Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞÓR Gunnarsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar, hefur til- kynnt að hann muni segja starfi sínu lausu á stjórnar- fundi á morgun, miðvikudag. Upp- sagnarfrestur Þórs samkvæmt ráðningarsamn- ingi er eitt ár og mun hann starfa þar til eftirmaður hans hefur verið ráðinn. Þór hefur unnið hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar í 43 ár og lengst af verið þar í stjórn- unarstörfum, í starfi skrifstofustjóra, aðstoðarsparisjóðsstjóra og síðan sparisjóðsstjóra. „Mér finnst þetta orðið ágætt,“ segir hann og reiknar fastlega með að setjast í helgan stein eftir langa starfsævi en samanlagður líf- og starfsaldur hans hjá SPH er að nálg- ast 107 ár. „Þetta hefur lengst af verið 12-14 klukkustunda vinnudagur, það má reikna með í svona starfi að maður fari með 2-4 tíma með sér heim flesta daga vikunnar og stundum um helgar líka.“ Hann segir að ákvörðun hans ætti ekki að koma á óvart, hún hafi legið í loftinu í tvö ár. Þór lærði loftskeytafræði hjá Landssímanum á sínum yngri árum en daginn eftir að hann lauk námi, þann 1. júní 1961, hóf hann störf hjá SPH og hefur því aldrei starfað sem loftskeytamaður. Fyrst um sinn var hann í almennri afgreiðslu hjá Spari- sjóðnum og segir hann að þá hafi allt verið heldur fornfálegt. „Allt var handskrifað, með blekpennum, ekki mátti nota kúlupenna og fyrstu tvö árin vann ég að mestu með hand- drifna reiknivél.“ Þór hefur gegnt stjórnunarstörfum hjá SPH um nærri 40 ára skeið. Hann segist ekki hafa verið sérstaklega skipaður í sína fyrstu stjórnunar- stöðu, „það bara þróaðist svona þegar við fluttum yfir í Sparisjóðshúsið í desember 1964.“ Og ekki man hann nákvæmlega hversu lengi hann hefur verið sparisjóðsstjóri en það sé eitt- hvað nálægt tuttugu árum. Þór segist ætla að byrja á því að taka hlutina rólega þegar hann hætt- ir, sem verði kannski ekki fyrr en um þetta leyti á næsta ári. „Það ræðst af þeim sem verður minn eftirmaður. Síðan sé ég bara til hvað mér dettur í hug. Ég á 3-400 útvarpstæki sem ég gæti látið mér detta í hug að endur- byggja öllsömul. Ég hef safnað þeim í ein 15 ár en hef haft lítinn tíma til að sinna þeim. Einnig vil ég njóta þess betur að lifa lífinu með barnabörnun- um og fjölskyldunni. Það verður að viðurkennast að lítill tími hefur gefist til þess hingað til. Hér heima hefur Sparisjóðurinn verið opinn til klukk- an 11 á kvöldin mjög lengi.“ Með milljónir í strætó Þór kann að segja margar skemmtilegar sögur af ferli sínum. Þessi er frá fyrstu árum hans hjá SPH: „Á þeim árum voru seðlar mikið notaðir og voru þeir sóttir inn í Reykjavík í strætó. Seðlabankinn var þá í Hafnarstræti og stundum gat maður hlaupið úr strætó inn í Hafn- arstræti og náð sama vagni aftur til baka. Svo var það einhvern tíma að ég kom hlaupandi inn í strætó með tvær töskur úttroðnar af seðlum. Heldurðu að það rifni ekki önnur taskan og ég dreifi bara seðlunum inn eftir stræt- isvagninum. Það fór allt sem var í töskunni. Nokkrar milljónir rúlluðu þarna út um allt og undir sætin. Það voru þetta fimm, sex manns í strætó og allir við það að tína upp seðlabúnt- in. Taskan var ónothæf þannig að ég var eins og maður að koma úr bjarg- sigi, setti seðlana bara alla inn í skyrt- una. Eftir þetta var nú farið í leigubíl- um í Seðlabankann.“ Þór Gunnarsson segir upp hjá SPH Þór Gunnarsson SAMKEPPNISSTOFNUN hefur tekið sér frest fram í seinni hluta júní til að skoða samruna Norður- ljósa og Fréttar ehf. og Skífunnar, sem er hluti af Norðurljósasam- stæðunni, og verzlunarsviðs Tækni- vals. Samruninn var tilkynntur stofnuninni í febrúar síðastliðnum. Hinn 30. janúar sl. var greint frá samruna Norðurljósa, sem áttu Ís- lenzka útvarpsfélagið, sem rekur m.a. sjónvarpsstöðvarnar Stöð 2 og Sýn og útvarpsstöðina Bylgjuna auk fjölda annarra sjónvarps- og út- varpsrása, og Fréttar ehf. sem rek- ið hefur Fréttablaðið og hafði þá nýlega tekið við rekstri DV. Jafn- framt var greint frá því að Skífan, sem er eitt dótturfélaga Norður- ljósa, hefði keypt verzlunarsvið Tæknivals. Baugur Group átti um- talsverðan hlut í öllum þremur fé- lögum, Norðurljósum, Frétt og Tæknivali. Hugsanlega ljón á veginum Samkeppnisyfirvöld greindu í janúarlok frá því að þau litu á sam- eininguna sem samruna í skilningi samkeppnislaga, sem þyrfti skoð- unar með. Guðmundur Sigurðsson, for- stöðumaður Samkeppnissviðs Sam- keppnisstofnunar, segir að samrun- inn hafi verið tilkynntur stofnuninni í kringum 20. febrúar og stofnunin hafi þá haft mánuð til að svara er- indinu. Tæpum mánuði síðar hafi Samkeppnisstofnun sent Norður- ljósum bréf um að hún tæki sér þann þriggja mánaða aukafrest sem hún hefur samkvæmt samkeppnis- lögum til að efna til frekari rann- sóknar á samkeppnislegum áhrifum samrunans áður en tekin er end- anleg ákvörðun um hvort fallizt skuli á hann. „Það að við skulum taka okkur þennan tíma þýðir auð- vitað að við teljum hugsanlegt að þarna séu einhver ljón á veginum,“ segir Guðmundur. Með kaupum Norðurljósa á verzl- unarsviðinu renna sjö BT-verzlanir, þrjár Office 1-verzlanir og verzlun Sony Center inn í Skífuna. Á blaðamannafundi, sem haldinn var í lok janúar, kom fram hjá Ragnari Birgissyni, framkvæmda- stjóra Skífunnar, að með samrun- anum myndi velta Skífunnar tvö- faldast og verða 4,5 milljarðar króna í ár. Starfsmenn yrðu 260 talsins. Ragnar greindi frá því að Skífan yrði með um 85% markaðs- hlutdeild í tónlistar- og tölvuleikja- sölu á Íslandi eftir breytingarnar. Guðmundur segir að eitt af því sem horft sé til hjá Samkeppnis- stofnun sé að Hagar, sem er að stórum hluta í eigu Baugs Group, reki verzlunarkeðjuna Hagkaup, sem sé stórseljandi geisladiska og mynddiska, en þar sé m.a. skörun við Skífuna. Samkeppnisstofnun tekur sér lengri tíma Samruni Norður- ljósa, Fréttar og verzlunarsviðs Tæknivals áfram til skoðunar ● ÞRÍR keppinautar eru taldir standa næst því að yfirtaka bresku verslanakeðjuna Londis, að því er fram kemur í Mail on Sunday. Þetta eru Musgrave, Co-op og Thresher og talið er að nú sé stutt í að Londis gefi til kynna hver njóti stuðnings til yfirtökunnar. Londis rekur 2.000 verslanir og er í eigu kaupmanna verslananna. Gert er ráð fyrir að söluandvirði keðjunnar verði um 50 milljónir punda, eða um 6,5 milljarðar króna. Ýmsar þekktar verslanakeðjur hafa frá því í fyrra sýnt áhuga á að kaupa Londis. Þeirra á meðal Big Food Group, sem Baugur Group á rúman fimmtungshlut í, og gekk sú keðja um tíma hart fram í því máli. Styttist í sölu Londis ● Í GREIN á viðskiptasíðu sl. laug- ardag, um kostnað sem hlutabréfa- eigendur bera vegna vörslu raf- rænna verðbréfa hjá fjármála- fyrirtækjum, voru nefnd tvö dæmi um fyrirtæki sem ekkert gjald taka vegna vörslunnar; SPRON og Verð- bréfastofan. Í þennan flokk falla einnig SPH verðbréf, en þau taka ekki gjald fyrir vörslu rafrænna verðbréfa og hyggjast ekki taka slíkt gjald upp í framtíðinni, sam- kvæmt upplýsingum frá fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Ekkert vörslugjald hjá SPH ÞETTA HELST … VIÐSKIPTI SJÓNVARPSAUGLÝSINGIN „Flash Mob“ sem auglýsingastofan Gott fólk McCann gerði í samstarfi við Sagafilm fyrir Símann hefur ver- ið valin í nýjustu útgáfu breska fag- tímaritsins SHOTS þar sem áhuga- verðustu norrænu auglýsingarnar eru kynntar. Þetta er í annað sinn í 13 ára sögu SHOTS sem íslensk aug- lýsing kemst inn í þetta úrval en sjónvarpsauglýsingin Beautiful Women sem Gott fólk McCann gerði fyrir Thule bjór var valin í maíútgáfu SHOTS árið 2002. Í fréttatilkynningu frá Símanum segir að í auglýsingunni sé vísað til tískubylgju sem gengið hefur yfir Evrópu og Ameríku og felst í því að ókunnugt fólk notar fjarskipta- tæknina, s.s. SMS skilaboð eða Int- ernetið, til að fremja gjörning sam- an. Í auglýsingunni safnast hópur fólks saman í miðbæ Reykjavíkur eftirvæntingarfullur á svip. Þegar klukkan slær þrjú leggjast allir nið- ur á Ingólfstorgi nokkra stund en standa síðan upp og hver heldur sína leið. Í fréttatilkynningunni frá Síman- um kemur fram að auglýsingin hafi vakið sterk og jákvæð viðbrögð frá því hún fór fyrst í birtingu. Auglýsing Símans valin í Shots
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.