Morgunblaðið - 27.04.2004, Qupperneq 45
Á MORGUN, miðvikudaginn 28.
apríl kl. 20.00, hefst í Leik-
mannaskóla kirkjunnar vornám-
skeið sem nefnist Er líf eftir
dauðann? og fjallar um Biblíuna,
dauðann og eilífðina. Kennari á
námskeiðinu er sr. Þórhallur
Heimisson prestur í Hafnarfjarð-
arkirkju.
Viðfangsefni námskeiðsins er
þróun og mótun Biblíunnar og
hugmynda hennar um dauðann
og eilíft líf. Einnig verða þessar
hugmyndir bornar saman við
kenningar um endurholdgun,
spíritisma og efahyggju. Að end-
ingu verður fjallað um boðskap
Jesú um dauðann og eilífðina.
Námskeiðið fer fram í Grens-
áskirkju og hefst miðvikudaginn
28. apríl, kl. 20.00. Kennt verður
í þrjú skipti, tvo tíma í senn.
Skráning fer fram í síma 535
1500 eða á vef Leikmannaskól-
ans, www.kirkjan.is/leik-
mannaskoli.
Morgunblaðið/Arnaldur
Grensáskirkja
Biblían, dauð-
inn og eilífðin
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sjálfstæð/ur og
sjálfri/sjálfum þér nóg/ur. Á
sama tíma ertu viðkvæm/ur
fyrir áliti annarra og því áttu
það til að draga þig meira í
hlé en ástæða er til.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur mörg járn í eldinum
þessa dagana og þarft því að
hafa þig alla/n við svo að ekk-
ert fari úrskeiðis.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er hætt við að óvænt uppá-
koma trufli einbeitingu þína.
Leggðu þig alla/n fram um að
halda þínu striki því annars er
hætt við að þú missir tökin á
því sem þú ert að gera.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að gera það upp við
þig hvert þú stefnir og með
hvaða hætti þú ætlar að ná
markmiðum þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu það ekki á þig fá þótt
smávægileg vandamál komi
upp í samskiptum þínum við
samstarfsfólk þitt í dag. Þau
munu að öllum líkindum leys-
ast af sjálfu sér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki teygja þig út í rök-
ræður sem þú ert dæmd/ur til
að tapa. Ókunnug manneskja
mun sennilega koma inn í líf
þitt og færa þér mikinn lær-
dóm.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að gæta þess að týna
þér ekki í smáatriðunum.
Verkefnið sem þú vinnur að
krefst þess fyrst og fremst að
þú hafir heildarsýn yfir hlutina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er oft viturlegt að leggja
þau verkefni sem maður vinn-
ur að til hliðar þannig að mað-
ur geti komið að þeim að nýju
og öðlast nýja sýn á þau.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft ekki að vaða yfir allt
og alla til að koma málstað þín-
um á framfæri. Reyndu að
temja þér meiri tillitssemi í
samskiptum við aðra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er um að gera að eiga
áhugamál sem gleðja sálina.
Þú verður þó að gæta þess að
sinna alvöru lífsins þegar hún
kallar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt ekki annars úrkosti en
taka því sem að þér er rétt
þessa dagana. Sýndu þol-
inmæði á meðan þetta varir og
minntu þig á að fljótt skipast
veður í lofti.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Efasemdir um eigið ágæti eru
sannkallað eitur sem dregur úr
okkur allan mátt. Það er því
vænlegast til sigurs að missa
aldrei trúna á sjálfa/n sig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Varastu að dæma hlutina við
fyrstu sýn því það er oft
ómögulegt að sjá á yfirborðinu
hvað undir býr. Gefðu þér tíma
til að grandskoða málin áður
en þú tekur afstöðu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 45
DAGBÓK
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
LÍFSGLEÐI www.heilsuvernd.is
Á HEIÐINNI
Geng ég og þræði
grýtta og mjóa
rökkvaða stigu
rauðra móa;
glóir, liðast
lind ofan þýfða tó,
kliðar við stráin:
kyrrð og ró.
Litir haustsins
í lynginu brenna;
húmblámans elfur
hrynja, renna
í bálinu rauðu,
rýkur um hól og klett
svanvængjuð þoka
sviflétt.
- - -
Snorri Hjartarson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 27.
apríl, verður fimmtug Rann-
veig Sturlaugsdóttir, Akra-
nesi. Af því tilefni munu hún
og eiginmaður hennar taka
á móti vinum og vanda-
mönnum kl. 20 laugardag-
inn 1. maí í sal frímúrara að
Stillholti 14, Akranesi.
75ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 27. apríl
er 75 ára Sverrir Davíðsson,
fyrrverandi sjómaður, Blá-
hömrum 2, Reykjavík. Hann
afþakkar afmælisgjafir en
verður með kaffisamsæti
fyrir vini, ættingja og aðra
samferðamenn í Hlégarði,
Mosfellsbæ, sunnudaginn 2.
maí kl. 15-18.
ÁSMUNDUR Pálsson rak
augun í þessa þraut á Net-
inu og þótti mikið til um:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠D9
♥4
♦KG76542
♣Á83
Suður
♠Á52
♥KDG32
♦D
♣K765
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Pass 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með
smáan spaða og drottningin
heldur slag. Hver er áætl-
unin?
Vandinn er þessi: vörnin
mun dúkka tíguldrottn-
inguna og þá lítur út fyrir að
innkomu vanti í borð til að
nýta tígulinn. Það er varla
fræðilegur möguleiki á níu
sögum án þess að gera út á
tígullitinn, svo þetta er al-
varlegt mál.
Norður
♠D9
♥4
♦KG76542
♣Á83
Vestur Austur
♠KG63 ♠10874
♥10765 ♥Á98
♦Á9 ♦1083
♣G92 ♣D104
Suður
♠Á52
♥KDG32
♦D
♣K765
Lausnin er þessi: Sagn-
hafi fer heim á laufkóng í
öðrum slag og spilar tígul-
drottningu, sem vestur
verður að dúkka. Tígul-
drottningin er þá yfirtekin
með kóng og litlum tígli spil-
að í bláinn! Þegar ásinn fell-
ur annar, er eftirleikurinn
auðveldur.
Þetta er virkilega fallegt
spil.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O Rxe4 6. d4
b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9.
c3 Bc5 10. Rbd2 O-O 11. Bc2
Rxf2 12. Hxf2 f6 13. exf6
Bxf2+ 14. Kxf2 Dxf6 15. a4
Re5 16. Kg1 Bg4 17. axb5
axb5 18. Hxa8 Hxa8 19. Re4
Db6+ 20. Rf2 c6
Staðan kom upp á at-
skákmóti sem lauk fyrir
skömmu í Beer-Sheva í Ísr-
ael. Rússneski stórmeist-
arinn Semen Dvorys
(2612) hafði hvítt
gegn Ilya Khmelni-
ker (2458). 21.
Bxh7+! Kxh7 22.
Dc2+ Rg6 23. Rg5+
Kh6 24. Re6+ Kh7
25. Rf4! Hvítur fær
nú tvo létta menn
fyrir hrók og varð
honum ekki skota-
skuld úr að nýta sér
það til vinnings.
25...c5 26. Rxg4 Ha1
27. g3 d4 28. cxd4
cxd4 29. Kg2 d3 30.
Rxd3 Db7+ 31. Kf2
De4 32. De2 Dc4 33. Re3
Dd4 34. Dh5+ og svartur
gafst upp. Dvoirys þessi er á
margan hátt sérstakur mað-
ur sem lifir eingöngu fyrir
skáklistina. Hann hefur í
gegnum tíðina tekið ósigra
afar óstinnt upp og hefur
það komið fyrir þegar tap er
óumflýjanlegt að hann hafi á
meðan skák stendur enn yf-
ir notað taflmennina til að
berja sig í hausinn svo að
fossblæddi. Einnig hefur
það komið fyrir að að lokinni
tapskák hafi hann kastað
skóm sínum í áttina að and-
stæðingum sínum.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Óli þó! Hvað er ég
búin að segja þér oft
að taka út úr þér
tyggigúmmíið áður
en þú kyssir hana
ömmu!
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Léttur hádegisverður að lokinni bæna-
stund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl.
19 í neðri safnaðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður
á sanngjörnu verði að helgistund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldriborgara-
starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Morgunstund og fyrirbænir miðvikudaga í
kirkjunni kl. 11. Þetta er stund fyrir alla
sem eru heimavið og hafa tækifæri til að
sækja kirkju á virkum degi. Allir velkomnir.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist
mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl.
13. Bridsaðstoð á föstudögum kl. 13.
Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma
511 5405.
Langholtskirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.
Fjölbreytt starf fyrir 7–9 ára börn. Umsjón
hafa Ólafur Jóhann og Þóra Guðbjörg.
Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla Laug-
arneskirkju kl. 20. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21.
Þorvaldur Halldórsson leiðir lofgjörðina við
undirleik Gunnars Gunnarsonar á flygilinn
og Hannesar Guðrúnarsonar sem leikur á
klassískan gítar. Gengið er inn um aðaldyr
kirkju eða komið beint inn úr fullorðins-
fræðslunni. Kl. 21.30 fyrirbænaþjónusta
við altarið í umsjá bænahóps kirkjunnar.
Neskirkja: Litli kórinn – kór eldri borgara
kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. All-
ir velkomnir. Foreldramorgunn miðvikudag
kl. 10–12.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16. Starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30.
Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf
með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára
börnum í Ártúnsskóla.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Fella- og Hólakirkja: Strákastarf 8–12 ára
kl. 17.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30–16. Helgistund, söngur, spil
og spjall. Kaffi og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Æskulýðsfélag í Rimaskóla kl.
20–22 fyrir unglinga í 8. bekk. Æskulýðs-
félag í Grafarvogskirkju kl. 20–22 fyrir ung-
linga í 9. og 10. bekk.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta kl.
9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Sam-
verustund kl. 14.30–16. Fræðandi innlegg
í hverri samveru. Lagið tekið undir stjórn
Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og stutt
helgistund. Allir hjartanlega velkomnir.
Starf með 8–9 ára börnum í Borgum kl.
17–18 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar.
Starf með 10–12 ára börnum á sama stað
kl. 18–19 í umsjón Dóru Guðrúnar og
Bóasar.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í
Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum
3, kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12.
SELA yngri deild kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í
dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12
ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar
stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðs-
félagið (Megas) heldur vikulegan fund kl.
19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi
þessara hópa hafa Anna Hulda Einarsdótt-
ir og Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er
opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er
opið hús fyrir unglinga 13–15 ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.30 í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og
konur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, ör-
yrkjar og atvinnulausir velkomnir. Spilað,
spjallað og kíkt í blöðin. Samverunni lýkur
með helgistund kl. 16. Umsjónarmaður
Nanna Guðrún djákni. Þorlákur sækir þá
sem vilja og ekur þeim heim. Sími
869 1380.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl.
18.30- 19.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
Kirkjuprakkarar Landakirkju, 6–8 ára
krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson
og leiðtogarnir. Kl. 16 Litlir lærisveinar,
kóræfing yngri hóps. Kl. 17.10 Litlir læri-
sveinar, kóræfing eldri hóps. Kl. 18.30
kaffihúsamessuhópur, æfing fyrir ferð á
Suðurnes og í Garðabæ. Safnaðarheimili
Landakirkju.
Keflavíkurkirkja. Alfahópur kemur saman
í Kirkjulundi kl. 12–15. Léttur málsverður,
samfélag og fræðsla um kristna trú. Einnig
verður komið inn á stöðu atvinnulausra.
Umsjón María Hauksdóttir. Styrktaraðilar
eru Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavík-
ur og nágrennis, Verslunarmannafélagið
og Iðnsveinafélagið ásamt Keflavíkur-
kirkju. Allir velkomnir.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upp-
lýsingar á www.kefas.is.
AD KFUK, Holtavegi 28. AD KFUK kl. 19 í
kvöld. Afmælis- og inntökufundur AD
KFUK. Fundurinn hefst með borðhaldi kl.
19. Verð fyrir matinn 2.600. KFUK er opið
fyrir allar konur 18 ára og eldri. Nýjar fé-
lagskonur boðnar velkomnar. Frænkurnar
Anna Lilja Einarsdóttir og Anna Elísa Gunn-
arsdóttir spila fjórhent á píanó. Hildur Eir
Bolladóttir, guðfræðinemi, flytur hugleið-
ingu fyrir sr. Jónu Hrönn Bolladóttur um
glímuna við guð. Allar konur velkomnar.
Nauðsynlegt að skrá sig í matinn.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl.
18.10.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17.30
Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk. Kl. 19.15
Alfanámskeið.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
Trúðu mér! Ég á
eftir að finna meira fyrir
þessu en þú!