Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Blaðsíða 32
GULLBRÚÐKAUP
frá Hrappsstöðum í Víðidal
Þann 24. ágúst 1969 áttu hjón-
in, Sigríður Jónsdóttir og Björn
Jósefsson frá Hrappsstöðum í Víði-
dal, 50 ára hjúskaparafmæli. Þann
dag voru þau stödd að heimili
yngsta sonar síns og tengdadóttur,
Guðlaugs bónda í Nýrukoti og Sig-
rúnar Þórisdóttur. Allmargt vina
og vandamanna kom að heimsækja
þau þennan merkisdag í lífi þeirra.
Mikið barst víðsvegar að, af kveðj-
um og heillaskeytum. Hvort
tveggja er, að frændgarðurinn er
fjölmennur og svo hitt, að þau
hjón hafa hvarvetna kynnt sig
mjög vel og eiga viða vinum að
mæta.
í 28 ár bjuggu þau á Hrapps-
stöðum, frá 1919 til 1947, þar sem
Björn er fæddur og uppalinn. Er
hann Húnvetningur að ætt, þótt
hans ættir megi raanar rekja víðar
og fer ég ekki frekar út i það
hér. Sigríður er borgfirzkrar ætt-
ar og vísast þar til Ættarskrár
Bjarna Hermannssonar.
Þau hjón áttu 11 börn, 5 syni
og 6 dætur. Eina dóttur misstu
þau nýfædda, en hin hafa öll
komizt til fullorðinsára og eru nú
hið mannvænlegasta fólk. Það hef-
ur verið gæfa þeirra Hrappsstaða-
hjóna, hvað þau hafa verið frá-
bærlega samhent og atorkusöm,
því oft hefur nú verið út litlu að
spila og vissulega hefur þurft mik
inn dugnað og elju til að fleyta
öllu vel fram. Gestir sem að
garði komu munu þó sízt hafa orð-
ið fátæktar varir, því gestrisni var
frábær og snyrtimennska bæði ut-
an húss og innan. Þess sáust og
merki, að bóndinn vildi gera meira
en að halda í horfinu og bætti
hann jörð sína talsvert á þess tíma
mælikvarða.
Frá Hrappsstöðum fluttust þau
til Akraness og bjuggu þar í all-
mörg ár, en elzti sonur þeirra,
Tryggvi og kona hans, Guðrún Inga
dóttir, tóku við jörðinni og hafa
búið þar síðan.
Mér er kunnugt um, að
þau Björn og Sigríður voru vin-
sæl á Akranesi sem annars staðar.
Þar varð Björn fyrir því mótlæti,
að missa sjónina að mestu leyti og
gat hann hin síðari ár ekki stund-
að vinnu að neinu ráði. Mun hon-
um hafa fallið það þungt, þó að
hann héldi reisn sinni þar fyrir og
væri .jafnan viðræðugóður, enda
fróður um margt og átti nokkurt
safn góðra bóka. Nú hin síðustu ár
hafa þau hjón dvalizt á ellideild
sjúkrahússins á Hvammstanga. Til
þeirra er gott að koma og enn
kann húsmóðirin frá Hrappsstöð-
um betur við að geta veitt gestum
sínumvþó með öðrum hætti sé en
áður. Ég bið guð að blessa þeim
ævikvöldið.
í afmælishófinu flutti Sigvaldi
Jóhannesson frá Enniskoti, gull-
brúðhjónunum frumort kvæði. Fer
það hér á eftir.
Gunnþór Guðmundsson.
Ávarp á 50 ára hjúskaparafmæli
Sigríðar Jónsdóttur og Björns Jós-
efssonar frá Hrappsstöðum.
Þið afsakið kvæðið mitt,
Hrappsstaðahjón,
sem heiðruð nú eruð á
gullbrúðkaupsdegi
og hressileg ennþá, sem eruð í
sjón,
þótt umferðagetan sé horfin á
teigi.
Um margþættan vinning en
minna um tjón
þið minningu eigið frá
hjónabandsvegi.
Sá vinningur: börnin, sem guð
ykkur gaf,
hin geðfellda sambúð og
almennings hylli
var rótin, sem lán ykkar lifnaði
af,
svo lýsti af virðingu ykkar á
milli.
En iðjan þá hvorki né ástundun
svaf.
Þær oftökum fátæktar héldu í
stilli.
Og fsland er því aðeins
„farsældarfrón“,
að flestöllum takast í
hjúskapnum megi
í daglegum önnum, að einbeita
sjón
að ávinning hverjum á
skyldunnar vegi.
Það gerðuð þið, vinsælu
Hrappsstaðahjón,
sem heiðruð nú eruð á
gullbrúðkaupsdegi.
Sigvaldi Jóhannesson.
32
ÍSLENDINGAÞÆTTIR