Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 20
AUSTURLAND
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vestmannaeyjar | Steinunn Ein-
arsdóttir, myndlistarmaður, hefur
verið valin bæjarlistamaður Vest-
mannaeyja. Tilkynnt var um þetta á
sumardaginn fyrsta. Þetta var í
fjórða sinn sem bæjarlistamaður
Vestmannaeyja er valinn en áður
höfðu myndlistarmennirnir Páll
Viðar Kristinsson og Bjarni Ólafur
Magnússon og tónlistarmaðurinn
Ósvaldur Freyr Guðjónsson borið
titilinn.
Steinunn fæddist í Vestmanna-
eyjum árið 1940 og ólst þar upp.
Hún fluttist um þrítugt til Ástralíu
en þar nam hún við listaskólann
T.A.F.E og útskrifaðist þaðan sem
listamaður í Visual art and design.
Hún hefur haldið fimm einkasýn-
ingar en auk þess tekið þátt í sam-
sýningum bæði á Íslandi og í Ástr-
alíu. Steinunn hefur unnið ötullega
að eflingu myndlistar, bæði í Vest-
mannaeyjum og á Höfn og haldið
mörg námskeið í greininni. Þá fékk
hún viðurkenningu frá menninga-
málanefnd Hornafjarðar árið 2002
fyrir störf sín.
Auk þess að velja Bæjarlista-
mann ársins var í fyrsta sinn valinn
Heiðurslistamaður Vestmannaeyja-
bæjar og kom það í hlut Ragnars
Engilbertssonar, myndlistarmanns.
Ragnar fæddist árið 1924 og er
sonur Engilberts Gíslasonar, list-
málara og Guðrúnar Sigurðardótt-
ur. Ragnar stundaði nám við Kun-
stakademíuna í Kaupmannahöfn
árin 1948-1951 og hefur unnið öt-
ullega að list sinni. Eftir hann ligg-
ur mikill fjöldi listaverka en hann
þykir einkar snjall í meðferð vatns-
lita og einnig eru olíumálverk hans
vel þekkt.
Steinunn valin
bæjarlista-
maður í Eyjum
Steinunn
Einarsdóttir
Ragnar
Engilbertsson
Búðardalur | Dalamenn héldu upp á sumarkomuna með því að hesteigenda-
félagið í Búðardal stóð fyrir árlegri firmakeppni. Var keppt í þremur flokk-
um, þ.e. barna-, kvenna-, og karlaflokki. Úrslit fóru þannig að í barnaflokki
sigraði Sigurður Bjarni Gilbertsson sem keppti fyrir Hóftún 1b, í kvenna-
flokki sigraði Jónfríður Friðjónsdóttir sem keppti fyrir Dvalarheimilið Fells-
enda og í karlaflokki sigraði Skjöldur Orri Skjaldarsson sem keppti fyrir
Leigubíl Sigurðar. Pollaflokkur var fyrir þau allra yngstu og var teymt undir
þeim á vellinum og fengu allir viðurkenningu. Á eftir komu svo allir saman og
grilluðu pylsur.
Hestamenn heilsa sumri
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
Hestamenn mæta til leiks í Búðardal.
Hrunamannahreppur | Það var sannarlega kraftmikill söngur sem hljómaði í
Félagsheimilinu á Flúðum laugardagskvöldið 24. apríl. Karlakór Hreppa-
manna, sem aðeins er sjö ára, hélt sína árlegu vortónleika. Kórinn telur nú
hálfan fimmta tug félaga og þeir létu svo sannarlega sönginn hljóma. Ein-
söngvari með kórnum var Ólafur Kjartan Sigurðarson óperusöngvari en
hann söng einnig nokkur lög einn. Hjónin Edit Molnár stjórnandi og Miklós
Dalmay undirleikari hafa gert frábæra hluti með stofnun og stjórnun á þess-
um unga kór.
Enn gefst fólki kostur á að hlýða á þessa söngglöðu uppsveitarmenn Ár-
nessýslu en lokatónleikar Karlakórs Hreppamanna verða í kvöld í Lang-
holtskirkju í Reykjavík og hefjast kl.20.
Fágaður söngur á Flúðum
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hluti Karlakórs Hreppamanna ásamt Ólafi Kjartani Sigurðarsyni ein-
söngvara og Edit Molnár stjórnanda.
LANDIÐ
Laugavegi 32 sími 561 0075
Egilsstaðir | Mikill áhugi virðist
vera á mannlífs- og atvinnusýning-
unni Austurland 2004, sem haldin
verður á Egilsstöðum 10.–13. júní
nk. Sé litið til þess fjölda sýnenda
sem þegar hefur bókað sýningar-
pláss, verður sýningin sú umfangs-
mesta sem haldin hefur verið í fjórð-
ungnum. Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, og Dorrit Mouss-
aieff forsetafrú verða heiðursgestir
sýningarinnar. Nánast mun fullbók-
að í sýningaraðstöðu og eru það ein-
staklingar, fyrirtæki og stofnanir á
Austurlandi sem taka þátt. Talið er
að sýningin muni velta á milli átta og
tíu milljónum króna.
Yfir hundrað sýnendur
„Sýningin á að endurspegla þver-
skurð mannlífs og atvinnulífs á Aust-
urlandi,“ segir Jóhanna Kristín
Malmquist, kynningarstjóri sýning-
arinnar. „Áherslan er lögð á fjöl-
breytni Austurlands til búsetu og
starfa. Við höfum úr að spila 1.200
fermetra innisvæði í Íþróttamiðstöð-
inni á Egilsstöðum, samtengdu 300
fermetra í sýningartjaldi og 500 fer-
metra útisvæði. Allt þetta svæði er
upppantað og um 100 sýnendur hafa
staðfest þátttöku. Færri komast að
en vilja og á þriðja tug fyrirtækja er
á biðlista eftir plássi.“
Að sögn Jóhönnu mun Síminn
setja nýja, svokallaða Hot Spot-net-
tengingu upp á sýningarsvæðinu og
er það fyrsta þráðlausa nettenging
sem sett verður upp á Austurlandi.
Útheimtir það að þeir sem vilja nota
þjónustuna hafi þráðlaust mótald í
tölvum sínum.
Fjórðungurinn iðar af lífi
Aðstendendur Austurlands 2004
vonast til að í það minnsta átta þús-
und manns leggi leið sína á sýn-
inguna og segja ýmislegt verða gert
til þess að fólk úr öðrum landsfjórð-
ungum sjái ástæðu til að leggja leið
sína austur. Listamenn og eigendur
samkomu- og veitingastaða í fjórð-
ungnum hafa verið hvattir til að efna
til fjölbreyttra menningarviðburða
meðan á sýningarhaldi stendur og
stefnt er að því að bjóða upp á nám-
skeið, fræðsluerindi eða litlar ráð-
stefnur í samstarfi við fyrirtæki eða
stofnanir sem jafnframt eru þátttak-
endur í sýningunni.
Í tilefni af sýningunni verður gefið
út sérstakt blað um Austurland og
verður því dreift með Morgun-
blaðinu og á valda staði um land allt.
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands og Athygli á Austur-
landi sjá um framkvæmd Austur-
lands 2004. Á vef sýningarinnar,
www.austurland2004.is, má finna
frekari upplýsingar um sýninguna.
Mikill áhugi á mannlífs- og atvinnulífssýningunni
Austurland 2004 sem haldin verður í júní
Á þriðja tug fyrirtækja á
biðlista eftir sýningarplássi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Mikill áhugi á sýningunni Austurland 2004: Haldinn var fjölsóttur kynning-
arfundur á Reyðarfirði, þar sem sýningarhaldið var kynnt.
Egilsstaðir | „Við höfum náð því
að koma gamla draumnum okkar
um stóriðju á Austurlandi í gegn
og þess vegna er auðvitað allt að
gerast á Austurlandi. Því eru
Austfirðingar almennt í dag afar
stoltir og við erum að fá algerlega
ný verkefni“ sagði Einar Már Sig-
urðarson þingmaður á opnum
landsmálafundi Samfylkingarinnar
á Egilsstöðum um helgina.
Einar Már sagðist telja að verið
væri að snúa byggðaþróun við á
Austurlandi, en lýsti þungum
áhyggjum af því að stjórnvöld
sinntu því ekki að efla mennta- og
heilbrigðismál fjórðungsins til
samræmis við aukinn fólksfjölda
og uppbyggingu á svæðinu.
„Menntastofnanir hér eystra
þurfa að vera undir það búnar að
taka við auknum nemendafjölda,
bæta námsframboð og gera það
fjölbreyttara“ sagði Einar Már í
framsögu sinni. „Heilbrigðisstofn-
anir verða að undirbúa að taka við
fleira fólki og þjónusta það. Þessar
stofnanir eru nú allar í fjárhags-
legri klemmu sem ríkið bregst
ekki við. Heilbrigðisstofnun Aust-
urlands safnaði miklum skuldahala
á síðasta ári og það stefnir ná-
kvæmlega í hið sama á þessu ári.
Við blasir að stofnunin mun fá
aukin verkefni, en engar ráðstaf-
anir eru gerðar til að mæta því af
hálfu hins opinbera.
Svo annað dæmi sé tekið þá var
búið að undirbúa á Egilsstöðum
stækkun Menntaskólans, m.a. til
að mæta auknum nemendafjölda.
Tómas Ingi Olrich fyrrverandi
menntamálaráðherra skrifaði í
sinni embættistíð undir samning
um stækkun ME. Þegar upp var
staðið eru engir peningar til þess
að tryggja þetta verk, vegna hinna
gömlu fornu regla, sem ég kannast
við frá því að ég var að stíga mín
fyrstu skref í starfi í Neskaupstað
varðandi uppbyggingu Verk-
menntaskólans. Úrelt „norm“ sem
voru ákveðin í ráðuneytinu fyrir
áratugum og eru enn við lýði.
Þrátt fyrir að í lögum segi að
skipta eigi kostnaði 60/40 milli rík-
is og sveitarfélags er raunveruleik-
inn allur annar. Þetta endaði á því
að sveitarfélagið treysti sér ekki
til að fara í þessa framkvæmd,
vegna þess að ríkið vildi ekki
borga sína hlutdeild í verkinu.
Svona getum við því miður farið
yfir sviðið og séð að ríkisstjórnin
stendur ekki við það sem ætlast er
til af henni í þessum málum.
Því er því mikil hætta á að við
fáum ekki það út úr þessu mikla
verkefni sem til var ætlast.“
Heilbrigðis- og skólamál rædd á
landsmálafundi Samfylkingarinnar
Stofnanir í
fjárhagslegri
klemmu
www.thjodmenning.isVEÐUR
mbl.is