Íslendingaþættir Tímans - 04.01.1973, Qupperneq 4
Frú Anna og séra Tryggvi
Kvaran á Mælifelli
A allrasálnamessu jjiaust var hald
in á Mælifelli i Skagaf. minningarhá-
tiö prestshjónanna frú Onnu og sira
Tryggva Kvarans. en hinn 31. mai sl.
voru 80 ár iiðin frá fæðingu sira
Tryggva. — Kirkjukór Mælifells-
prestakalls söng 3 sálma eftir sira
Tryggva og 1 sálm eftir Einar bróður
hans. og svo sálm sira Matthiasar:
,.Ó. blessuð stund, er burtu þokan líð-
ur". F'orsöngvari var organisti Mæli-
fellskirkju. Björn Ólafsson bóndi á
Krithóli. Sóknarpresturinn, sira Ágúst
Sigurðsson frá Möðruvöllum, flutti
prédikun allrasálnamessu og minn
ingu frú Onnu og sira Tryggva. —
Dætur þeirra. Hjördis Björg, sem gift
er Finni Kristjánssyni kaupfélags-
stjóra á Húsavik, og Jónina Guðrún,
gift Ólafi Kristjánssyni skrifstofu-
manni i Reykjavik. sendu hugheilar
kveðjur að Mælifelli þennan dag, en
þær áttu þess hvorug kost að vera við
minningarguðsþjónustuna á sinum
gamla og kæra heimastað. né heldur
fóstursonur þeirra hjóna. Kristmund-
ur Bjarnason fræðimaður á Sjávar-
borg.
Fer hérá eftir útdráttur úr ræðu sira
Agústs:
Frú Anna og sira Tryggvi Kvaran
létust bæði á bezta starfsaldri. hann 5.
ágúst 1940. 48 ára. en hún 7. nóvember
1944, 54 ára. Var að þeim mikil eftirsjá
i heimasveit og héraði. en þau voru
mikillar gerðar. gáfuð og góð. Eru þeir
margir samferðarmenn jarðnesku ár-
anna. er sakna þeirra enn. þótt langur
timi sé liðinn og flest orðið breytt.
Sira Tryggvi var fæddur á Undirfelli
i Vatnsdal 31. mai 1892. Sira Hjörleifur
faðir hans var son sira Einars i Valla-
nesi á Völlum Hjörleifssonar. prests á
Hjaltastað Þorsteinssonar. prests á
Krossi i Landeyjum Stefánssonar.
Kona sira Hjörleifs á Hjaltastað var
Bergljót Pálsdóttir prests á Valþjófs
stað, Magnússonar. Voru þau systra
börn, en mæður þeirra dætur sira
Hjörleifs á Valþjófsstað Þórðarsonar
og miðkonu hans Bergljótar Jóns-
dóttur prests að Hólmum. Guttorms
sonar prests þar. Sigfússonar.
Sira Hjörleifur Einarsson var prest-
ur i Blöndudalshólum i Blöndudal
1860—70, siðan i Goðdölum i Vesturdal
i sex ár. unz hann fluttist aö Undirfelli.
1884 lézt fyrri kona hans, Guðlaug
Eyjólfsdóttir frá Gislastöðum á Völl-
um. Elztur 5 barna þeirra var Einar
rithöfundur. fæddur i Vallanesi 6. des.
1859. Með siðari konu sinni, Björgu
Einarsdóttur frá Mælifellsá á Efri-
byggð. átti sira Hjörleifur aðeins tvö.
börn, Guðlaugu sem giftist Sigurði
Kristinssyni forstj. SIS, og sira
Tryggva. en er hann fæddist.hafði sira
Hjörleifur einn um sextugt. Hann lézt
1910. nær áttræðu, en frú Björg 1946,
hálf tiræö. Var hún á Mælifelli lengi,
en hlaut að hverfa þaðan. er sira
Tryggvi var allur. 1 minningarorðum
um sira Tryggva i Kirkjuritinu getur
herra Sigurgeir biskup þess, að frú
Björg væri mikilhæf kona og virt.
Sira Tryggvi var unglingur. er hann
missti föður sinn. Hélt hann eigi að
siður áfram námi og lauk stúdents-
prófi 1913. Var hann ekki full ráðinn
hvort gerast ætti prestur. þvi hann
nam fyrst læknisfræði um sinn. en i
febrúar 1918 lauk hann kandidatsprófi
i guðfræði. Sótti hann um Odda á
Rangárvöllum i þeim svifum. Voru
þeir fleiri. er siðar revndust afburða-
menn klerklegrar stéttar. er þar náðu
ekki hylli Rangvellinga. Þegar, er út-
séö varð um Oddann. réðist sira
Tryggvi aðstoðarprestur séra Sigfúsar
Jónssonar á Mælifelli og þá vigslu af
herra Jóni Helgasvni 2. júni 1918. Er
hann söng sinar fyrstu messur i Goð-
dölum og Ábæ þetta sumar var þess að
minnast. að liðin voru 42 ár frá þvi. er
faðir hans kvaddi söfnuði sina i Skaga-
fjarðardölum.
Hinn 29. júni 1919 giftust þau sira
Tryggvi og frú Anna. Fyrir rás örlag
anna fluttist hún nú norður hingað.
þótt um sinn sýndist. að svo yröi. að
maður hennar settist að brauði hinnar
nafnkenndu hefðar að Odda i heima
sveit hennar. Fú Anna var fædd 6.
september 1890. dóttir Grims hrepp-
stjóra og stórbónda á Kirkjubæ á
Ragnárvöllum Skúlasonar læknis
Thorarensens og konu hans Jóninu
Egilsdóttur frá Múla i Biskupstung-
um. Voru þau að 2. og 3. lið skyld.
Virðing þessa fólks hefur jafnan verið
mikil á Suðurlandi, sem kunnugt er.
Meöal bræðra frú önnu voru þeir Egill
kaupfélagsstjóri á Selfossi og Bogi
hreppstjóri á Kirkjubæ.
Er frú Anna fluttist að Mælifelli, var
sira Tryggvi þegar kósinn þar prestur
og skipaður, en sira Sigfús horfinn að
kaupfélagsstjórn á Sauðárkróki, frá-
bær hæfileikamaður i prestskap og
mikill bóndi.
Þegarsira Tryggvi tók við Mælifelli
var þar stæðilegur bær og timbur-
kirkja frammiá bæjarhólnum. Þessar
byggingar brunnu gersamlega i
hávaða suðvestan roki á réttardaginn
1921. Þegar á næsta sumri var efnt til
þeirrar húsagerðar, sem enn er prest-
setur á Mælifelli. og svo hin næstu
misseri hafizt handa um kirkjubygg
ingu. en hún var vigð 1924.
Þau hjónin festu bæði rætur hér á
staðnum. einnig frú Anna, þótt eigi
væri hún bundin ættarböndum i
Skagafirði. Þó að sira Tryggva væri
veittur Giaumbær á Langholti 1937
kom ekki til þess. að þau færu þangað
búnaði sinum. Sátu um kvrrt á Mæli-
felli með levfi kirkjustjórnarinnar. og
þjónaði sira Tryggvi Glaumbæjar- og
Viðimýrarsóknum þaðan. Sú ráðstöf-
un var aðeins bundin þeim timamörk-
um. sem jaröneskur dauði setti. Þess
skal getið. að sira Lárus Arnórsson á
Miklabæ tók Goðdali og Abæ i auka-
þjónustu. er sira Tryggva var form-
lega veittur Glaumbær.
A Mælifelli sér enn merki mikilla
verka sira Tryggva og frú önnu. Eins
er vist. að söfnuðir prestakallsins
geyma áhrifanna af frjálshuga boð-
skap sira Tryggva og mannkostum
þeirra hjónanna beggja. — Til prests-
þjónustu veljast. sem vænta má. menn
ólikrar gerðar og harðla sundurleitra
skoðana á kristnum boðskaparleiðum.
þótt trúin sé eins og Drottinn hinn
sami. Trúarlif safnaða. sem njóta
lengi mótunar mikils kennimanns. ber
og greinileg merki hans. Þannig er það
4
islendingaþættir