Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Blaðsíða 12

Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Blaðsíða 12
MINNING Valtýr Þorsteinsson frá Rauðuvík Einu sinni var ég sendur sena skilam aður í Vörðufellsrétt. Ég var þá 17 ára og ekkert karlmenni. Réttarstörfin gengu sinn vana gang, frekar seint og mun vasa- pelinn hafa tafið suma skilamenn- ina. Af stað suður yfir Heydal kom umst við ekki fyrr en undir kvöld og þá farið að rigna. Ferðin gekk því seint og myrkrið færðist hægt og hægt yfir. Sýnt var að við næð- um ekki nenia suður á miðjan Heydal fyrir svarta myrkur. En samhliða myrkrinu dembdist nú regnið yfir okkur eins og fossfall og innan tíðar fannst ekki á okk- ur þurr þráður. Þar við bættist að hjörðin tók að gerast bágræk. Áfram var samt mjakazt og ekki gefizt upp fyrr en á Krossi, nokkru eftir miðnætti. Móttökur hús- bændanna þar þessa nótt iíða mér seint úr minni. Á síðastliðnu sumri átti ég leið mér til skemmtunar inn á fjall- garðinn fram að Krossi. Þegar ég kom til baka var komið við hjá Þórdísi. Þá sá ég hana í síðasta sinn. Hún hellti án tepruskapar upp á könnuna og skenkti í boll- ann hjá mér, og við ræddumst við í léttum tón, eins og svo oft áður. Ekki grunaði mig þá að þetta væri síðasta sumarið hennar á Krossi, svo hress og glöð var hún, um- kringd ungum afkomendum, sem fengu að vera hjá ömmu sinni sér og henni til skemmtunar. Ég kveð Þórdísi á Krossi með hlýjum hug og þakka samfylgd- ina, og svo munu allir gera, sem af henni höfðu náin k.ynni, og skrýtið finnst okkur sjálfsagt að leggja leið okkar fram í dalinn, og eiga ekki von á að hitta hana bros- ■andi i hlaðvarpnum á Krossi. Svcinbjörn Marluísson. Kveðja frá börnum. Nú ertu horfin kæra milda móðir margir standa eftir daprir, hljóðir. Margar fagrar minningar við geymum. um mömmu sem við aldrei, aldrei gleymum. Við kveðjum þig svo klökk í hinzta sinni er kvöldar að á ævivegferð þinni. Við þína gröf nú drjúpa hugir hljóðir. Haf bjartans þakkir, kæra elsku móðir. T.E. Á leið norður eftir hinni fornu Galmarströnd við Eyjafjörð birgja klettahjallar sýn. Eru það Hillurn- ar svonefndu, fótstallur Kötlu fjallsins. Skipta þær nú Galmar- ströndinni milli hreppanna, sem kenndir eru við Arnarnes og Ár skóg_ og hefur öldum saman kall- ast Árskógströnd ytri hlutinn. Jafn snemma og sýn gefur til norðurs, þaðan sem akvegurinn er næst sjávarbakkanum, blasir við bær- inn Rauðavík. Stendur hann við samnefnda vík, og er nú svðstur býla i Árskógshreppi. Maður undr- ast, að á svo fallegum stað skyldi enginn reisa sér bústað fyrr en um 900 ár hafði búið verið nokkur hundruð metrum norðar (í Haga). Það var sem sé ekki fyrr en árið 1897, þegar íbúðarhús það, sem enn stendur hafði verið reist, að Þorsteinn Vigfússon, bátasmið- ur og selaskytta, flyzt þangað nieð börnum sínum, þá nýlega orðinn ekkjumaður. Hálfu þriðja ári síð- ar, 23. apríl aldamótaárið, fædd- ist í Rauðuvík sonarsonur báta smiðsins, Þorsteinn Valtýr Þor- steinsson, en það eru nokkur minn ingarorð um hann, sem fara hér á eftir. Foreldrar Valtýs Þorsteinssonar voru báðir Árskógstrendingar. Föð urmóðir hans, Anna Soffía Jó hannsdóttir, Jónssonar, Var ættuð úr Svarfaðardal. Þorsteinn var frá Hellu, sonur Vigfúsar Gunnlaugs- sonar og Önnu Rósu Þorsteinsdótt ur á Skáldalæk, Jónssonar. Gunn laugur á Hellu, Þorvaldsson, Sig- urðssonar var dóttursonur Þor valds Hiríseyings. Móðir Valtýs var Valgerður Sigfúsdóttir, Kristjáns- sonar frá Bragholti. Svanhildur, móðir hennar, var Jóhannsdóttir sterka á Selá, Sigurðssonar, Gott skálkssonar. Kona Jóhanns sterka var Guðrún frá YtraJKálfaskinni, Jónsdóttir, Jónssonar. Vitað er um mai’ga atorku og athafnamenn meðal þessa fólks og ekki síður kjarkmiklar dugnaðarkonur. Hag- leikur og snyrtimennska góð greind og margvíslegur myndar skapur einkenndi suma, sterk sjálfsbjargarhvöt, seigla og sjálfs- traust aðra. Fjölmargt af þessuni kostum hafði Valtýr til að bera, enda komst hann vel áfram á all an hátt og sómdi sér ágætega vel, hvar sem hann stóð í starfi. Hann ólst upp í ágætu heimili foreldra sinna, fyrst í Hvammi (Arnarnes- hr.) en lengst á Litlu-Hámundar stöðum. Þar rikti guðsótti og góð ir siðir, umhyggjusemi, ráðdeild og snyrtimennska. Jafnframt bú- skapnum var sjórinn sóttur af kappi, enda veitti eikki af, því að heimilið varð stórt, börnin tíu og rausnarsnið á heimilinu, en þó við höfð mikil nýtni og reglusemi. Greiðvikni og góðvild var ríkjandi, fjölskyldan öll framgjörn og fé lagsiynd, enda hafa öll börnin reynzt hið nýtasta fólk. Ekki leyfðu efnin að börnin færu langskólaleiðir, þó að til þess væru nægir hæfileikar. Eigi að síð ur var lagt kapp á að manna þau og mennta eftir ástæðum. Valtýr nam ekki skólalærdóm, nema í farskóla og svo einn vetur í ung lingaskóla. Þó varð hann vel að sér um margt, jafnvel ótrúlega vel í sumuim 'greinum, en þar kom fyrst og fremst hin meðfædda og arftekna greind, og göggskyggni á það, hvað bezt myndi að haldi koma I Iífstörfunum. Áhuginn beindist snemma mest að verkleg- um efnum, en þó leyndu sér ekki listrænir hæfileikar. Hann var söng hnei'gður, lék vel á orgel og stjórn aði söng, t.d. í Stærra-Árskógar kirkju. Hann nam vélstiórn og skipasmíði, og um skeið mun hafa bvarflað að honum að leggja báta og skipasmíði fyri-r sig. S'míðaði hann marga smærri báta, og aúk þess, að nokikru, sitt eigið fyrsta síldarskip (Gyllfann I.). Skipaútgerð mun þó alltaf hafa Jí ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.