Tíminn Sunnudagsblað - 01.12.1963, Síða 22
vegagerð eins og mörgu öðru. Chimú-
ríkið féll fyrir Inkaríkinu árið 1466.
o
Ýmislegt er á huldu um forsögu
Inkaríkisins. Öll rök hníga þó að því,
að þeir séu annaðhvort upprunnir
í Cuzeodalnum sjálfum eða í nánasta
umhverfi hans. Tilgátur um framand-
legan uppruna þeirra og löng ferða-
lög til Andesfjalla hafa margar komið
fram síðustu aldirnar, en virðast all-
ar vera samdar af meiri hugkvæmni
en hugsun. Inkarnir hafa verið tald-
Framhafd af 987. sí3u.
starfssviðs, sem þeir hyggjast sér-
hæfa sig fyrir.
— Félagsráðgjafar geta sem sagt
sérhæft sig að ákveðnum verkefnum?
— Já, náminu má skipta í tvær
höfuðdeildir, fræðilega deild og fé-
lagslega. Fræðii ^a deildin útskrifar
félagsráðgjafa starfa helzt við
administrativ ■ i i bæjarfélögum, en
félagslega deiidin útskrifar félagsráð-
gjafa til starfa við ýmsar velferðar-
stofnanir. Þá er einnig nokkurt val-
frelsi um aðalgreinar og hljóta síð-
ari störf að fara að nokkru eftir aðal-
grein. Þeir, sem vinna við sálgæzlu,
verða auðvitað að leggja áherzlu á
sálarfræði, og víðast hvar er krafizt
framhaldsmenntunar fyrir þá, sem
vinna að geðverndarmálum
— Þú vinnur að slíkum málum, er
það ekki?
—- Ég starfa við geðverndardeild
barna á Heilsuverndarstöðinni. Sú
deild hóf starfsemi sína í október
1960, og er hlutverk hennai að ann-
ast rannsóknir og lækningu á börnum,
sem þjást af taugaveiklunareinkenn-
um eða öðrum sálrænum erfiðleikum
Við deildina starfa nú 2 sálfræðingar,
2 geðlæknar og 2 félagsráðgjafar auk
skrifstofustúlku. Starf félagsráðgjaf-
anna er að hafa viðtöl við alla for-
eldra, sem leita til deildarinnar vegna
barna sinna Tilgangur þessara við-
tala er að reyna að fá fram upplýs-
ingar um fjölskyldu og umhverfi
barnsins, þroskaferil barnsins, hve
lengi erfiðleikarnir hafa staðið, hvers
eðlis vandamálið sé og hvernig um-
hverfið hefur brugðizt vandanum, og
á hvern hátt hafi verið reynt að leysa
hann, áður en leitað var til deildar-
innar. Samtímis fer að sjálfsögðu
fram rannsókn á barninu, en félags-
ráðgjafarnir hafa reglubundin viðtöl
við foreldrana allan tímann, sem
barnið gengur í lækninguna.
— Eru margir íslenzkir félagsráð-
gjafar?
— Ég veit um sex, sem hafa lokið
prófi í greininni, en þar af starfa
ekki nema fjórar hér á landi, tvær
við geðverndardeild barna, ein hjá
ir vera týndur ættbálkur Ísraelsríkis-
ins, afkomendur Kúblai Khans, Ar-
menar, Egyptar, Kínverjar, og jafn-
vel Englendingar. Sir Walter Raleigh
hafði það minnsta kosti fyrir satt, að
nafn hins fyrsta Inka, Manco Capac,
væri afbökun úr Ingasman Capac, þ.
e. Bölvaður Englendingur. Nýlegar
tilraunir til að sanna, að Inkarnir hafi
staWS að landnámi Suðurhafseyja
með flekaferðum þvert yfir Kyrra-
hafið, virðast einnig vera meira upp-
auglýstar en grundaðar.
sálfræðideild skólanna og ein hjá
framfærslufulltrúa Reykjavíkur. Þörf
in á félagsráðgjöfum fer hins vegar
sívaxandi. Stofnanir eins og sjúkra-
hús, og þá sérstaklega geðverndar-
sjúlcrahús, fangelsi, barnavemdar-
nefndir þyrftu að hafa í þjónustu
sinni sérmenntaða félagsráðgjafa,
sem ynnu með sálfræðingum, lækn-
um lögfræðingum og öðrum sér-
menntuðum mönnum að lausn þeirra
vandamála, sem fyrir kunna að koma.
— Ertu búin að starfa lengi við
heilsuverndarstöðina?
— Ég er búin að vera þar í eitt
ár, en áður vann ég í eitt og hálft
ár sem félagsráðgjafi í Stokkhólmi.
Ég vann þar lengst af á geðverndar-
deild barna hjá barnavemdarnefnd,
og einnig um tíma við stofnun, sem
hefur það hlutverk að rannsaka um-
sóknir um fóstureyðingar og úrskurða
hvort þær skuli leyfðar, og einnig
fjallar stofnunin um sambúðarerfið-
leika. Þarna vinna 8—10 félagsráð-
gjafar, 3 geðlæknar og aðrii læknar.
Hér væri full þörf á einhverri hlið-
stæðri stofnun; þar mætti gjarnan
sameina undir einn hatt mæðrahjálp,
lögfræðilega aðstoð við ættleiðingar
úrskurði um fóstureyðingar og aðstoð
til fólks, sem á í sambúðarerfiðleik-
um af einhverju tagi. Við slíka stofn-
un þyrftu að starfa félagsráðgjafar,
lögfræðingar, geðlæknar og sálfræð-
ingar, sem ynnu sameiginlega að
lausn þessara-vandamála. Einnig væri
æskilegt, að hér risi upp félagsráð-
gjafaskóli, svo að íslendingar þyrftu
ekki að leita til annarra um mennt-
un á þessu sviði heldur gætu skólað
sína félagsráðgjafa með tilliti til ís-
Lausn
83.krossgátu
lenzkra þjóðfélagshátta. íslenzkir fé-
lagsráðgjafar verða að miða störf sín
við íslehzka þjóðfélagshætti, en ekki
danska eða sænska. KB.
FÖLDUNGAR —
Framhald af 991. síðu.
sióðum manna. fram á þroskaald-
ur.
Földungurinn verður samt ekki
kallaður sérlega sjaldgæfur fisk-
ur hér við land. Upp undir tuttugu
fiskar af þessu kyni hafa veiðzt
hér eða náðst með öðrum hætti.
Hinn fyrsti. sem nú er kunnugt
um, náðist «'ið Vestmannaeyjar
Arið 1844. Síðan hafa þeir annað
veifið komjzt í hendur íslenzkra
manna, einkum þó á þessari öld.
Flesta hefur þá rekið, suma lif-
andi, en þeii hafa einnig fest sig
á lóðum eða látið blekkjast af
cðrum veiðigildrum manna. Einn
hefur fundizt í hákarlsmaga, svj
að ekki stenzt hann þejm vígastyr
snúning, þótt grimmilegur sé, og
einu sinni náðist einn lifandi í
Siglufirði.
En stóri földungur er víðar á
ferð á norðíægum slóðum en við
strendur íslands. Hann hefur til
riæmis fimm sinnum fundjzt við
Grænland, þai af þrisvar í grennd
við Júlíönuvon og Narssak, einu
sinni í nám’inda við Færeyinga
Iiöfn og einu sinni í Góðvonar-
uéraði. Það varð þeim fiski að
fjörtjóni, að hann var að busla i
sjólokunum. .-étt eins og fiskarn-
ji, sem léku sér kringum skút
una út af Dýrafirði — þar skutl-
aði grænlenzkui maður hann.
Það er annars á allt öðrum slóð-
um, sem stcri íöldungur næst oft
ast —- við Kanaríeyjar og Madeira.
Þeir, sem hingað sveima, virðast
helzt vera þeir. sem hætta sér
lengst um d úpin blá.
H' $3 ■V vó > §§ P fl H
H 3 Ó N I N 5-
1 T T P fi
c P Tj u N fí -V
§1 T 7 T || H a
* Li T T S j J S
J [5 4 55 r R Ó T
N T
K Líl N N U G A p i E £ U u
km T N N R 0 N T 1 R M •1/
M T * R t I p V
|| §§ S U fl
T 6 U 4* J 11 V I M N H
c I R H 0 s I r U N G T
L c E L. v> n N S T r w
H £ i L T T íT s n L li R
G £ H D § S 1 G T Ú N
u G a T 5 £ V T H fí £
R 6 R U D /L L U s I
i B 0 K S V 1 p V R M É ~T
s £ tE R R D L s M n u ð T
FÉLAGSRÁÐGJAFI —
1006
T I H i N N — SUNNUDAGSBLAÐ