Tíminn Sunnudagsblað - 23.03.1969, Blaðsíða 16
-jT
„Er skemmst af því aS segja, aS þar drukknuSu þau öll þrjú í augsýn barnanna tveggja".
Sandbrekku, skrifaði bréfið þegar
daginn eftir slysið:
„Hér með kunngerist herra
sýsluma-nninum, eftir bón hlutað-
ei-gandi, dauðsföll fimm eftirskrif-
aðra persóna:
1. Bóndans Árna Bjarnasonar á
Ketilsstöðum.
2. Konu hans, Guðrúnar ísleifs-
dóttu-r.
3. Barns þeirra sex ára, Snjó-
fríðar.
4. Vinnumanns Péturs Bjarna-
sonar, er til heimilis var á Foss-
völlum í Hlíðarhreppi, en drulckn-
aði hér í hreppnum með fyrr-
nef-n-d-ri kon-u.
5. Vinnukonu GróU Þorvarðs-
dóttur, sem deyði einnig á fyrr-
ne-fndum bæ, Ketilsstöðum".
Bréfið var stutt, orðin gátu
varla verið færri. En það sagði
langdrægt þá sögu, sem því var
ætlað að segja.
VI.
Nokkur-n veginn réttum sex vik-
um áður en Selfljótsslysið va-rð,
hafði Lagarfljót tekið sitt iðgjald.
Um haustréttir kom húsbóndinn
ungi á Hallf-reðarstöðum, Halldór
Sigfússon, nýskipaður prestur að
Hofteigi á Jökuldal, að Lagarfljóti
geg-nt Kirkjubæ. Hann k-eyrði hest
á sund fyrir neðan Lagarfoss og
fórst þar. Sá þótti harður, er á eft-
ir rak, því að á sama stað hafði
faðir hans, séra Sigfús Árnason,
drukknað með sama hætti um
svipað leyti árs tuttugu og fjórum
árum fyrr. Hinn ríkmannlegi bær
á Hallf-reðarstöðum varð hljóður
og snauður, er helfregnin var bor-
in í hann „Tárin banna mér að
nefna hann meira“, sagði ekkjan í
bréfi til bróður síns, skrifarans á
Stapa: En fólkið, sem álen-gdar
stóð, brynjaðist forl'a-gatrú sin-ni
andspænis beiskum duttlungum til
verunna-r: Enginn má sköpum
renna.
Eftirköst brúðkaupsveizlunnar á
Hjaltastað voru líka váleg, þótt
þar brysti ekki meginstoð sveitar
eða héraðs. Að líkindum hafa tár-
in bannað einhverjum mikla
mælgi um þann atburð, að minnsta
kosti börnunum munaða-rlausu,
sem nú fóru á tvist og bast. Og
með ólíkindum þótti, hve slyslega
gat tekizt til, þar sem allt sýndist
Óhult. Þar blasti enn við, hve mátt-
ug voru hin huldu rök, sem stýrðu
för manna í lífi og dauða: Ekki
verður feigum forðað. Um sann-
gitdi þe-ss efuðust f-áir í -sveitu-num
við fljótin þrjú hin dimmu haust-
kvöld árið 1846.
(Helztu heimildir: Reykjavíkur-
pósturinn, bréfasafn Norður-
Múlasýslu, hreppsbækur Borg-
arfjarðarhrepps og Hjaltastaðar-
hrepps, Lbs. 302 fol., Lbs. 2415
4to., prestþjónust-u-bækur og
sóknarmanntöl Hjaltastaðar,
prestsþjónustubækur Klypps-
staða-r, manntöl, Ættir Austfirð-
inga, fslenzkar ævisk-rár, Árbæk-
ur Reykjavíkur, íslenzkar þjóð-
sögur og sagnir eftir Sigfús Sig-
fússon, Fólk og saga eftir Bene-
dikt Gíslason frá Hoffcei-gi, stað-
háttalýsingar Þorvalds kennara
Sigurðssonar og Halldórs Péturg
sonar).
256
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ