Tíminn Sunnudagsblað - 23.03.1969, Side 20

Tíminn Sunnudagsblað - 23.03.1969, Side 20
Pússunartollarnlr. Séra Þorvaldur Böðvarssoji var prestur í Saurbæ á Hvalfjarða|- strönd um tuttugu ára skeið á síq.< ari helmingi nítjándu aldar. Á fyrsta ári sínu í þessu prestatoallj giaf hann saman í hjónaband Ólaf Olafsson og Margréti Erlingsdótt ur á Eyri og Guðmund Guðmunds- son og Sigríði Jónsdóttur á Þóru- stöðum. Nokkuð var á reiki, hversu mik ið menn guldu í pússunartoll, er svo var kallaður, og kom þar bæði til rausn manna og hollusta við prestinn. Var séra Þorvaldur að þvi spurður, hve margar kringlótt- ar ætti eiginlega að borga. Prest- ur svaraði: „Þær eiga að vera fjórar, en flestir hafa þær sex — Ólafur minn á Eyri ruddi í mig átta, en Guðmundur á Þórustöðum boraði í mig þremur“ Mæðinn og fótfúinn. Jón peli var vinnúmaður séra Páls í Hörgsdal og tíðum lestamað- ur hans. Einhverju sinni, er hann var að koma úr Bakkaferð, áði hann undir Höfðabrekkufjalli á öðrum stað en Mngnús sýslumað- ur Stephensen, er þá bjó á Höfða- brekku, vildi leyfd ferðamönnum. Ætlaði hann að retoa Jón pela úr áningarstað sinum en hann brást reiður, þreif klyfbera, otaði fram klökkunum og hugðist renna á sýslumann. Um leið hrópaði hann þrumuröddu: „Bíddu mín, heivítan þín. Ég er orðinn ónýtur að hiaupa“. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ efri árum. Svo einkennilega vildi til, að svipað atvito gerðist, er hann lézt. Hestur hafði farizt úr miltis- bruna, og varð Jónatan til þess að birkja hann. Var hann með skeinu á hendi og fárveiktist þegar. Hann átti erfitt um andardrátt og fékk hryglu mikla, er dró að endalok- unum. Ragnheiður heyrði þetta, en áttaði sig etoki á því, hvað á seyði var. „Mikið er það, hvað Jónatan get- ur sofið“ sagði hún. „Alltaf hrýt- ur hann“. vm Þrár til dauðans. Ragnheiður, dóttir séra Friðriks Þórarinssonar á Breiðabólstað í Vesturhópi, giftist Davið Daviðs- syni frá Spákonufelli. Þau bjuggu á Hvarfi, og var D tvíð hreppstjóri í Víðidal, en átti hreðusamt heima fyrir. Það var um naust. að Davíð lagð- ist sjúkur. Hrakaði honum ört. Nú bar svö við, að Ragnheiður sauð slátur í eldhúsi. Gekk hún til bað- stofu, er soðið var. og fékk hverj- um heimilismanna kepp. Seinast kallaði hún til manns síns: „Viltu slátur. Davið“ Hann svaraði ekki, en einhver hafði orð á, að hann myndi svo veikur, að nann hefð' ekki lyst á nýju slátri „Og það er þrái með“. svaraði Ragnheiður. Þegar að var gætt, var Davíð dauður. __ Hrotur Jónatans. Sonur þeirra Ragnheiðar og Davíðs var Jónatan bóndi á Marð arnúpi. Til hans fór P.sgnheiður á Öllu má oígera. í þingveizlu surnarið 1853 varð þeim Jóni Sigurðssyni og Pétri Havsteen, amtmanni á Möðruvöll- um, sundurorða út af því, að amt- maður hafði meinað Jósef lækni Skaftasyni á Hnausum þingsetu með ísjárverðri beitíngu embættis valds síns. Ruddist amtmaður að Jóni, er talað hafð’ til hans þung- um orðum, og nugðist berja hann. Hlupu þingmenn til, og náði Pét- ur biskup Pétursson, sem var efld ur að kröftum til nafna sins, þreif utan um hann miðjan og hélt hon- um þannig. Urðu stimpingar all- miklar, .því að biskupsfaðmurinn nægði ekkí til þess að sefa geð ofsa amtmanns, og dasaðist biskup, þegar til lengdar lét. Kallaði þá til þeirra, er nópazt höfðu að þeim: „Takið þið við honum, piltar. Ég mæðist“.

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.