Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Page 16
MINNING
ÓLAFUR R. SVEINSSON
HEILBRIGÐISFULLTRÚI
Fæddur 25. ágúst 1903.
Dáinn 2. maí 1970.
Útför Ólafs R. Sveinssonar, heil-
brigðisfulltrúa, fór fram frá Landa
kirkju. Hann lézt á sjúkrahúsinu
hér 2. maí eftir stutta veru þar,
að þessu sinni. Ólafur fæddist 25.
ágúst 1903, að Árgilsstöðum í Hvol
hreppi. Foreldrar hans voru Sveinn
Jónsson frá Velli í Hvolhreppi og
Margrét Þorsteinsdóttir frá Árgils-
stöðum í sömu sveit. Ólafur ólst
upp með móður sinni til þriggja
ára aldurs, er hún giftist fyrri
manni sínum, Sigurði Ólafssyni
frá Gularáshjáleigu í Landeyjum
og fluttust þau þá hingað til Vest-
mannaeyja. Hófu þau búskap sinn
að Garðbæ. sem þau keyptu um
það leyti. Sigurður, stjúpi Ólafs,
var starfsmaður Gísla J. Johnsen
við utanbúðarstörf. Hann hafði því
árvissa atvinnu og var það ekki
svo lítið atriði þá. ekki síður en
nú. Margrét móðir Ólafs var glæsi-
leg dugnaðarkona, sem ekki lét
sinn hlut efti* liggja í sínu stóra
heimili, en þau Sigurður og Mar-
grét eignuðust sjö börn. Ölafur
ólst því upp í glaðværum systkina-
hðpi og stjúpi hans re> adist hon-
um sem góður faðir. í Garðbæ
bjuggu þau til ársins 1910, að hús-
ið eyðilagðist í eldsvoða. Bvogðu
þau Sí"”rður og Margrét þá þeg-
ar, á sama stað við Kirkjuveginn,
annað hús, snoturt einbýlis-
hús, sem þau nefndu Rafnseyri.
ólafur missti stjúpa sinn, þegar
hann var aðeins 15 ára gamall, en
Sigurður lézt úr spönsku veikinni
1918. Reyndi þá fyrst á drenginn,
sem þá varð, ásamt móður sinni,
að sjá fyrir þessu stóra heimili,
þar til að Margrét giftist aftur
seinni manni sínum, Guðlaugi
Siguhðssyni. Ólafur var því ekki
gamall, þegar hann hóf algeng
störf við fiskvinnslu og sjó-
mennsku og lærði hann vel til
þeirra verka. Er mér mjög minnis-
'á
stætt, hversu hann, sem fullorð-
inn maður, var hraðvirkur og lag-
virkur, þegar hann stóð við flatn-
ingsborð, en verkstjóri við fisk-
verkun var hann áður en hann
varð fastur starfsmaður Vest-
mannaeyjabæjar.
Við tímamót er manni tamast að
líta tii baka og rifiast þá upp liðn-
ar minningar, ekki sízt þegar lát-
inn vinur er kvaddur. Kynni okk-
ar Ólafs hófust þá er við urð-
um bekkjarbræður í barnaskólan-
um. Urðum við brátt samrýmdir,
bæði í leik og starfi. Meðal annars
vorum við með í þeim hópi er stóð
að stofnun Knat.tspyrnufélagsins
Týs. Ólafur var þá þegar áhuga-
samur félagsmaður og stóð alla tíð
sem styrkur félagi í Tv ^venær
sem til hans var leitað.
21 árs að aldri kvæntist Ólafur
eftirlifandi konu sinni, Ragnheiði
Kristjánsdóttur, Gunnarssonar frá
FífLsholtshiáleigu í Landeyjum og
konu hans, Helgu Jónsdóttur frá
Klasbarða, einnig í Landeyjum, en
þau Kristján og Helga bjuggu þá
að Laufási hér í Eyjum og þar
byrjuðu þau Ólafur og Ragnheið-
ur, hin ungu og glæsilegu hjón,
búskap sinn 18. október 1924 og
þar bjuggu til ársins 1930, að
Ólafur keypti húsið Flatir 14, að
hálfu á móti Kiistjáni tengdafööur
sínum og þar með hófst sambýli
fjöiskyldunnar, sem svo mjöe _hef-
ur verið til fyrirmyndar. Þa i Ólaf-
ur og Ragnheiður eignuðust þrjár
dætur, Helgu, gifta Gggerti Óiafs
syni, skipasmíðameistara, búsett í
Eyjum, Margréti íeikkonu. gifta
Steindóri Hjörleifssyni leikara bú-
sett í Reykjavík og Kristínu, sem
dó af afleiðingum mislinga á öðru
ári. Dætrabörnin eru 3 og einn
dóttursonarsonur, Epv°rt Ólafsson
á þriðia ári, sem ekki var síður
en dætrabörnin, sérstakt yndi lang
afa síns. Ólafur var mikill og góð-
ur heimilisfaðir og faðir dætra
sinna og tengdasona. var
sérstaklega hjálpsamur og úrræða-
góður. hverjum sem til hans leit-
aði. Hann var góður bróðir s.vst-
kinum sínum öllum.e n samnevti
við föður sinn og börn hans hafði
Ólafur ekki fyrr en hann var orð-
inn uppkominn maður. Hann var
góður vinur Guðlaugs stjúpa míns
og hélzt sú vinátta þótt Ieiðir
skildu. Ólafur hóf störf sín hjá
Vestmannaeyjabæ sumarið 1928
eða ‘29. sem verkstióri við griót-
mulninesstöð og grjótnám bæiar-
ins í Heriólfsdal. Gerðist hanr síð-
an ökumaður hjá bænum í nokkur
ár, en starfaði lengst af sem sió-
veitustjóri eða til ársins 1960. að
hann gerðist heilbrieWsfuIItrúi
bæiarins, sem hann gegndi til dán-
ardægurs. Jafnframt þessu ók
hann og hafði umsjón með siúkra-
bifreið Rauðakrossins frá því fyrsta
i 20 ár samfleytt, en í september
í haust eru liðin 22 ár frá því að
hann ók fvrstu sænpurkouunni á
fæðingardeiIdJna í sjúkráhúsinu.
Það eru ábyggilega allir sammála
6SLENDINGAÞÆTTIR