Morgunblaðið - 18.05.2004, Síða 21
SUÐURNES
sumarskolinn.is
sumarskolinn.is
Reykjanesbær | Mikið var um að
vera í Reykjanesbæ um helgina.
Efnt var til svokallaðrar Frístunda-
helgar og handverkssýningar. Í
Heiðarskóla var sýning á verkum
nemenda og mótorhjóladagar hjá
Frumherja. Þá hélt varnarliðið sína
árlegu vorhátíð á Keflavíkurflug-
velli.
Á Frístundahelginni kynntu
klúbbur og félög starfsemi sína.
Opið hús var víða af þessu tilefni
með kynningu og sýningum. Að
sögn Gísla H. Jóhannssonar um-
sjónarmanns var rennirí á öllum
stöðum. Böðvar Jónsson, formaður
bæjarráðs, sagði þegar hann setti
Frístundahelgina, að komið hefði í
ljós að ótrúlega mörg tækifæri
væru til tómstundaiðkunar í
Reykjanesbæ, fyrir börn á öllum
aldri.
Hápunktur Frístundahelg-
arinnar átti að vera sumarhátíð við
menningarmiðstöð ungs fólks, 88
húsið, á laugardag. Þar var ætlunin
að vera með dagskrá utan dyra en
henni varð að hnika til vegna veð-
urs. Gísli segir að veðrið hafi lagast
þega leið á daginn og þá hafi verið
hægt að grilla úti og margir nýtt
sér það.
Í íþróttahúsinu við Sunnubraut
var haldin sýningin Handverk og
list. Þar sýndu á sjöunda tug hand-
verks- og listafólk verk sín. Gísli
áætlaði að um tvö þúsund manns
hefðu komið á sýninguna en það er
mun færra en á undanförnum ár-
um. Áætlað var að á fimmta þúsund
manns hafi sótt sýninguna síðustu
tvö árin.Gísli segir að athuga þurfi
hvort tímasetning sýningarinnar sé
rétt og eins kynningu á henni.
Í tilefni af fimm ára starfsafmæli
Heiðarskóla í Keflavík var á laug-
ardag haldin sýning á verkefnum
nemenda í stofum og á göngum
skólans. Sýningin var haldin í
tengslum við Fjölskyldudag skól-
ans. Mikið var um að vera á lóð
skólans og inni, auk sýningarinnar.
Fjöldi fólks kom í skólann þennan
dag.
Foreldrafélag Heiðarskóla gaf
skólanum tvo fána með merki Heið-
arskóla sem Aðalsteinn Axelsson,
nemandi í 7. bekk, hannaði. Fáni
skólans var dreginn að húni í fyrsta
skipti við upphaf foreldradagsins
ásamt nýjum fána foreldrafélagsins
sem Leifur Leifsson hannaði.
Mótorhjóladagur var hjá Frum-
herja í Njarðvík á laugardag. Þar
komu mótorhjólaeigendur saman
og þeir sem vildu gátu látið skoða
hjólin sín.
Á Keflavíkurvelli var einnig
margt um manninn síðastliðinn
laugardag. Vorhátíð varnarliðsins
var haldin í stóra flugskýlinu með
karnivalsniði. Varnarliðsmenn og
starfsfólk voru í skrautlegum bún-
ingum við þjónustu við íbúa á varn-
arsvæðinu og gesti sem voru fjöl-
margir. Í boði var fjölbreytt
skemmtidagskrá auk þess sem
gestir fengu tækifæri til að skoða
þyrlur, þotur og ýmsan annan bún-
að varnarliðsins.
Fjöldi hátíða var í Reykjanesbæ og nágrenni um helgina
Foreldradagur: Fáni Heiðarskóla dreginn að hún, f.v. Guðmundur Axelsson formaður foreldrafélagsins, Leifur
Gunnar Leifsson stjórnarmaður, Aðalsteinn Axelsson, höfundur merkisins, og Gunnar Þór Jónsson skólastjóri.
Rennirí á öllum stöðum
Frístundahelgi: Starfsemi tómstundaklúbba var kynnt á Frístundahelgi í
Reykjanesbæ. Drengirnir höfðu mikinn áhuga á fjarstýrðum bílum.
Vorhátíð: Gestir varnarliðsfólks skoðuðu vopn varnarliðsins og verjur.
Þessi telpa fékk að setjast í flugmannssæti einnar björgunarþyrlunnar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Handverkssýning: Ása Böðvarsdóttir hefur áhuga á dansi. Við setningu
sýningarinnar náði hún athygli foreldra sinna, Böðvars Jónssonar, for-
manns bæjarráðs, og Önnu Karlsdóttur Taylor, sem og Valgerðar Guð-
mundsdóttur menningarfulltrúa og Árna Sigfússonar bæjarstjóra.
Tónleikar lúðrasveita | Lúðra-
sveitir Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar, A, B og C, halda tónleika í
Kirkjulundi, safnaðarheimili Kefla-
víkurkirkju, í kvöld, þriðjudag,
klukkan 19.30.
Þetta eru fyrstu tónleikar A-
sveitar, sem er yngsta sveitin. A-
sveit er sett saman í febrúarmánuði
á hverjum vetri og hana skipa nem-
endur sem eingöngu hafa stundað
tónlistarnám í nokkra mánuði.
Þessir tónleikar verða allsérstakir
og hugsanlega einstakir á landsvísu,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar, því að um fjörutíu blokk-
flautuleikarar úr forskóla 2 munu
leika saman einleikshlutverk með B-
sveitinni í laginu Blokkflauturokk.
Tónleikarnir verða einnig nokkuð
sérstakir fyrir það leyti að nokkrir
af nemendum C-sveitar munu
spreyta sig á sérhlutverkum, utan
síns reglulega tónlistarnáms.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 21
Jón í Safnaðarheimilinu | Jón
Ólafsson tónlistarmaður er með tón-
leika í Safnaðarheimilinu í Sand-
gerði annað kvöld, miðvikudag,
klukkan 21.
Jón er á tónleikaferð um landið í
tilefni af útgáfu nýs geisladisks.
Hann leikur tónlist sína og spjallar
við gesti. www.thjodmenning.is