Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 25 ALEXANDRA Chernyshova, sópran og Gróa Hreinsdóttir, pí- anó, halda tónleika í Salnum kl. 20 í kvöld. Dagmar Kunakova leikur á selló í laginu Mein Glöb- iges herze. Yfirskrift tónleikanna er Söngvalind, með vísan í upp- runa laganna. Þetta eru fjórðu og síðustu tónleikar þeirra Alex- öndru og Gróu að þessu sinni. Efnisskráin samanstendur af tólf fjölbreyttum lögum á átta tungumálum. Níu aríur úr mis- munandi óperum, tvö rómantísk lög og eitt þjóðlag. Dagskráin skiptist í tvo hluta, fyrri hlutinn byggist upp af rómantískum lög- um og aríum úr kirkjutónlist og óperum, í seinni hlutanum eru nútímalegri aríur. Alexandra er fædd í Kíev, Úkraínu, árið 1979. Hún lauk söngnámi frá tónlistaháskólanum Glier í Kíev árið 1998 og var ein- söngvari með Úkraínsku sinfón- íuhljómsveitinni í Kíev til ársins 2000. Á árunum 1999 til 2003 stundaði hún söngnám í akademí- unni Nezdanova, Odessu / Úkra- ínu, kennari hennar þar var pró- fessor Galina Polivanova. Auk þess að ljúka þessu námi þá út- skrifaðist hún líka úr háskóla á sama tíma þar sem áherslan var á tungumál, ensku og spænsku, og heimsbókmenntir. Árið 2002 var Alexandra valin besta nýja óp- eruröddin í keppninni „Nýtt nafn í Úkraínu“. Haustið 2003 söng hún einsöng með þekktum karla- kór í Úkraínu, Boyan. Gróa Hreinsdóttir, píanóleikari er fædd árið 1956. Hún lauk pí- anókennaraprófi og prófi í kór- stjórn frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1982. Gróa stund- aði einnig söngnám við tónlistar- skólana í Keflavík og Njarðvík og Tónlistarskólann í Reykjavík. Gróa hefur verið organisti við Ytri-Njarðvíkurkirkju í níu ár og stjórnað mörgum kórum. Tólf lög á átta tungumálum Gróa Hreinsdóttir og Alexandra Chernyshova. FRUMRAUN Páls Hersteinsson- ar í leikritun, Yndislegt kvöld, vekur þá hugsun að gamanleiksformið virðist ekki höfða sérstaklega til höf- unda sem eru að stíga sín fyrstu skref. Vafalaust eru á þessu margar skýringar, og ein af þeim er áreið- anlega sú að oft liggur slíkum höf- undum svo mikið á hjarta að þeir telja erindi sínu betur borgið í öðru formi. Einnig gæti ég trúað að margir vegir sér við að velja form sem gefur jafn afdráttarlaust til kynna hvort það heppnast eður ei, gamanleikur sem uppsker ekki hlát- ur er í einhverjum skilningi mis- heppnaður og allir vita það, þar á meðal höfundurinn. En Páll hefur hér skrifað næsta hefðbundinn gam- anleik og sækir óhikað í sígild far- saminni til að sýna okkur siðferð- islegt gjaldþrot nútímamannsins og skemmta um leið. Og það var mikið hlegið í Iðnó á frumsýningardaginn. Yndislegt kvöld segir frá matar- boði hjá lýtalækni og konu hans, sem bjóða til sín æskuvini læknisins og konu hans, sem nýlega hafa lent í fjárhagsörðugleikum. Smám saman dregur Páll upp mynd af þessu fólki og sýnir okkur á ísmeygilegan hátt galla þess og sið- ferðisbresti. Fyrri hluti verksins er ákaf- lega vel skrifaður í tíð- indaleysi sínu og mikið um hnitmiðuð afhjúp- andi tilsvör sem upp- skáru hlátur um leið og þau komu innni- haldinu til skila. Í síð- ari hlutanum upphefst síðan atburðarás, pín- legar játningar þegar vínið tekur völdin af einni persón- unni, ákaflega fyrirsjáanlegt og op- inskátt framhjáhald og í framhaldi af því fjárkúgun og mögulega morð. Páll teflir hér á tæpasta vað með ólíkindalega atburðina og sækir kannski dálítið djúpt í klisjubankann og síðari hlutinn jafnast ekki á við kynningu persónanna í uppbygg- ingu og fyndni. Og mögulega skýrð- ist að einhverju leyti fyrir mér af hverju gamanleikjaformið er ekki meira nýtt af höfundum með erindi. Stærsta driffjöðrin í farsavélinni, skömmin, er á þessum síðustu og verstu tímum orðin næsta slök í okk- ur. Og því verða uppátæki persón- anna í Yndislegu kvöldi næsta ótrú- verðug eftir þá mynd sem Páll hefur dregið upp af þessu fólki. Allt um það er þetta býsna kraft- mikil og skemmtileg frumraun hjá Páli, og ástæða til að óska eftir frek- ari glímu við formið frá hans hendi. Uppsetning Sigrúnar Sólar er lát- laus og hófstillt, sem er aðdáunar- vert í ljósi efnisins, en hennar hlutverk er vitaskuld fyrst og fremst að koma hinu nýja verki óbrjáluðu til skila, slíkt er eðli höf- undaleikhússins. Reyndar gera hún og Hjalti Rögnvaldsson sem læknirinn smá- vægilegar tilraunir með stílfærð og óraunsæisleg leikbrögð í fyrri hluta verksins sem takast vel og eru í fullu samræmi við stíl textans í fyrri hlutan- um. Staðsetningar og notkun rýmisins er áreynslulaus og skýr, leikmynd vel heppnuð. Tónlist- arnotkun þótti mér á hinn bóginn ill- þolandi. Algerlega misráðið að setja samkvæmistónlistarmottu undir samtöl persónanna sem gerði ekki annað en draga mátt úr mikilvægum augnablikum og trufla hlustun og einbeitingu áhorfenda. Leikarahópurinn stendur sig með prýði. Hjalti er sannfærandi sem lýtalæknisskrímslið og Margrét Ákadóttir nýtti sína næmu kómísku tæmingu vel sem hin hrjáða eigin- kona. Árni Pétur Guðjónsson dró upp hlýja mynd af hinum ráðalausa fóstbróður og Rósa Guðný Þórsdótt- ir er sem fyrr á heimavelli í að lýsa ráðríkum eiginkonum slíkra manna. Yndislegt kvöld er skemmtilegt verk sem þrátt fyrir annmarka sína er vel þess virði að sjá, tímabær til- raun til að skrifa gamanleik um ástandið á okkur. Heimboð LEIKLIST Höfundaleikhús Dramasmiðjunnar Höfundur: Páll Hersteinsson, leikstjóri: Sigrún Sól Ólafsdóttir, leikmynd og bún- ingar: Rebekka A. Ingimundardóttir. Leikendur: Hjalti Rögnvaldsson, Margrét Ákadóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson. Iðnó sunnudaginn 18. apríl. YNDISLEGT KVÖLD Þorgeir Tryggvason Páll Hersteinsson GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is O D D I H Ö N N UN K 88 12 Skólavörðustígur 8, 101 Reykjavík - Pöntunarsími 562 2772 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í maí á hreint ótrúlegu verði, en nú er sumarið komið á vinsælustu áfanga- stöðum Evrópu og aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á fegursta tíma ársins. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Tryggðu þér síðustu sætin í maí Sólar- tilboð í maí frá kr. 29.950 með Heimsferðum Mallorca Verð frá kr. 37.995 26. maí - 19 sæti 2. júní - 27 sæti M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, vikuferð, Playamar. Netverð. Benidorm Verð frá kr. 29.995 19. maí - 21 sæti M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð. Netverð. Rimini Verð frá kr. 39.995 20. maí - 11 sæti 27. maí - 23 sæti M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, vikuferð, stökktutilboð. Netverð. Costa del Sol Verð frá kr. 39.995 19. maí - 17 sæti 26. maí - uppselt Flugsæti til Costa del Sol 19. maí Barcelona Verð frá kr. 29.950 20. maí - 23 sæti 27. maí - 21 sæti Flugsæti með sköttum. Portúgal Verð frá kr. 29.990 26. maí - 11 sæti 2. júní - 21 sæti 9. júní - uppselt Flugsæti með sköttum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.