Morgunblaðið - 27.04.2004, Page 43
DYRAVERÐIR veit-
ingastaðar í miðborg
Reykjavíkur óskuðu eft-
ir aðstoð lögreglu um
helgina vegna manns sem þeir
grunuðu um að vera með vopn á
sér, inni á staðnum. Í ljós kom að
maðurinn var með eina öxi, þrjá
hnífa og skrúfjárn innanklæða.
Lögreglan segir, að maðurinn muni
ekki hafa ógnað neinum með þess-
um vopnum og gaf hann þær skýr-
ingar að hann hefði ætlað til vinnu
um morguninn og þurft þess vegna
að hafa vopnin með sér.
Þetta kemur m.a. fram í yfirliti
yfir helstu verkefni lögreglunnar í
Reykjavík eftir helgina sem var
fremur róleg og segir lögreglan
það til marks, að aðeins einn mað-
ur hafi verið í fangageymslu á
sunnudagsmorguninn en sá hafði
beðið um gistingu vegna húsnæð-
isleysis.
Um helgina var tilkynnt um 12
innbrot, 15 þjófnaði og 6 sinnum
var tilkynnt um skemmdarverk. Þá
var tilkynnt um 27 umferðaróhöpp
og var í 5 þeirra um minniháttar
meiðsli að ræða. 89 ökumenn voru
kærðir fyrir of hraðan akstur og 8
voru grunaðir um að vera ölvaðir
við aksturinn.
Eftir hádegi á föstudaginn var
bifreið stöðvuð á hafnarsvæðinu
vegna gruns um að þar væru fíkni-
efni innanborðs. Reyndist svo vera
og voru þrír menn færðir á lög-
reglustöð til skýrslutöku. Nokkur
önnur fíkniefnamál komu upp um
helgina, þar sem lagt var hald á
fíkniefni.
Á föstudagskvöldið var maður
handtekinn á Víðimel. Maðurinn
hafði skömmu áður stolið kassa af
humri úr geymslu á Hótel Sögu.
Starfsmaður hótelsins varð ferða
mannsins var og fylgdi honum eftir
þar til lögreglu bar að. Kom þá í
ljós að lögreglumennirnir könn-
uðust allvel við manninn.
Laust fyrir miðnætti á föstudag-
inn urðu lögreglumenn vitni að því
er ökumaður flautaði á gangandi
vegfaranda sem var kominn miðja
vegu út á merkta gangbraut. Veg-
farandinn var að forða sér en öku-
maðurinn ók viðstöðulaust áfram.
Lögreglumennirnir stöðvuðu akst-
ur ökumannsins sem reyndist 17
ára og kærðu hann fyrir að fara
ekki að umferðarlögum.
Fyrri part nætur aðfaranótt
laugardags sáu lögreglumenn sem
fylgdust með eftirlitsmyndavélum í
miðborginni að maður var sleginn
niður og síðan sparkað í hann. Lög-
reglumenn handtóku árásarmann-
inn og færðu á lögreglustöð en
flytja varð þann sem fyrir árásinni
varð á slysadeild.
Börnin stungu afa af
Fyrir hádegi á laugardag var til-
kynnt um að stolið hefði verið
svörtum og bláum 18 feta rörabát
af Sea Rover gerð með 70 hestafla
Suzuki-fjórgengisvél sem stóð á
gráum tveggja hásinga vagni við
Eyjaslóð. Báturinn og vagninn
fundust síðan í Hafnarfirði en þá
var búið að taka vélina úr bátnum.
Nú fer sá tími í hönd að notkun
reiðhjóla eykst til muna. Á sunnu-
dag var tilkynnt um að tvö börn,
þriggja og hálfs árs og fjögurra ára
væru týnd. Þau höfðu farið út að
hjóla með afa sínum en hjólað það
greitt að afinn sem er hjartveikur
gat ekki fylgt þeim eftir. Börnin
fundust skömmu síðar heil á húfi.
Þá var sama dag tilkynnt um
óhapp þar sem hjón höfðu farið út
að hjóla en ekki vildi betur til en
svo að hjólin rákust saman. Við það
féll konan af hjólinu og slasaðist á
hné og varð að flytja hana á slysa-
deild.
Helstu verkefni lögreglunnar
Með öxi innanklæða
á veitingastað
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 43
Fjölskyldan saman í fallegum bæ!
Velkomin í Stykkishólm!
Frábær sundlaug - golf - sumartónleikar - byggðasafn - sjóferðir - kajak - einstakt umhverfi
Vertu flott
Vertu töfrandi
Nýr KIKO augnháralitur
(logo Stella)
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfumsendum
www.stella.is
Bankastræti 3, • sími 551 3635
Póstkröfusendum• www.stella.is
Nýr augnháralitur
Vertu flott
Vertu töfrandi
Húsbílar, fellihýsi og tjaldvagnar
Nú er sumarið komið og tími ferðalaga hafinn.
Bílar 5. maí verður helgað umfjöllun um
húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna.
Auglýsendur!
Allar stærðir og gerðir sérauglýsinga á góðu verði!
Auglýsendur pantið fyrir
kl. 16 mánudaginn 3. maí
Fulltrúar auglýsingadeildar veita þér
allar upplýsingar um auglýsingamöguleika og verð.
Auglýsingadeild, sími 569 1111 - Netfang augl@mbl.isb
íl
ar
BERGÞÓRA Þórsdóttir vann í SMS
leik Sumarferða og Morgunblaðs-
ins vikuferð fyrir þrjá til La Cala
De Finestrat á Spáni með gistingu á
Gran hótel Bali. Þorsteinn Guðjóns-
son afhenti vinninginn fyrir hönd
Sumarferða og er hann á myndinni
ásamt Bergþóru Þórsdóttur.
Vinningshafi í sms-leik
STJÓRN kjördæmisráðs Samfylk-
ingarinnar í norðausturkjördæmi
samþykkti tvær ályktanir á fundi sín-
um á Egilsstöðum 24. apríl sl.:
„Stjórn kjördæmisráðs Samfylk-
ingarinnar í norðausturkjördæmi lýs-
ir andstöðu sinni við fjöldatakmark-
anir í Háskólanum á Akureyri og
bendir á mikilvægi háskólamenntun-
ar á landsbyggðinni sem kjölfestu at-
vinnulífs. Jafnframt lýsir stjórnin
fullri ábyrgð á hendur stjórnvöldum í
þessu máli.
Stjórn kjördæmisráðs Samfylking-
arinnar í norðausturkjördæmi lýsir
áhyggjum sínum af ástandi atvinnu-
mála vegna stöðu kísiliðjunnar við
Mývatn. Lýsir stjórnin fullum stuðn-
ingi við uppbyggingu fyrirhugaðrar
kísilduftverksmiðju við Mývatn.“
Andstaða
við fjölda-
takmarkanir
Valborgarmessuhátíð Sænska fé-
lagsins Sænska félagið heldur upp
á Valborgarmessu föstudaginn 30.
apríl í Jósölum, veitingahúsi Íshesta
í Hafnarfirði, með kvöldverði,
sænskum vorsöngvum og varðeldi.
Bertil Jobeus, sendiherra Svía á Ís-
landi, heldur hátíðarræðu á Valborg-
armessukvöldi Sænska félagsins.
Nýlega hafa Íslenska sænska félagið
og Svenska föreningen, sem starfað
hafa á Íslandi um hálfrar aldar
skeið, verið sameinuð undir merkj-
um Sænska félagsins. Hægt er að
tilkynna þátttöku á heimasíðu fé-
lagsins: www.svenskaforeningen.is
Á NÆSTUNNI