Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Qupperneq 32

Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Qupperneq 32
GULLBRÚÐKAUP frá Hrappsstöðum í Víðidal Þann 24. ágúst 1969 áttu hjón- in, Sigríður Jónsdóttir og Björn Jósefsson frá Hrappsstöðum í Víði- dal, 50 ára hjúskaparafmæli. Þann dag voru þau stödd að heimili yngsta sonar síns og tengdadóttur, Guðlaugs bónda í Nýrukoti og Sig- rúnar Þórisdóttur. Allmargt vina og vandamanna kom að heimsækja þau þennan merkisdag í lífi þeirra. Mikið barst víðsvegar að, af kveðj- um og heillaskeytum. Hvort tveggja er, að frændgarðurinn er fjölmennur og svo hitt, að þau hjón hafa hvarvetna kynnt sig mjög vel og eiga viða vinum að mæta. í 28 ár bjuggu þau á Hrapps- stöðum, frá 1919 til 1947, þar sem Björn er fæddur og uppalinn. Er hann Húnvetningur að ætt, þótt hans ættir megi raanar rekja víðar og fer ég ekki frekar út i það hér. Sigríður er borgfirzkrar ætt- ar og vísast þar til Ættarskrár Bjarna Hermannssonar. Þau hjón áttu 11 börn, 5 syni og 6 dætur. Eina dóttur misstu þau nýfædda, en hin hafa öll komizt til fullorðinsára og eru nú hið mannvænlegasta fólk. Það hef- ur verið gæfa þeirra Hrappsstaða- hjóna, hvað þau hafa verið frá- bærlega samhent og atorkusöm, því oft hefur nú verið út litlu að spila og vissulega hefur þurft mik inn dugnað og elju til að fleyta öllu vel fram. Gestir sem að garði komu munu þó sízt hafa orð- ið fátæktar varir, því gestrisni var frábær og snyrtimennska bæði ut- an húss og innan. Þess sáust og merki, að bóndinn vildi gera meira en að halda í horfinu og bætti hann jörð sína talsvert á þess tíma mælikvarða. Frá Hrappsstöðum fluttust þau til Akraness og bjuggu þar í all- mörg ár, en elzti sonur þeirra, Tryggvi og kona hans, Guðrún Inga dóttir, tóku við jörðinni og hafa búið þar síðan. Mér er kunnugt um, að þau Björn og Sigríður voru vin- sæl á Akranesi sem annars staðar. Þar varð Björn fyrir því mótlæti, að missa sjónina að mestu leyti og gat hann hin síðari ár ekki stund- að vinnu að neinu ráði. Mun hon- um hafa fallið það þungt, þó að hann héldi reisn sinni þar fyrir og væri .jafnan viðræðugóður, enda fróður um margt og átti nokkurt safn góðra bóka. Nú hin síðustu ár hafa þau hjón dvalizt á ellideild sjúkrahússins á Hvammstanga. Til þeirra er gott að koma og enn kann húsmóðirin frá Hrappsstöð- um betur við að geta veitt gestum sínumvþó með öðrum hætti sé en áður. Ég bið guð að blessa þeim ævikvöldið. í afmælishófinu flutti Sigvaldi Jóhannesson frá Enniskoti, gull- brúðhjónunum frumort kvæði. Fer það hér á eftir. Gunnþór Guðmundsson. Ávarp á 50 ára hjúskaparafmæli Sigríðar Jónsdóttur og Björns Jós- efssonar frá Hrappsstöðum. Þið afsakið kvæðið mitt, Hrappsstaðahjón, sem heiðruð nú eruð á gullbrúðkaupsdegi og hressileg ennþá, sem eruð í sjón, þótt umferðagetan sé horfin á teigi. Um margþættan vinning en minna um tjón þið minningu eigið frá hjónabandsvegi. Sá vinningur: börnin, sem guð ykkur gaf, hin geðfellda sambúð og almennings hylli var rótin, sem lán ykkar lifnaði af, svo lýsti af virðingu ykkar á milli. En iðjan þá hvorki né ástundun svaf. Þær oftökum fátæktar héldu í stilli. Og fsland er því aðeins „farsældarfrón“, að flestöllum takast í hjúskapnum megi í daglegum önnum, að einbeita sjón að ávinning hverjum á skyldunnar vegi. Það gerðuð þið, vinsælu Hrappsstaðahjón, sem heiðruð nú eruð á gullbrúðkaupsdegi. Sigvaldi Jóhannesson. 32 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.