Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 47
THIERRY Henry framherji Arsen-
al hefur verið útnefndur besti leik-
maður ensku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu annað árið í röð af
leikmönnum deildarinnar og Scott
Parker, Chelsea, varð fyrir valinu
sem besti ungi leikmaðurinn.
„Ég er mjög heppinn að leika
með liði Arsenal. Við erum eins og
stór fjölskylda sem vinnur að hlut-
unum saman. Við berjumst hver
fyrir annan, spilum sem ein liðs-
heild og ég tel mig sérlega heppinn
að hafa fengið tækifæri á að spila
með jafn frábæru liði og Arsenal
er,“ sagði Henry þegar hann tók á
móti viðurkenningu sinni en hann
hefur skorað 29 mörk í 34 leikjum í
úrvalsdeildinni og lagt mörg upp.
Frank Lampard miðvallarleik-
maður í Chelsea varð annar í kjör-
inu og kollegi hans í liði Liverpool,
Steven Gerrard, varð þriðji.
Henry, sem hefur átt frábært
tímabil, er aðeins þriðji leikmað-
urinn í sögu ensku úrvalsdeildar-
innar sem hreppir þennan eftir-
sótta titil í annað sinn en þeir Mark
Hughes og Alan Shearer hafa báðir
verið valdir í tvígang.
Valið á Scott Parker sem besta
unga leikmanninum kom mörgum á
óvart en reiknað var með að annað
hvort John Terry, Chelsea, eða
Kolo Toure, Arsenal, yrði fyrir val-
inu. Parker, sem er 23 ára gamall,
átti hins vegar mjög góðu gengi að
fagna með liði Charlton áður en
hann var seldur til Chelsea á miðju
tímabili.
Thierry Henry bestur í
Englandi annað árið í röð
SEX leikmenn úr meistaraliði
Arsenal skipa lið ársins í
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu sem tilkynnt var í
fyrrakvöld þegar útnefndir
voru leikmenn ársins í árlegu
hófi sem samtök leikmanna
standa fyrir undir lok hverrar
leiktíðar.
Liðið er þannig skipað:
Markvörður: Tim Howard,
Manchester United.
Varnarmenn: Lauren, Arsen-
al, Sol Campbell, Arsenal,
John Terry, Chelsea, Ashley
Cole, Arsenal.
Miðjumenn: Steven Gerrard,
Liverpool, Frank Lampard,
Chelsea, Patrick Vieira, Ars-
enal, Robert Pires, Arsenal.
Framherjar: Thierry Henry,
Arsenal, Ruud Van Nistelrooy,
Manchester United.
Sex úr
Arsenal í
liði ársins
HAUKUR Valtýsson, einn af
sprækari uppspilurum landsins hér á
árum áður þegar hann var á fullu
með KA, verður Öldungur næsta öld-
ungamóts blakara sem fram fer á
Akureyri í lok apríl næsta ári. Þetta
var samþykkt á þingi öldunga á
Akranesi um helgina. Mótið þar var
það 29. í röðinni þannig að næsta
Öldungamót verður númer þrjátíu.
AÐ venju var mikið um að vera á
Öldungamótinu. Áttatíu lið mættu til
leiks og leikið var í 11 mismunandi
deildum. Skagamenn tóku vel á móti
blökurum, gerðu meðal annars fína
texta við þekkt dægurlög þannig að
blakarar gátu sungið sína eigin texta
þegar hitað var upp fyrir hvern leik-
inn af öðrum. Fór þar bæjarstjór-
innn, Gísli Gíslason, fremstur í
flokki.
STÚDENTAR sigruðu í 1. deild
karla en Afturelding féll, en Mosfell-
ingar komu upp í 1. deild í fyrra.
Sæti þeirra í efstu deild tekur lið
Hrunamanna sem tapaði ekki hrinu
að þessu sinni. Bresi frá Akranesi
fellur í þriðju deild og Óðinn/Skaut-
ar tekur sæti þeirra en Tindastóll fór
niður í fjórðu deild og annað lið Óðins
kemur upp. Íþróttafélagið Flatmag-
ar lét fara vel um sig í neðsta sætinu.
HJÁ konunum sigruðu Víkings-
stúlkur í 1. deild en ÍK féll. Þróttur
Reykjavík tekur sæti ÍK en Völsung-
ur B féll í þriðju deild. Þaðan kemur
lið Aftureldingar sem vann 3. deild-
ina en Víkingar féllu í 4. deild.
HEIMAKONUR úr Bresa fögnuðu
sigri í 4. deild en ÍK-b féll í þá fimmtu
þaðan sem IDOL kemur upp um
deild en Hvannir féllu í neðstu deild-
ina. Höttur frá Egilsstöðum færist
upp up deild að ári liðnu.
KEPPT var í Öðlingaflokki kvenna
en þar voru sex lið skipuð konum
sem komnar eru yfir fertugt. HK
sigraði þar en Víkingsstúlkur
vermdu neðsta sætið.
MAGNÚS Lárusson endaði í 12.-
14. sæti á opna þýska áhugamanna-
mótinu í golfi um helgina, lék á 217
höggum (73-69-75). Örn Ævar Hjart-
arson varð í 31.-36. sæti á 226 högg-
um og Birgir Már Vigfússon í 39.-40.
sæti á 228 höggum. Gunnar Þór
Gunnarsson, Helga Rut Svanbergs-
dóttir og Helena Árnasdóttir kom-
ust ekki áfram þegar keppendum var
fækkað eftir tvo hringi.
IAN Thorpe, ólympíumeistari í
400 metra skriðsundi, fær tækifæri
til að verja titil sinn á leikunum í
Aþenu í sumar. Landi hans frá Ástr-
alíu, Craig Stevens, ákvað í gær að
gefa eftir sæti sitt og leyfa Thorpe að
keppa, en kappinn var dæmdur úr
leik í greininni á úrtökumótinu í
Ástralíu fyrir nokkru, en þá þjóf-
startaði hann og átti því ekki rétt á
að keppa í greininni á ólympíuleik-
unum.
FÓLK
hendi en KA. Ásgeir Örn og Andri
Stefan hafa vaxið gríðarlega, Pauz-
uolis getur hrokkið í mikið stuð og
Halldór Ingólfsson kemur alltaf gríð-
arlega sterkur upp þegar mest á
reynir. Halldór er svo klókur og
hann gæti hæglega unnið upp á eigin
spýtur leikinn fyrir Hauka. Halldór
kemur til með að verða Haukunum
mjög mikilvægur í þessum leikjum
sem og Birkir Ívar. Hann vill sanna
sig fyrir Ólympíuleikana og komast í
liðið sem fer á leikana sem ég tel
hann eiga skilið. Það eina sem gæti
spillt fyrir Haukum er ef þeir fara að
vanmeta andstæðinga sína. Mér
fannst örla á því hjá þeim í leikjunum
við ÍBV en ég trúi því tæplega að það
gerist hjá þeim á þessum tíma-
punkti.“
Morgunblaðið/Ómar
Vignir Svavarsson, línumaðurinn efnilegi í Haukum, svífur inn í vítateiginn og skorar í leik gegn FH.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimir Örn Árnason hefur verið drjúgur með Valsmönnum í vet-
ur og hér er hann í baráttu gegn FH-ingum í 8 liða úrslitum.
Morgunblaðið/Þorkell
Hannes Jón Jónsson, leikstjórnandi ÍR-inga, skorar í leik gegn
Haukum í úrvalsdeildinni. Hann glímir næst við Valsmenn.