Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Page 7

Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Page 7
Valdeniar Pálsson fæddist á Vatnsenda í Eyjafirði, 11. júní 1889. Fullu nafni hét hann Krist- Ján Valdemar, en gekk jafnan und- Ir síðara nafninu, og nefndi liann sig það sjálfur. Foreldrar hans hétu Kristjana Sigurðardóttir og Páll Sveinsson, búandi hjón á Vatnsenda. Kristjana var dóttir Sig urðar bónda á Vatnsenda, Gíslason ar og síðari konu hans, Guðrúnar Kristjánsdóttur. Páll var sonur fátækra hjóna í Hólakoti, Guðbjarg ar Pálsdóttur og Sveins Sveinsson- ar. Þau hjón þóttu nokkuð sér- kennileg í athöfnum, hvort á sinn hátt, og öðruvísi en almennt tíðk- aðist í sveitinni. Sveinn var vel greindur og víðlesinn, en lítill verk maður. Hann var vel hagur á hend ur, einkum málma, kopar og siif- ur. Hann var smár vexti og burða- lítill. Guðbjörg Pálsdóttir var kona stórvaxin og talin meira en meðal- karlmanns ígildi að kröftum. Hún var verkkona mikil. jafnt við úti- störf sem inni. Hjálpsöm var hún við þá, sem erfitt áttu, og voru hjálparþurfi, og hjartahlýja hennar brást aldrei. Talið var af kunnugum, að Páll sonur þeirra hefði erft ílesta beztu eiginleika foreldra sinna. Hann var hagleiks- maður til allra starfa og verkmað- ur góður. Hann var veggjahleðslu- maður ágætur og eftirsóttur. Var sú list i miklum metum í þá daga, þegar byggingarefnið var aðeins heimafengið torf og grjót. Vöxt og burði erfði hann frá móður inni, hjálpsemi og fórnfýsi. Hann var vinsæll af sveitungum sínum, en hæglátur og hlédrægur. Kristjana, kona Páls. var prúð og mild í fram komu, og hvers manns hugljúfi er henni kynntist. Páll Sveinsson bjó allan sinn bú- skap á Vatnsenda, frá 1870 til 1899. Þeim hjónum varð ellefu barna auðið. Þar af voru sex svein- born, og það síðasta 1894, andvana. Öll þessi sveitabörn létust í frum- bernsku, nema Valdemar einn. Önnur börn þeirra Vatnsenda- hjóna voru meyjar, sem ali- ar koinust til fullorðinsára, sú elzta fædd 1869, og sú yngsta fædd 1877. Hún var því tólf árum eldri en Valdemar bróðir þeirra systra. Valdemar Pálsson ólst upp á Vatnsenda hjá foreldrum sínum við mikið ást- ríki og alúðlega umönnun móður sinnar og systra, sem allar elskuðu hann og dáðu þennan „litla bróð- ur“ sinn. og dekruðu við hann hver í kapp við aðra. Það veldur því nokkurri undrun, eins og uppeldi Vademars var háttað á barnsárunum, að hann skyldi ekki verða, er hann eltist, heimtufrek- ur, sérgóður og lítt tillitssamur um annarra hagi og líðan, eins og oft vill verða um dekurbörn. En svo varð eigi um Valdemar. Þetta virðist ljóslega benda til þess, að innsta eðli hans hefir í öndverðu verið byggt upþ af allt öðrum efnivið, svo sterkum og eðlisgrón- um, að jafnvel taumlítið dekur og dálæti ófullþroska æskuáranna, megnuðu ekki að hrekja þessar eigindir úr sínurn inngróna far- vegi út á flaustur eigin hagsmuna- hyggju og tillitsleysis um hagi samferðamannanna. Lífsferill Valdemars á þroska og manndóms árunum átti eftir að staðfesta þetta. Þegar Páll Sveinsson lét af bú- skap, tóku við jai'ðnæðinu á Vatns- enda tengdasynir hans Kristján Jósefsson, maður Sigrúnar Páls- dóttur, elztu systur Valdemars, og Jón Jónsson, maður Sveinbjargar Pálsdóttur, næstelztu systur Valdemars. Páll Sveinsson á Vatnsenda and- aðist 19. okt. 1903, 67 ára að aldri. Kristjana Sigurðardóttir, kona hans, lifði mann sinn enn um nokk ur ár. Hún lézt 1916. Valdemar hélt áfram heimili sínu á Vatnsenda, eftir lát föður síns á vegum mága sinna, Jóns Jónssonar og Kristjáns Jósefsson- ar og vann þeim. Á útáliðnum vetri 1905 var hann vjð nám hjá séra Jónasi Jónassyni á Hrafnagili. Haustið 1905 fór hann svo í gagn- fræðaskólann á Akureyri. Þar dvaldi liann svo veturna 1905 til 1906 og 1906 til 1907. En á útá- liðnum vetri 1907, veiktist hann af svæsinni lungnabólgu. sem sner ist upp í brjósthinmubólgu. Var hann þá mjög hætt kominn. En hraust líkamsbygging hans hjálp- aði til að hann náði furðu fljótt aftur heilsu. Þó mun hann aldrei hafa náð vinnuþoli og vinnuafköst um, þeim er hann áður hafði. Varð hann þá að hætta námi. Vorið 1909 fluttist hann að Möðruvöllum í Eyjafirði og kvæntist heitmey sinni, Guðrúnu Jónasdóttur. 25. sept. 1909. Guðrún Jónasdóttir fæddist 9. ágúst 1886. Foreldrar hennar voru Jónas Jónsson, síðast bóndi á Völlum í Saurbæjarhreppi og kona hans Sigurlína Hallgrímsdóttir. Kornung að aldri var Guðrún tek- in að fóstri af þeim hjónum Jó- hanni Jónassyni og Guðrúnu Jónas dóttur, systur Jónasar á Völlum. Jóhann og Guðrún bjuggu þá á Rútsstöðum í Öngulsstaðahreppi. Með fósturforeldrum sínum fiutt- ist Guðrún Jónasdóttir, þriggja ára gömul frá Rútsstöðum að Hól- um í Eyjafirði. Sama vorið og Guð- rún fluttist að Hólum frá Rúts- stöðum, vorið 1889, fæddist svein- barn á næsta bæ við Hóla, sem skírt var Kristján Valdemar. Örlög þessara tveggja ungmenna átti eftir að tengjast órjúfandi bönd- um, þar til yfir lauk vegferð þeirra hér á jörð. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.