í 34 ár.
Árið 1926 brugðu þau Sigurður og
Hólmfríður búi og fluttust að Grund
í Eyjafirði til Margrétar dóttur sinn-
ar, sem þar bjó ekkja, eftir Magnús
Sigurðsson kaupmann. Á Grund áttu
þau heimili til æviloka.
V.
Sigurður og Hólmfríður eignuðust
9 börn, sem öll eru á lífi. Þau eru:
1. Helga, f. 12. apríl 1888. Var um
áratugi ljósmóðir í Reykjavík. Gift-
ist þar Jóni Asmundssyni trésmið.
Hann er látinn. Þau eignuðust eigi
börn, en ólu upp nokkur fósturbörn.
Heimili: Bragagata 31 í Reykjavík.
2. Margrét: f. 16. ágúst 1889. Tví-
gift. Fyrri maðui, Magnús kaupmað-
ur Sigurðsson á Grund. Þau eignuð-
ust eina dóttur. Seinni maður: Ragnar
Davíðsson frá Kroppi í Eyjafirði.
Margrét bjó ó Grund hart nær 40
ár. Heimili: Ránargata 22 á Akureyri.
3. Kristín Jakobína: f. 21. febrúar
1891. Giftist Jósep Thorlaciusi
Magnússyni írá Steintúni í Bakka-
firði.' Hann er látinn. Þau voru barn-
laus, en ólu upp tvær stúlkur. Heim-
ili: Fossvogsblettur 2 í Reykjavík.
4. Rósa: f. 1. júlí 1893. Giftist Jóni
Sigurðssyni frá Merkigili í Eyjafirði.
Hann er látinn. Bjuggu 35 ár á Merki
gili og eignuðust fimm börn. Heimili:
Oddagata 9 á Akureyri.
5. Bjarney: f. 31. ágúst 1895. Gift-
ist Jósep Liljendal Sigurðssyni frá
Torfufelli í Evjafirði. Hann er látinn.
Bjuggu lengi á Torfufelli og áttu þrjú
börn, og eru tvö þeirra á lífi. Heimili:
Holtagata 6 á Akureyri.
6. Jón: f. 25. nóvember 1897. —
Kvæntur Magnúsínu Kristinsdóttur
frá Akureyri. Bjuggu lengi á Akur-
eyri og eiga tjögur börn. Heimili:
Austurstræti 10 í Reykjavík.
7. Sigurbjarg: f 29. maí 1901. Gift-
ist Þórarni Magnússyni frá Stein-
túni, albróður Jósefs, manns Kristín-
ar, systur hennar. Áttu heitna á ýms-
um stöðum. Eignuðust níu börn og
eru sex á Hfi. Heimili í Kópavogi.
8. Ólöf Indíana: f. 8. apríl 1903.
Giftist Randver Guðmundssyni frá
Leyningi í Eyjafirði. Hann er ný-
látinn. Bjuggu í Fjósakoti í Eyja-
firði í 32 ár. Börn þeirra eru fimm.
Heimili: Munkaþverárstræti 30 á Ak-
ureyri.
9. Snæbjörn: f- 22. ágúst 1908.
Kvæntur Pálínu Jónsdóttur, ættaðri
úr Ólafsfirði. Hafa búið í meira en
30 ár, fyrst í Hólshúsum og síðan
1948 á Grund { Eyjafirði. Börn þeirra
eru sex.
Margrét Sigurðardóttir fæddist i
Fjósatungu, Snæbjörn á Garðsá, en
hin systkinin öll íæddust á Snæbjarn
arstöðum. Þau Sigurður og Hólmfríð-
ur lifðu saman í góðu og fa--ælu
hjónabandi í 43 ár.
Hólmfríður var allt í senn: Agæt
eiginkona, móðir og húsfreyja. Hún
var rausnarkona og öllum velviljuð.
Hún lézt 28. september 1930, nær
því 63 ára að aldri. Var hennar mjög
saknað af eiginmanni og ættgarði
öllum.
VI.
Bjarni á Snæbjarnarstöðum var um
skeið talinn vel efnum búinn. En á
seinni búskaparárum hans fóru efn-
in minnkandi. Þrátt fyrir það, mun
Sigurður, sonur hans hafa, eftir þeirr
ar tíðar mælikvarða, byrjað búskap-
inn með sæmileg efni og átt snoturt
bú. En þegar lengra leið, fóru efnin
smám saman þverrandi.
Hvort tveggja var, að á hann hlóðst
fljótt mikil ómegð og alloft á þeim
árum reyndist misært í landi. Þetta
var meðal annars þess valdandi að
efnahagurinn var oft fremur þröng-
ur.
Sigurður Bjarnason, fræðaþulur Fnjóskdæla, og kona hans, Hólmfriður Jónsdótflr.
T I IVI t N \ — SIJ\NUDAGSBLAÐ
1001