Morgunblaðið - 27.04.2004, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.04.2004, Qupperneq 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN S. STEINGRÍMSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn 28. apríl kl. 15.00. Gunnhildur Magnúsdóttir, Árni Ásgeirsson, Gísli Jón Magnússon, Helga Bernhard, barnabörn og langömmubarn. Móðir okkar, GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR, Skúlagötu 72, Reykjavík, sem lést föstudaginn 23. apríl, verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 28. apríl kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur Vignir Albertsson, Sesselja Margrét Albertsdóttir, Guðný Þóra Böðvarsdóttir, Alberta Guðrún Böðvarsdóttir. Elskuleg systir mín, INGIRÍÐUR ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR, Breiðagerði 9, Reykjavík, andaðist á Landspítala Fossvogi laugardaginn 24. apríl. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Kjartan Ólafsson. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns og bróður, PÉTURS PÉTURSSONAR rennismiðs, Skúlagötu 20. Fyrir hönd aðstandenda, Lilja Hannesdóttir, Hörður Pétursson. HREGGVIÐUR DANÍELSSON frá Bjargshóli, Miðfirði, Vestur-Húnavatnssýslu, síðast til heimilis á Ásbraut 9, Kópavogi, lést á Landspítalanum laugardaginn 24. apríl. Fyrir hönd vandamanna, Þórir Daníelsson. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður míns, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR, Stóragerði 23, Reykjavík. Kristín Dagný Magnúsdóttir, Guðmundur Sigurvinsson, Júlíana Guðmundsdóttir, Sigurður Árni Reynisson, Anna Linda Guðmundsdóttir, Björn Víðisson, Magnús Guðmundsson Garbriela Líf Sigurðardóttir, Dagur Sigurðarson. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA SVEINSDÓTTIR sjúkraliði, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 17. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sveinn Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, tengdadætur og barnabörn. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, GUÐMANN HEIÐMAR, lést á heimili sínu sunnudaginn 25. apríl. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju föstu- daginn 30. apríl kl. 13.00. Gunnar Þór Guðmannsson, Sigrún A. Jónsdóttir, Katrín Ösp Gunnarsdóttir, Björn Þór Gunnarsson. MARÍA BJARNASON frá Bakka, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Skálahlíð, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar sunnudaginn 25. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Fjölskylda hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og aðstoð við útför ÍSAKS ÁRNA ÁRNASONAR. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki fyrir alúð og umhyggju í veikindum hans. Rögnvaldur Árnason, Sigurlína Árnadóttir, Ragnhildur Árnadóttir, Trausti Helgi Árnason og aðrir vandamenn. ✝ Einar Arnaldsfæddist í Reykja- vík 6. febrúar árið 1950. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi hinn 18. apríl síðastliðinn. Einar var sonur hjónanna Ásdísar Andrésdótt- ur Arnalds frá Neðra-Hálsi í Kjós og Sigurðar Arn- alds, stórkaupmanns og útgefanda (d. 1998). Bræður Ein- ars eru fimm. Al- bræður Einars eru Sigurður Stein- grímur Arnalds, kvæntur Sigríði Maríu Sigurðardóttur, Andrés Arnalds, kvæntur Guðrúnu Pálma- dóttur, og Ólafur Arnalds, kvænt- ur Ásu L. Aradóttur. Synir Sigurð- ar Arnalds af fyrra hjónabandi hans eru Jón L. Arnalds, kvæntur Ellen Júlíusdóttir, og Ragnar Arn- alds, kvæntur Hallveigu Thorla- cius. orðabókarinnar (útg. 1990) og var ritstjóri bókaflokksins Reykjavík - Sögustaður við Sund í samvinnu við Pál Líndal sem var höfundur fyrstu þriggja bindanna en Einar var höfundur fjórða og síðasta bindisins sem kom út 1989. Hann var einnig ritstjóri bókarinnar Ak- ureyri, höfuðborg hins bjarta norðurs eftir Steindór Steindórs- son og Einar ritaði bókina Stýri- mannaskólinn í Reykjavík í 100 ár. Í framhaldi af störfum Ásgeirs S. Björnssonar og Eiríks Jónssonar sá hann ásamt Eiríki um gerð Lyk- ilbóka I . og II, nafna- og atriða- skráa fyrir Annála 1400 – 1800, sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út 1998 - 2002. Einar ritaði bókina Mannslíf í húfi, sögu Slysa- varnafélags Íslands sem kom út 2001 og var að undirbúa sögu björgunarsveita og slysavarna- starfs á vegum Slysavarnafélags- ins Landsbjargar þegar hann veiktist á síðastliðnu hausti. Árið 2001 sendi Einar frá sér ljóðabók sem nefndist Lífsvilji en kveikjan að henni var reynsla Einars af krabbameinsmeðferð fáum árum áður. Útför Einars verður gerð frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Einar kvæntist Sig- rúnu Jóhannsdóttur sjúkraþjálfara (f. 1952) árið 1975. Hún er dóttir Klöru Tryggvason og Jó- hanns Tryggvasonar tónlistarkennara (d. 1997), en þau voru lengi búsett í Eng- landi. Sigrún og Einar eignuðust þrjár dæt- ur, þær Dagnýju Arn- alds tónlistarkennara (f. 1976); unnusti hennar er Kristján Torfi Einarsson, Ólöfu Helgu Arnalds tónlistarmann (f. 1980) og Klöru Jóhönnu Arnalds, menntaskólanema (f. 1988). Einar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1970 og BA-prófi í ensku og sögu frá Háskóla Íslands árið 1980. Hann réðst til starfa hjá Bókaút- gáfunni Erni og Örlygi og vann við gerð Ensk-íslenskrar orðabókar (útg. 1984) og Íslensku alfræði- Hörðu stríði er lokið og Einar Arn- alds, minn góði og fallegi mágur, hef- ur fengið frið í dauðanum. Þeir voru búnir að horfast í augu oft og lengi og við héldum að lífið ætlaði að sigra. Einar leit aldrei undan heldur lýsti sjálfur þessu einvígi af einstöku æðruleysi og einlægni í ljóðabók sinni „Lífsvilja“ sem kom út fyrir þremur árum: Óvissa Hún kitlar hjartað lengi, skelfingin, uns kjarkur grípur þéttingstaki um hönd hennar. Lífið rígheldur í sitt svo það rjúki ekki út í buskann, eins og karamellubréf í hvössum vindi. Nú er óvissunni lokið. Vindhviðan var of hvöss. Lífið varð að sleppa tak- inu og við sitjum eftir hnípin og hljóð. Einar var mörgum kostum búinn. Hann var hlýr og glaður, skemmti- legur, vel lesinn og lifandi. Hann var fínlegur og viðkvæmur en um leið sterkur og traustur. Ein dýrmætasta gjöf sem hægt er að gefa öðrum er tími. Þó er þetta sú gjöf sem fæstir tíma að gefa. Við er- um að flýta okkur svo mikið. En Ein- ar hafði alltaf nógan tíma. Hann gaf sér tíma til að passa börnin sín meðan þau voru lítil og hlusta á þau eftir að þau uxu úr grasi, til að ganga í vinn- una, til að hlusta á tónlist, temja hesta, vera með fjölskyldunni, yrkja ljóð og semja sögur, skreppa í heim- sókn til okkar án tilefnis og drekka te- bolla, planta trjám og gera við sum- arbústaðinn. Oft fékk ég hann til að lesa yfir það sem ég var að bauka við að skrifa og hann gerði það af slíkri kostgæfni að ég mun alltaf búa að því sem hann ráðlagði mér. Ég fann að hann hafði gefið sér tíma til að lesa af fullri at- hygli áður en hann gerði sínar at- hugasemdir. Að lokum þakka ég Einari fyrir samfylgdina og vona að hann lesi þetta að lokum yfir öxlina á mér og þurfi ekki að krota mikið út á spáss- íuna. Hallveig Thorlacius. Sem þá á vori sunna hlý sólgeislum lauka nærir og fífilkollum innan í óvöknuð blómin hrærir: svo vermir fögur minning manns margt eitt smáblóm um sveitir lands, frjóvgar og blessun færir. (Jónas Hallgr.) Þetta ljóð er um vorið og birta vors- ins lýsir best þeim minningum sem ég geymi um mág minn Einar. Efst er í huga einstaklega fallegt bros og síðan það ljúfa í fari hans sem var svo eðlislægt. Fyrir hönd fjölskyldu minnar þakka ég fyrir samfylgdina. Sigríður María. Þegar ég fæddist varst þú 18 ára, Einar minn. En ég man auðvitað ekk- ert eftir þér þá sem unglingi. Ég man fyrst eftir þér þegar þú varst orðinn ungur maður og skriðinn yfir tvítugt. Það sem er greypt í barnsminnið hvíl- EINAR ARNALDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.