Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ verða ekki nein stór- innkaup á Highbury á leik- mönnum í sumar eftir því sem knattspyrnustjóri meistaraliðs Arsenal, Arsene Wenger, segir. Ekki sé nein ástæða til að rjúka upp til handa og fóta auk þess sem félagið hafi ekki yfir ótæm- andi sjóðum að ráða, ekki síst eftir að ákveðið var að byggja nýjan keppnisvöll. Ekki sé langt síðan Arsenal reiddi fram 17 millj. punda, um 2,2 milljarða, fyrir Jose Antonio Reyes og ekki sé ástæða til að kaupa fleiri leikmenn að sinni. „Kannski notum við fáeinar milljónir punda í einn eða tvo leikmenn. Við er- um hins vegar vel settir með leikmenn, höfum efnilega og sterka leikmenn í varaliðinu sem við förum að draga meira fram í dagsljósið,“ segir Wenger. Meðal þeirra leikmanna sem Wenger nefnir eru m.a. Justin Hoyte og Philippe Senderos, sem miklar vonir eru bundnar við að slái í gegn í ensku knattspyrnunni á næstu árum. „Það er ekki útilokað að við kaupum framherja, en þó vil ég ekki slá neinu föstu í þeim efnum,“ segir Wenger. Vitað er að hann hefur fylgst grannt með hollenska sóknarmanninum Rob- in van Pierse hjá Feyenoord. Margir reikna með því að Kanu, Sylvain Wiltord og Dennis Bergkamp fari hins vegar frá ensku meisturun- um í sumar, flest bendir til þess að þeirra dagar hjá liðinu séu taldir. Engin stórinnkaup hjá ensku meisturunum í sumar HAUKAR og KA mætast þriðja árið í röð í und- anúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Í fyrra höfðu Haukar betur, 2:0 og hömpuðu svo Ís- landsmeistaratitilinum með því að leggja ÍR- inga að velli. Árið áður höfðu KA-menn hins veg- ar betur, 2:0, áður en þeir lögðu Valsmenn í úr- slitum. Á þessari leiktíð hafa Haukar og KA mæst því- vegis og þar hefur KA vinninginn. KA sigraði á heimavelli í úrvalsdeildinni, 31:30, en dæmið snerist við á Ásvöllum þar sem Haukar fögnuðu sigri, 36:34. KA sló Hauka svo út í 16-liða úrslit- unum í bikarkeppninni, vann leik liðanna á Ás- völlum, 35:34. Valur og ÍR mættust líka í undanúrslitum í fyrra og þá hafði ÍR betur, 2:0. Liðin unnu sinn leikinn hvort í viðureignum sínum í úrvalsdeild- inni í vetur. Valur hafði betur í Austurbergi, 28:27, en ÍR sigraði í Valsheimilinu, 22:21. Markatalan er því jöfn eftir leiki vetrarins. Þriðja sinn hjá Haukum og KA  ALEXANDER Petersson, íslenski Lettinn, spilar ekki meira með Düss- eldorf í þýska handboltanum á þessu tímabili. Petersson gekkst í gær und- ir aðgerð á olnboga. Hann átti að taka þátt í „stjörnuleik“ 2. deildar 12. maí en missir einnig af honum. Düssel- dorf hefur þegar tryggt sér sæti í 1. deild og vann Melsungen um helgina, 33:24.  PÁLMI Hlöðversson, handknatt- leiksmaður úr FH, hefur neyðst til að leggja skóna á hilluna, aðeins 24 ára gamall. Pálmi greindist með slæma slitgigt í mjöðm og ráðlögðu læknar honum að best væri fyrir hann að hætta handknattleiksiðkun.  SIARHEI Rutenka, stórskytta úr Evrópumeistaraliði Celje, varð markakóngur Meistaradeildar Evr- ópu í handknattleik. Hvít-Rússinn, sem er kominn með slóvenskt ríkis- fang, skoraði samals 103 mörk í keppninni. Félagi hans í liði Celje, vinstri handarskyttan Renato Vugre- nic, varð annar með 87 mörk og Dan- inn Sören Stryger, hornamaður í liði Flensburg, varð þriðji með 84 mörk.  ÓLAFUR Stefánsson hjá Ciudad Real varð í 19. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar með 56 mörk en hann varð markahæstur af leik- mönnum Ciudad Real í keppninni, skoraði einu marki meira en Egypt- inn Hussein Zaky.  ENSKA götublaðið The Sun greindi frá því í gær að Ruud Van Nistelrooy og félagi hans í liði Man- chester United, Frakkinn David Bell- ion, hefðu lent í handarlögmálum á æfingu United-liðsins á föstudaginn, það alvarlegum að Mike Phelan, einn af þjálfurum liðsins, hafi þurfti að skilja þá að. Blaðið segir að Nistel- rooy hafi neitað Phelan um að sætt- ast við Bellion og hafi í staðinn storm- að inn í búningsklefann.  NISTELROOY var ekki með í leiknum gegn Liverpool á laugardag- inn og ástæðan sem gefin var upp var sú að Hollendinginn væri meiddur í læri. The Sun trúir tæplega þessum skýringum og telur blaðið framtíð Nistelrooys í mikilli óvissu en fram- herjinn var ekki á Old Trafford að fylgjast með félögum sínum í leiknum við Liverpool. Bæði Real Madrid og Barcelona hafa haft augastað á Nistelrooy sem á fjögur og hálft ár eftir af samningi sínum við United.  NEW Jersey sló New York út í 16- liða úrslitum NBA-deildarinnar í fyrrinótt, vann þá útisigur, 100:94, og sigraði 4:0 í einvígi liðanna. Kenyon Martin skoraði 36 stig fyrir New Jersey en Stephon Marbury 31 fyrir New York.  SAN Antonio afgreiddi Memphis á sama hátt, sigraði 110:97 á útivelli og þar með 4:0. Tony Parker skoraði 29 stig fyrir San Antonio en Pau Gasol 22 fyrir Memphis. FÓLK Ég held að það sé á engan hallaðað segja að þetta séu fjögur bestu lið landsins og því er mjög gaman að þau skuli mætast á þessum stað. Það er engin spurning í mínum augum að sálfræðin kemur til með að spila stóra rullu í leikjunum. Þetta verður ekki spurn- ing um hvað menn kunna fyrir sér í íþróttinni, hversu hátt þeir geta stokkið eða skotið fast á markið held- ur hvernig þeir koma undirbúnir til leiks andlega. Það er ekki mikill munur á liðunum hvað getu varðar og því held ég að það skipti sköpum hversu vel andlega menn eru tilbúnir í þennan slag,“ sagði Sigurður við Morgunblaðið í gær. Liðsheildin sterkari hjá Val „Valsmenn hafa gert mjög góða hluti í allan vetur. Þeir hafa metn- aðarfullan þjálfara sem heldur þeim við efnið og ég held að þeir hafi betur í hörkuleikjum þar sem dagsformið kemur til með að skipta miklu svo og heimavöllurinn. Mér hefur fundist vanta ákveðinn stöðugleika í ÍR-liðið en ég tek það ekkert af ÍR-ingum að þeir eru með gott lið en mér finnst breiddin meiri hjá Val.“ Sigurður segir að Valsliðið byggist á meiri liðsheild heldur en hjá ÍR- ingum. „Ég reikna með að Markús Máni verði með Val og ég tel það mjög mikilvægt fyrir Val. Hjalti Pálmason hefur að vísu leyst hlut- verk Markúsar vel en Valsmenn þurfa á Markúsi að halda. Ef hann verður hins vegar ekki með þá ættu möguleikar ÍR-inga að aukast en í undanförnum leikjum þá hafa Vals- menn klárað sig vel án Markúsar og því skyldu þeir ekki gera það áfram? Ég get ekki séð að ÍR-ingar mættu við því að missa út einn af lykilmönn- um sínum enda er breiddin hjá þeim ekki ýkja mikil. Ég held að Valsmenn hljóti að að leggja ríka áherslu á að halda Einari Hólmgeirssyni niðri og ef þeim tekst það þá hafa þeir veikt sóknarleikinn hjá ÍR til muna. Það skilur ekki mikið á milli liðanna. Bæði spila þau góðan varnarleik en svo segir mér hugur um að Valur hafi betur í spennandi leikjum, 2:1.“ Haukar með besta mannskapinn „Þarna er á ferðinni stórskemmti- leg viðureign og líkt og hjá Val og ÍR þá spái ég því að úrslitin ráðist í oddaleik og þar hafi Haukar betur. Að mínu mati eru Haukar með besta liðið á landinu. Þeir hafa mestu breiddina og hafa í sínum röðum sig- urvegara sem er ákaflega mikilvægt. KA-liðið er mjög skemmtilegt sókn- arlið og í þeirra röðum eru afburða leikmenn eins og Arnór Atlason og- Andrius Stelmokas og þá spilar Jón- atan Magnússon stórt hlutverk með liðinu. Haukarnir munu án efa taka Arnór og Stelmokas föstum tökum og ef þeir ná að halda þeim í skefjum þá hafa þeir tekið í burtu aðalvopn KA-manna. Arnór og Stelmokas eru mennirnir á bak við meginþorra af mörkum liðsins og því tel ég víst að Haukar verði með þá í gjörgæslu. Mér fannst KA-liðið missa svolítið dampinn eftir bikarmeistaratitilinn en kannski hafa þeir verið byrjaðir að hugsa út í úrslitakeppnina.“ Sigurður telur að Haukarnir hafi fleiri betri leikmenn í sínum röðum en KA og að gamall refur í liði Hauk- anna, Halldór Ingólfsson, eigi eftir að reynast þungur á metunum. „Haukarnir hafa fleiri vopn á Sigurður Bjarnason spáir í spilin fyrir undanúrslitin á Íslandsmóti karla í handknattleik sem hefjast í kvöld Haukar og Valur leika til úrslita ÚRSLITAKEPPNIN um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla fer aftur af stað í kvöld en þá fara fram fyrstu leikirnir í undanúrslit- unum. Íslandsmeistarar Hauka taka á móti KA á Ásvöllum og í Vals- heimilinu mætast Valur og ÍR. Sá möguleiki er því fyrir hendi að Haukar og ÍR mætast annað árið í röð í úrslitunum um titilinn en Sigurður Bjarnason, fyrrum þjálfari Stjörnunnar, sem Morgunblaðið fékk til að spá í undanúrslitarimmurnar, er ekki á því. Hann spáir að bræðrafélögin Haukar og Valur bítist um titilinn. Morgunblaðið/Þorkell Arnór Atlason og Andrius Stelmokas eru í aðalhlutverkum hjá KA og hér á Arnór línusendingu á félaga sinn í leik í vetur. Guðmundur Hilmarsson skrifar Reuters Thierry Henry og Ars- ene Wenger sigursælir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.