Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Page 10

Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Page 10
vist að gæta barna. Þorste'nn var þá orðinn það stálpaður, að hann gat unnið fyrir sér, en Jón og Egill voru hjá raóður sinni og ólust upp með henni. Þóra gafst ekki upp, þó'tt erf- iðleikar steðjuðu að og kom sér nú vel kunnátta hennar í sauma- skap. Hún tók vinnu heim og hafði ofan af fyrir sér og börnum sín- um, sem heima voru, og allt bless- aðist þetta á sinn hátt með löng- um vinnudegi. Og árin liðu með skini og skúrum. Börnin uxu úr grasi, Þorsteinn lagði lieimilinu til afrakstur vinnu sinnar þangað til hann stofnaði sitt eigið heimili, en í starfi kynntist ég honum og seinna heimilinu, sem leiddi til þess, að Þóra varð tengdamóðir mín, en þar eignaðist ég góða tengdamóður og góðan vin og hélzt sú vinátta alla tíð. Þóra bjó lengst al' með Agli syni sínum, en síðar einsömul eða allt fram á áttræðisaldur, að hún fluttist til okkar Kristínar, en með okkur dvaldist hún fram yfir nírætt, eða þangað til hún veiktist snögglega 8. janúar 1967. Var hún þá flutt í sjúkrahús, en síðan í hjúkrunar- heimilið Grund við Hringbraut, 25. janúar 1967. Tvö barna hennar eru látin, Þor- steinn og Jón, sem dó á sóttar- sæng rúmlega tvítugur að aldri. Þóra fylgdist vel með börnum sínum og barnabörnum, en í seinni tíð hafði hún mikið yndi af lang- ömmubörnunum, enda voru þau á heimili með henni í nokkur ár. Yngsta langömmubarnið er Þóra, rúmlega eins árs’og kom hún með foreldrum sínum og systkin- um oft í heimsókn að Grund til þess að sjá og heilsa upp á gömlu konuna. Þóra andaðist að Grund föstu- daginn 4. desember, 97 ára að aldri, eftir þungbæra legu, en þreyttri sál var kærkomin hvíldin í trúnni á guð sinn og fyrirheilna landið. Þakkir færi ég vinum hennar og vandamönnum, sem heimsóttu hana og glöddu á ýmsan hátt. Sjálf ur þakka ég henni sérstaklega alla þá vinsemd sem hún jafnan sýndi mér. Línum þessum lýk ég með þakk- læti til starfsfólks Grundar fyrir þá góðu aðhlynningu og umönn- un, sem hún naut þar í hjálpar- leysi sínu. Oddur Odtlsson. MINNING JÚN BJARNASON Föstudaginn 19. febrúar s.l., var gerð frá Háteigskirkju í Reykjavík, útför Jóns Bjarnasonar Skólavörðu stíg 41, að viðstöddum mörgum ættingjum og vinum hans, en hann lézt þann 11. febrúar. Jón var um árabil starfsnraður Reykjavíkurborgar. Með Jóni er genginn stefnufastur atorkumaður, sem með áræði, drenglyndi og hag- sýni kom miklu í framkvæmd. Þar fóru ætíð saman orð og efndir. Ilann tilheyrði þeirri kynslóð, sem átti ísn bernsku- og æskuár á fyrsta áratugi þessarar aldar, þeg- ar ættjarðarljóð stórskáldanna voru sungin um landsbyggðina: „Aldar að morgni vöknum til að vinna.“ Margir þeirra manna, sem mót- uðust á þessum árum urðu síðar til að ryðja braut fyrir yngri borgar- ana og láta þeim eftir reynslu sína og hollráð. Jón Bjarnason fæddist að Geir- landi á Síðu í V.-Skaft. Þ.e.a.s. þar sem nefnt var Mosar, hinn 20. marz 1895. Foreldrar hans voru Sigríður Þorvarðardóttir og Bjarni Jónsson. Þau eignuðust 15 börn, en tiu komust til fullorðinsára. Af systkinum Jóns eru nú eftirlifandi Sigurjón elztur og systurnar Rann- veig og Jarþrúður allmiklu yngri. Jón Bjarnason var ungur að ár- um. er hann kynntist því að lífið er bæði „blítt og strítt“. Hann dvaldi á ýmsum stöðum og vann fvrir sér, um skólagöngu var naum ast talað á þeim tíma. Hann lærði „að bíða þess sem boðið er“, og sætta sig við það. Um tvítugsaldur kemur hann til Reykjavíkur, liggja þá saman leiðir hans og móður hans eftir nokkurn viðskilnað. Móð ur sinni reyndist hann einstaklega umhyggjusamur og nærgætinn sonur og samverustundirnar með henni urðu honum alltaf síðan eft- irminnilegar og kærar. Snemma á ævinni hóf Jón að stunda sjómennsku, bæði á fiski- skipum og flutningaskipum «g gekk að hverju öðru starfi, sem kostur var á, með árvekni og skyldurækni. Árið 1925 urðu þáttaskil i lifi Jóns, en það ár kvæntist hann Guð rúnu Sigurðardóttur, ættaðri úr Grunnavíkurhreppi í N.-ísafjarðar- sýslu. Hún lézt árið 1965, þá höfðu þau búið í farsælu hjónabandi fjóra áratugi. Þar hafði verið byggt á bjargi, sem aldrei bifaðist. Þau voru einstaklega samhuga og samhent í umhyggju sinni að búa börnum sínum gott heimili og tryggja velferð þeirra sem getan Ieyfði, og áttu líka barnaláni að fagna. Börn þeirra eru Aðalsteinn, verkfræðingur, Svava húsmóðir, Sigurður rafvélavirki og Hörður verkfræðingur. Það voru erfiðir tímar, sem gengu yfir, þegar Jón réðst í það að byggja sér íbúðarhús með tveim ur íbúð'um, síðar annað hús, en festi svo kaup á húsi, sem hann endurbyggði og bjó lengi í, eða þar 10 ÍSLENDINGAÞÆTTíR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.