Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1973, Blaðsíða 9
Guðrún
Fædd 24. mai 18!)'.!.
Dáin 2(>. febrúar 1978.
Hinn 36. febrúar s.l. andaðist i
Sjúkrahúsi Akureyriar frú Guðrún
Gunnlaugsdóttir, Munka-Þverárstræti
4, Akureyri á 80. aldursári eftir
all-langa og erfiða sjúkdómslegu.
Guðrún, Rúna eins og hún var oftast
kölluð af ættingjum og vinum, var
fædd þann 24. mai 1893 að Bakka i
Svarfaðardal’, Eyjafjarðarsýslu. P"or-
eldrar hennar voru þau hjónin Gunn-
laugur Danielsson bóndi og Anna
Zophoniasdóttir. bæði hjónin svarf-
dælsk að ætt og uppruna, myndarhjón
orðlögð fyrir dugnað og mannkosti.
Guðrún missti móöur sina tveggja
ára gömul. Það var þungbær sorg fyrir
feðginin. en hún lézt af barnsburði og
barnið lika. Móðuramma Guðrúnar,
Soffia á Bakka i Svarfaðardal, tók litlu
stúlkuna i fóstur og var það mikil
hamingja fyrir Guðrúnu að fá að alast
upp hjá Soffiu ömmu sinni, sem gekk
henni i móðurstað. kenndi henni og ól
hana upp i Guðsótta og góðum siðum,
og mun Guðrún hafa búið að þvi alla
sina löngu ævi, enda var hún góð kona,
trúuð og bænheit trúði á Guð og annað
lif og mun ætið hafa lagt allt i hans
hendur. Mér er kunnugt um, að
Guðrún hafði þann góða sið að signa
sig og sina og heimili sitt á hverju
kvöldi. áður en gengið var til náða.
Betur væri að fleiri geröu slikt hið
sama. þvi að i umhverfi okkar eru ef-
laust mörg öfl. sem við þekkjum ekki,
né berum kennsl á.
Siðar á ævinni eignaðist Guðrún sjö
hálfsystkini. Það var alla tið mikil
vinæatta og kærleikur á milli hálfsyst-
kinanna og við útför Guðrúnar komu
sex þeirra um langan veg til að vera
við útför hálfsystur sinnar. Ein hálí'-
systirin gat ekki komið. en bað fyrir
alúðarkveðjur og þakklæti fyrir vel-
gjörðir sér veittar af elskulegri systur.
, L'm fjórtán ára aldur mun Guðrún
hafa farið að heiman frá sinni góðu
fóstur- og móðurömmu i vist i sinum
fagra Svarfaðardal. og siðar til Siglu-
fjarðar. Á sumrum fór hún oft i kaupa-
vinnu til Eyjafjarðar á sinum yngri
árum. Á veturna fékkst hún við
saumaskap og lærði allskyns fatasum.
enda mjög hög og léku öll störf i hönd-
um hennar.
islendingaþættir
Gunnlaugsdðttir
Arið 1913 réðst Guðrún i kaupavinnu 1
að Ytra-Hóli i Ongulstaðahreppi,
Eyjafjarðarsyslu og var það mikil
gæfa fyrir hana, þvi að þar hitti hún
mannsefnið sitt Björn Sigmundsson,
son hjónanna á Ytra-Hóli, úrvals-
mann, velgreindan og góðan dreng.
Þau Giftu sig 24. júli 1915, og áttu
fyrstu búskaparárin sin heima að
Ytra-Hóli. Árið 1924 fluttu þau til
Akureyrar. og þar gerðist Björn
starfsmaður Kaupfélags Eyfirðinga
og starfaði þar i marga áratugi. og sið-
ast. sem deildarstjóri byggingardeild-
ar K.E.A., — Björn hefur ætið verið
mikill áhugamaður um leiklist og
varði hann flestum fristundum sinum i
þágu leiklistarinnar. Hann starfaði
mikið hjá Leikfélagi Akureyrar og
hefur á löngum leikferli sinum veitt
Akureyringum og öðrum leikhúsgest-
um ógleymanlegar ánægjustundir i
Leikhúsi Akureyrar.
Guðrún og Björn byggðu sér gott
einbylishús að Munka-Þverárstræti 4,
Akureyri. þar eignuðust þau einkar
fallegt og hlylegt heimili og ræktuðu
við hús sitt fagran skrúðgarð. 1 húsi
sinu rak Guðrún saumastofu i mörg
ár, og hjálpaði hún mörgum konum að
snfða og sauma fallega flik fyrir lítinn
eða engan pening, og var hún vön að
segja: ,,Aö hún yrði ekkert fátækari
þrátt fyrir að hún miðlaði öðrum af
kunnáttu sinni’’. Guðrún var sérstak-
lega gjöful, góð og gestrisin kona, glöð
og skemmtileg heim að sækja, enda
var létt fyrir heimili þeirra og það orð-
lagt fyrir gestrisni og myndarskap.
Má með sanni segja að þessi góðu og
glaðværu hjón, væri samhent i að taka
vel á móti sveitungum sinum og öðrum
gestum til dvalar um lengri eða
skemmri tima. Þar var sannarlega
„setinn Svarfaðardalur”.
Guðrún og Björn eignuðust fjögur
mannvænleg börn. Þau eru: Sigmund-
ur deildarstjóri, Akureyri, kvæntur
Sigrúnu Gisladóttur. Anna gift Ölafi
Sigurðssyni yfirlækni Akureyri. P’inn-
ur flugvélavirki Reykjavik kvæntur
Hönnu Ármann og Vikingur bifreiða-
stjóri Akureyri kvæntur Mörtu
Kristjánsdóttur. Alls eru barnabörnin
ellefu og þrjú barnabarnabörn, friður
og fallegur hópur, sem naut mikillar
ástúðar og kærleika hjá ömmu og afa.
t heimili Guðrúnar og Björns, hefir um
árabil dvalið systir Björns, Elinrós, og
voru þær mágkonurnar afar
samrýn dar og rikti mikill kærleikur
þeirra i milli. Nú annast Elinrós bróð-
ur sinn á 82. aldursári af umhyggju og
ástúð.
Guörún heitin var mikil friðleiks-
kona og tfguleg i framkomu, hreinlynd
og sagði hreint og djarft það sem henni
bjó i brjósti. Guðrún var mikil gæfu-
kona. Hún var góð og elskuleg eigin-
kona, móðir, amma og tengdamóðir,
og liföu þau hjónin i tæp 58 ár i farsælu
hjónabandi, og er þvi fyrir mikið að
þakka.
Um leið og ég kveð þig.elsku Rúna
frænka. með virðingu og þökk, bið ég
Drottin Guð að blessa þig i þinum nýju
heimkynnum. Eftirlifandi eiginmanni
þinum, börnum barnabörnum og
tengdabörnum votta ég og fjölskylda
min okkar dýpstu samúð.
Útför Guðrúnar fór fram frá Akur-
eyrarkirkju þann 6. marz s.I. að við-
stöddu fjölmenni.
Blessuð sé minning hennar.
Valgerður Björnsdóttir.
9