Tíminn Sunnudagsblað - 23.03.1969, Síða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 23.03.1969, Síða 19
en hjálpa sjálfum sér, sagði ég af heimspekilegri ró. — Það er þó fjandann ekki ég, sem erfi hana, svaraði hann í gróf- yrtara lagi. Hann vildi senda einhvern und- ir eins í blómabúð í bænum. En ég lagði mig fram um að slétta yfir það, sem okkur hafði farið á milli, og bar fram þá uppástungu, að hann sparaði sér óþörf útgjöld. — Farið niður í setusaiinn stóra, sagði ég. Þar er nóg af blómum í kerjum. Takið eins mikið og þér viljið f fallegan blómvönd handa Soffíu frænku. Þannig get- ur hann tíka borið meiri svip af yður sjálfum. Hann féllst fúslega á þetta Hann var í óðaönn að velja sér blóm, ©r sjálf húsmóðirin, eig- andi stofnunarinnar, kom óvænt inn í salinn. Hún rak upp ógurleg óp og fórnaði höndum, skelfingu lostin. Svo benti hún á' blómin, sem hann hífði safnað í greip sína, og hristi höfuðið heiftarlega. Það voru hvít blóm, sem hann hafði val- ið, en nú fleygði hann þeim á gólf- ið og byrjaði að velja sér rauð í staðinn. Ég veit ekki, hvort ung- frú Rósinfjoll fékk nokkurn tíma blómvöndinn. Næstu daga var það hvað eftir annað, að ég sá ekki lávarðinn tímunum sarnan og stundum sagð- ist hann vera lasinn og verða að halda kyrru fyrir í herbergjum sínum. Ég var þvi feginn að vera laus við hann öðru hvoru, þvi að ég var satt að segja orðiinn leiður á þvi að fara með hiutverk aðals- manns og gósseiganda. Hann hafði kveðið upp úr með það, að hann færi alfarinn brott mánudaginn 22. október, og þeg- ar á laugardag leitaði hann ráða hjá mér um drykkjupeningana. Ég reiknaði dæmi mitt í snatri í huganum, og mér taldist svo til, að fimm hundruð krónur myndu nægja upp í dvalarkostnað okkar beggja. En ég var ekki búinn að gleyma svívirðilegu veðmálinu, sem hann lét mig tapa í Water- egg-höll, svo að ég stakk upp á því, að hann fengi yfirþjóninum fimmtíu pund til útbýtingar. — Og þér haldið, að það nægi? spurði hann. Handa ötíu þjónustu- liðinu? — Það er kannski í minnsta lagi, sagði ég. En þér verðið að muna, að hér er\alltaf eitthvað af fátækum ættingjum minum og kunningjum, og fyrir þann lýð verð ég sjálfur að borga drykkju- peningana. Og þjónarnir bera það saman, hvað hver lætur af hendi rakna, eiús og þér vitið. Þetta skildi hann mætavel. Hann vildi ekki gera mér neinn óleik og féllst þess vegna á uppástungu mína. Hann hélt á brott á mánudags- nóttina — án þess aö kveðja mig. Eftir lá bréf, nokkrar linur, sem hann hafði hripað í fiýti, og ávís- un upp á sjö hundruð sterlings- pund. Honum hafði óvænt borizt símskeyti, og hann varð að hraða sér heim: Með þvi afsakaði hann skyndilega brottför sína. Með ávís- uninni tjáði hann mér, að lukt væri skuld sú, sem ungfrú Rósin- fjoll átti að greiða mér, og hefði hann gerzt svo djarfur að jafna reikninga okkar að henni for- spurðri. Þegar öllu var á botninn hvolft, var þessi ávísun þó þáttur í dálitlum grikk, sem hann ætlaði að gera mér. En hainn vissi, að enginn kunni betur að meta smábrellur en ég, og þess vegna ætti hann ekki von á, að þetta yrði okkur Framhald ð bls 262 T t M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 959

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.