Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 17
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2004
Búnaðarnám
Starfsmenntanám á framhaldsskólastigi þar sem
áhersla er lögð á almenna náttúrufræði, búfjárrækt
og nýtingu landsins.
Námið tekur tvö ár og síðara námsárið gefst nemendum kostur á
talsvert breiðu vali til sérhæfingar í námi.
Fyrsta önnin er tekin á Hvanneyri. Síðan fara nemendur út um
land í námsdvöl í þrjá mánuði. Skólinn er í samstarfi við um 80
námsbú víða um land, þar sem stundaður er fjölbreyttur búskap-
ur, s.s. kornrækt, skógrækt og landgræðsla auk hefðbundins bú-
skapar. Að námsdvöl lokinni koma nemendur aftur að Hvanneyri
og ljúka námi sínu á tveimur önnum þar.
Fjarnám
Boðið upp á búnaðarnám í fjarnámi, jafnt einstakar
námsgreinar sem námið í heild, þannig getur hver
og einn ákveðið hversu langan tíma námið tekur.
Námið er stundað í gegn um nýtt fjarnámskerfi sem hannað var af
Nepal ehf í Borgarnesi. Landbúnaðarháskólinn er fyrsti notandi
kerfisins og hefur haft töluverð áhrif á þróun þess. Kerfið hefur
reynst mjög vel. Það boðar byltingu í samskiptum nemenda og
kennara á vefnum og við þróun þess var reynt eftir megni að
taka tillit til lélegra gagnatenginga sem enn eru sums staðar í
sveitum landsins.
Væntanlegir nemendur í búnaðarnámi þurfa að vera orðnir 18 ára, hafa lokið
grunnskólaprófi og minnst 36 einingum í grunnáföngum framhaldsskóla. Allt
nám við LBH er lánshæft hjá LÍN.
Á Hvanneyri er góð aðstaða fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra á heimavist
og nemendagörðum. Á staðnum er bæði grunnskóli og leikskóli. Útivistar– og
afþreyingarmöguleikar eru fjölbreyttir og stutt í alla þjónustu. Hvanneyri er í
um klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri - www.hvanneyri.is
Búnaðarnám á Hvanneyri
Grafarvogur | Mikil uppsveifla er í
áhuga á skákíþróttinni hjá krökk-
unum í Rimaskóla, og vann A-sveit
skólans nýlega Íslandsmót grunn-
skólasveita, þrátt fyrr að einungis
væru krakkar úr 1.–7. bekk í sveit-
inni, en mótið var fyrir krakka úr
1.–10. bekk. Í gær var svo haldið
Skákmót Rimaskóla og tefldu um 60
krakkar í skólanum þegar Morg-
unblaðið kom í heimsókn.
„Það er auðvitað gaman að vinna,
en það snýst ekki allt um það,“ seg-
ir Júlía Rós Hafþórsdóttir, 12 ára,
eftir að hún vann aðra skákina sína
á mótinu. Hún hefur teflt í um eitt
og hálft ár, og segir að það sé eig-
inlega bara allt við skákina sem sé
skemmtilegt, og ekki hægt að taka
eitthvað eitt og segja að það sé
skemmtilegra en annað.
Tafláhuginn byrjaði þegar hún
fann taflborð í skáp þegar hún
heimsótti afa sinn og ömmu í láns-
íbúð á Akureyri, og hún hefur ekki
hætt að tefla síðan. Hún hefur
keppt á nokkrum mótum en í gær
keppti hún í fyrsta skipti á Rima-
skólamóti.
Erfitt að vera góður
Ingvar Ásbjörnsson er enginn ný-
græðingur við skákborðið, en hann
hefur teflt í meira en sjö ár, sem er
meira en margir 13 ára krakkar
geta sagt. Ingvar var í sigurliði
Rimaskóla á Íslandsmótinu, og er
að vonum ánægður með árangurinn.
Hann segir að það sé gaman að
tefla, en það sé erfitt að vera góður.
Hann byrjaði, eins og systkyni hans
þrjú, að tefla við föður sinn, en nú
er hann félagi í Hróknum og fer á
æfingar hjá félaginu. Auk þess spil-
ar hann skák í tölvunni, bæði við
skákforrit og aðra skákmenn í
gegnum Netið.
Ingvar segir að þó að skák sé allt-
af skemmtileg sé eflaust síst
skemmtilegt að tefla hraðskákir, því
í þeim séu svo miklar líkur á því að
leika af sér þegar maður flýti sér of
mikið. Hann segir þó að sennilega
séu lengri skákir erfiðastar, þá hafi
andstæðingurinn meiri tíma til að
hugsa um leikina og spilið verði allt
miklu flóknara.
Rimaskóli sigraði á Íslandsmótinu í skák
Morgunblaðið/Sverrir
Tefla til sigurs: Júlía Rós Hafþórsdóttir og Ingvar Ásbjörnsson voru meðal þeirra 60 nemenda sem tóku þátt í
skákmótinu í Rimaskóla í gær og tefldu krakkarnir allir af krafti þegar ljósmyndari kom í heimsókn.
Laugardalur | Fyrstu lömb
sumarsins fæddust í gær-
morgun í Húsdýragarðinum
þegar ærin Gletta bar í
fyrsta skipti. Hún fæddi tvö
myndarleg og stór lömb með
hálftíma millibili. Fyrst kom
lítil svarthöttótt lambadrottn-
ing, en það kallast fyrsta
gimbrin sem fæðist er sauð-
burður hefst. Stuttu síðar
fæddist lambakóngurinn
svartdíldóttur og hornóttur
hrútur.
Aðstoða þurfti Glettu að-
eins með burðinn þar sem
þetta voru mjög stór lömb og
tók það verulega á, en þetta
er fyrsti burður Glettu, sem
fæddist árið 2002. Móður og
lömbum heilsast vel en gestir
Húsdýragarðsins eru beðnir
um að sýna þeim nærgætni
fyrst um sinn, enda ær mjög
passasamar þegar afkvæmi
þeirra eiga í hlut.
Fyrstu lömbin: Ærin Gletta
fæddi tvö lömb í gærmorgun
og nú þarf að finna nöfn á
þessi konunglegu lömb.
Konung-
leg lömb í
Húsdýra-
garðinum
Fossvogur | Knattspyrnufélagið
Víkingur fagnaði 96 ára afmæli fé-
lagsins sumardaginn fyrsta, en und-
anfarin ár hefur afmælishátíðin
þróast út í að vera eins konar hverf-
ishátíð með skemmtunum og veiting-
um fyrir gesti og gangandi.
„Dagurinn gekk mjög vel, allt
gekk upp. Það voru glæsilegar veit-
ingar þarna og allt klárað. Ég veit
ekki nákvæmlega hvað var mikið af
fólki, en svona um 6–700 manns
mundi ég halda,“ segir Þór Símon
Ragnarsson, formaður Víkings.
Íþrótta- og ólympíusamband Ís-
lands veitti fimm af sex deildum Vík-
inga viðurkenninguna Fyrirmyndar-
félag ÍSÍ á afmælinu. „Ég held að
þetta sé í fyrsta skipti sem félag fær
þetta því sem næst í heild sinni, það
hefur ekki gerst áður en einstakar
deildir hafa verið að fá þetta áður,“
segir Þór.
Þór segir þessa viðurkenningu
vissulega mjög jákvæða fyrir félagið.
„En ég verð líka að minna á það að
þetta er líka áminning um að standa
sig, þetta er bæði hvatning og
áminning um að halda vöku sinni.
Það er svo sem ekkert allt fengið
með þessu en þetta er góð viður-
kenning og gott fyrir félagið.“
Lára Herbjörnsdóttir og Jensína
Magnúsdóttir voru gerðar að heið-
ursfélögum í Víkingi á afmælishátíð-
inni, en þetta er í fyrsta skipti sem
konur eru gerðar að heiðursfélögum
í félaginu. Þór segir að þetta sé sér-
lega ánægjulegt og báðar konurnar
eigi þessa nafnbót meira en skilið.
Lára var heiðruð eftir áratuga
starf í félaginu, en hún hefur sótt
flestalla leiki á þeim tíma og þekkir
alla Víkinga frá því þeir komu í félag-
ið sem ungir menn. „Hún hefur verið
hálfgerð mamma og amma flestra
Víkinga á undanförnum árum,“ segir
Þór. Jensína er formaður skíðadeild-
ar félagsins og hefur starfað lengi
með Víkingi. Hún hefur setið í ýms-
um stjórnum í um 30 ár og alltaf skil-
að góðu starfi, segir Þór.
Á afmælishátíðinni var íþrótta-
maður félagsins á síðasta ári valinn,
en að þessu sinni hlaut Daníel
Hjaltason knattspyrnumaður þenn-
an heiður. Þór segir að Daníel hafi
staðið sig frábærlega vel á síðasta ári
og verið einn af lykilmönnunum í að
koma félaginu upp um deild.
Víkingar
með veislu
sumardag-
inn fyrsta
Morgunblaðið/Sverrir
Heiðursfélagi: Lára Herbjörnsdóttir (fyrir miðju) var gerð að heiðursfélaga í Víkingi á afmælishátíðinni. Jensína
Magnúsdóttir var á Andrésar Andar leikunum á Akureyri með skíðadeildinni og er því ekki með á myndinni.
Borgin hreinsuð | Árlegt vor-
hreinsunarátak Reykjavíkurborgar
hófst á laugardag og stendur fram til
3. maí. Starfsmenn gatnamálastjóra
verða á ferðinni um borgina og safna
saman garðaúrgangi sem íbúar setja
út fyrir lóðamörk sín.