Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Page 14

Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Page 14
Sigmu nd ur Eyjólfsson frá Húsatóftum Fæddur 13. september 1923. Dáinn 23. april 1970. Fyrsta sumardag var hringt heim til mín og mér og okkur sögð þau sviplegu tíðindi, að Sig- mundur Eyjólfsson, Urðarstig 12 hér í borg, væri dáinn. Hann hafði látizt í svefni þá um morguninn. Sigmundur hafði verið á stuttum skemmtifundi með vinum sínum og vandafólki kvöldið áður, neytti einskis og fór heim fyrir venju- legan háttatíma eftir að hafa stig- ið einn dans. Þaðan ekur hann bíi sínum heim, leggur honum mjög nákvæmt í stæðið að vanda, því auðvitað mótti bí’hmi ekki vera neinum til óþægiaJa. Svo endaði hann sitt líf á fertugasta og sjö- unda aldursári með hönd undir kinn í rúmi sínu. Þannig er víst gott að deyja. Og þó segja sumir spakir menn að betra sé að hafa góðan tíma til undirbúnings, og svo má vera, en merkið var svo hreint, sem þessi Iátni vinur minn bar, að ég held að hann hafi mátt segja: Ég ferðast og veit hvert mín för stefnir á. Það hrúguðust 1 hugann þekkar minningar um sro hrekklausan dreng og vin- margan, sem öllum þótti vænt um sem kynntust honum, meðal ann- ars þessi aðfengnu orð: „Dreng- lyndið fölskvalaust, handtakið hlýtt, hjartað er gull fram í dauð- ann“. Skeiðahreppur er falleg og bú- sældarleg sveit, stórbrotið lands- lag er þar víða, en mörgum steini hefur orðið að ví'kja úr götu fólks ins til þess að hafa nægilegt svið fyrir búsmala. Fólkið sem byggir þessa sveit, ber svip þessa lands- lags af beygðu fólki, sem ekki brotnaði en barðist áfram hokið en þó upprétt, gaf þjóð sinni þann kjark, sem hún nú býr yfir, horfði djarft móti hverjum vanda, háði 6itt stríð við miskunnarlaus nátt- úruöfl, og þá líka stundum erfið samskipti við harðsnúna danska kaupahéðna, sem máttu sín meira efnalega, samanber elztu selstöðu verzlun landsins, Eyrarbakka. Eft- ir aldamótin fer að rofa til um afkomu erfiðismanna til sjávar og sveita. Og þannig höfðu faðir og móðir, afi og amma búið í haginn fyrir þá óbornu. Úr þessum reit var Sigmundur Eyjólfsson vaxinn, en hann fæddist 13. sept. 1923, eins og áður segir, að Húsatóftum í Skeiðahreppi og var jarðsunginn frá Dómkirkjunni 5. maí sl. Foreldrar hans voru sæmdar- hjónin Guðrún Sigmundsdóttir Jónssonar og Eyjólfur Gestsson Eyjólfssonar, sem þar bjuggu snotru búi. Sigmundur dvelur í faðmi góðra foreldra og systkina þar til hann verður sjö ára. Þá bregður skýi fyrir sólu, skuggi dauðans ber að dyrum og slær til heljar unga og fallega eiginkonu og ástríka móður, og þar með verða börnin sex sem á krossgöt- um hryggðar og saknaðar og get- um við undirstrikað ástand föður- ins með heimilið stefnulaust með þeirri lífsspeki: Fáir sem faðir, en enginn sem móðir. En ?ott er þeim sem trúa, að drottinn le^sur líkn með þraut og viða eru Guðs og góðra manna vegir. Á Útverkum í sömu sveit búa góð hjón, Guðrún Þórðardóttir og Bjarni Jónsson og þar er gnægt hjartarúm fyrir sveininn unga. Eins og að lí'kum lætur varð Sig mundur virkur þátttakandi í önn- ■um og amstri daglegs lifs og hlífði sér hvergi, en þrátt fyrir nokkra vinnuhörku umgengust þau mætu hjón fóstursoninn af næmleik og skilningi og reyndust honum sem aðrir foreldrar, enda kunni hann að meta þeirra tillag, því hann elskaði þau og virti til dauðadags. Þegar Sigmundur hefur verið tíu ár í Útverkum hjá Guðrúnu og Bjarna Jónssyni, þá er hann á átjánda ári og hyggst nú vífcka þann hring, sem hann hefur séð yfir svo lengi, enda er það með fullu samþykki föður og fósturfor- eldra. Hann vinnur jöfnum hönd- um, bæði til lands og sjávar, og þó að skuggi sé yfir mannheimi og blikur á lofti, framtið lands og þjóðar sé óráðin vegna stríðs- hættu, hefur það engin áhrif á sjálfsbjargarviðleitni un»a manns- ins. Honum var í blóð borinn dugn aður, vandvirkni og fremur öllu trúmennska, sem mun hafa verið ríkasti þáttur í lífi hans og starfi. Svo gerist það árið 1948 að Sig- mundur byrjar að vinna í málm- steypu hjá Ámunda Sigurðssyni, og þar vinnur hann í 22 ár eða þar til yfir lýkur. Á þessu má sjá meðal annars, að maðurinn hefur ekki verið neinn flumbrari í verk- um sínum, enda bar hann hús- bónda sínum og öllum, sem hann þekkti, gott orð, og taldi hann einhvern þann áreiðanlegasta og tryggasta vinnuveitanda, sem hann hefði unnið hjá. Þessi vitnis- burður er að sjálfsögðu gagn- kvæmur þar eð Meyvant Sigurðs- son, tengdafaðir Sigmundar, sagði mér, að Ámundi, sem um þær mundir var í útlöndum, hefði beð- ið um að jarðarför færi ek'ki fram fyrr en hann kæmi, svo og hitt að hann vildi kosta útförina Naum- ast er hægt að sýna látnum vini meiri virðingu og þakkarvott en sílka rausn, og mættu fleiri þar eftir fara. Það verða mikil og góð tíma- skipti í lífi Sigm..ndar árið 1950, því 5. apríl það ár kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Elísabetu Meyvantsdóttur frá Eiði, dugmik- illi myndarkonu,' :em mat hæfi- Ieika og tryggð bónda síns að verð leikum. Þeim hjónum varð ekki barna auðið, en það mun hafa ver- ið eini skugginn á sameiginlegri leið þeirra, svo voru þau bamelsk. Ég held að við Sigmundur og kona hans höfum fyrst kynnzt um vor- W ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.