Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1973, Blaðsíða 18

Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1973, Blaðsíða 18
Arni mér að láta syni sina róa mér yfir fjörðinn, svo að ég mætti afla mér fylgis einnig á norðurbyggð fjarðarins. betta gerðu þeir bræður, og mun mér ekki úr minni liða. Nú skal ekki orðlengt frekar um þessi kynni, en prestur varð ég á Seyðisfirði i 23 ár með tilstyrk Árna Vilhjálmssonar og annarra góðra manna þar og áttum við Arni eftir að eiga saman marga góða stund og langt og gott samstarf. Árni Vilhjálmsson var af rótgrónum bændaættum i bæði kyn, i föðurætt úr Mjóafirði, góðkunnri, en móðurættin var að norðan, svo kölluð kjarnaætt, komin af bórði á Kjarna, svo sem kunnugt er. Merkilegt er, að ættin skuli vera kennd við þenna bæ, þvi að staðreynd er, að ætt þessi er sann- kölluð kjarnaætt. bað er svo mikið táp i henni. Einn merkasti maður ættar- innar er sennilega séra Friðrik Frið- riksson. , Manni dettur i hug: „Táp og fjör og friskir menn”, þegar minnzt er á Kjarnaætt. Arni fæddist á Hánefsstöðum i Seyðisfjarðarhreppi. Foreldrar hans voru Vilhjálmur Arnason, bóndi og útgerðarmaður (hann var frá Mjóafirði) og Björg Sigurðardóttir, kona hans á Hánefsstöðum ihún var af Kjarnaætt). Vilhjálmur á Hánefs- stöðum var nýlega látinn, er ég gerðist prestur Seyðfirðinga, en Björg lifði til hæstu elli, og kynntist ég henni vel. Hún dvaldi á heimili sonar sins Hjálmars Vilhjálmssonar, þá sýslu- manns Norð-Mýlinga, nú ráðuneytis- stjóra félagsmálaráðuneytisins. Hún lézt á tiræðisaldri og hélt heilsu, höfðinglegri reisn og andlegu þreki hér um bil fram i andlátið. Hún var eftir- minnilegur persónuleiki. Arni ólst upp á Hánefsstöðum með foreldrum sinum og 6 mannvænlegum systkinum. Heimilið var alþýðlegt menningarheimili og höfðinglegt al- þýðuheimili. Slikt hefur það verið ætið siðan undir stjórn Sigurðar heitins, bróður Arna, sem tók við ættarleifð á búinu, og siðan undir bústjórn dóttur Sigurðar og tengdasonar. Vilhjálmur á Hánefsstöðum vildi manna börn sin. Hann fékk þeim heimiliskennara að kenna bókleg fræði. Sjálfur kenndi hann til verka til sjós og lands. Hann var útgerðar- maður og sveitabóndi. Hvort tveggja hélzt i hendur á Hánefsstöðum. Fljót- lega eftir fermingu fór Arni að róa til fiskjar á báti föður sins. Árni stundaði nám i Gagnfræðiskólanum á Akureyri og siðan i Sjómannaskólanum i Reykjavik. Aðalstörf hans siðar urðu lika sjómennska og útgerð. Hann var góður sjómaður vegna reynslu á æsku- árum og siðar ágætur skipstjórnar- maður eftir lærdóm og reynslu. Hann var gætinn og hygginn útgerðarmaður. beir, sem muna kreppuárin milli 1930 og 40, vita, að sjómennska og útgerð voru ekki dans á rósum, þótt lifsnauðsyn væru þjóðinni. bessi erfiðu ár reyndu á ýtrustu krafta og þrautseigju. bessa miklu þolraun stóðst Arni Vilhjálmsson. Hann stóð að visu ekki einn. Hann átti ágæta konu. Fjölskyldan stóð saman sem einn maður væri. 011 fjölskyldan vann saman áð útgerðinni. Sem að likum lætur, lagði Arni gjörva hönd á margt og var falinn margskonar trúnaður. Hann var skoðunar- og mælingamaður skipa á Austfjörðum mörg ár. Einnig annaðist hann eftirlit og leiðréttingar siglinga- tækja. Hann var lengi erindreki Fiski- félags Islands og fulltrúi Austfirðinga á mörgum fiskiþingum. Slysavarnamál lét hann mjög til sin taka. Var hann fjölda ára og allt til dauðadags i stjórn Slysavarnafélags tslands. Hverju góðu máli vildi hann leggja lið og lagði lið. Hann var sannur þegnskaparmaður. Mikil væri farsæld þessarar þjóðar, ef allir synir landsins væru slikir sem Arni var. Góður sonur Islands var hann, en ekki var hann siðri sonur kirkjunnar. Af sama þegn- skap, sem hann þjónaði landi sinu i leynd og látleysi, þjónaði hann kirkju sinni. Lengstan tima sem við áttum samleið við Seyðisfjörð, söng hann við guðþjónustur. Hann var mjög söng- elskur og hafði ágæta bassarödd. Allir tóku eftir, ef Arna vantaði i kirkjukór- inn. bá vantaði hinn djúpa, hreina og karlmannlega tón i lofgjörðina. „bað er til einn tónn og hann er hreinn” segir Nóbelsskáldið i einu ritverki sinu, og e.t.v. skil ég þessi fjarstæðu- kenndu orð skáldsins að einhverju leyti, er ég minnist Arna. Arni var maður, sem minnti á hreinan tón. Árni var i sóknarnefnd Seyðisfjarðarkirkju mörg ár og formaður sóknarnefndar nokkur ár áður en hann fluttist suður. Hann var sannur og traustur eins og djúp og hrein rödd hans. Samstarf okkar var gott, ógleymanlega gott. bökk sé þér, vinur minn. Arni Vilhjálmsson missti Guðrúnu sina árið 1957. Sár sorg nisti hjarta hins viðkvæma góðmennis. Hún var eins djúp og gleöi hins heilbrigða hamingjumanns ris hátt á björtustu dögum lifsins. Ég fékk að skyggnast inn i hugarfylgsni hins þjáða, en æðru- lausa karlmennis. En hamingja Árna var ekki öll. Hann átti eftir að eignast aðra ágætis- konu. Hann kvæntist öðru sinni Magneu Magnúsdóttur árið 1961, og hafa þau átt góða sambúð og gott heimili hér i Reykjavik, unz Árni var brott kallaður. Einn sona Árna hefur látið svo um mælt um föður sinn: „Návist hans veitti i rikum mæli festu og öryggi. Hann var mikill gæfumaður, átti ágæta foreldra og gott æskuheimili, systkinin óvenju vel gerð og hinar ágætustu eiginkonur. Enda kunni hann vel að meta gæfu sina og gerði sitt til, að hún mætti endast”. betta er satt og vel mælt og mætti hver faðir genginn vel una slikum vitnisburði sonar sins. Kæri vinurminn, Arni Vilhjálmsson. bessi fátæklegu eftirmæli eru að öðrum þræði bréf til þin. bú óskaðir þess, að ég fylgdi þér hinzta spölinn og • veitti þér yfirsöng. Af þvi gat ekki orðið, sakir lasleika, sem að mér steðjaði. bessar linur, sem ég hef hér ritaö eru, eða eiga að vera einskonar yfir- bót — en jafnframt hinzta kveðjan til eins bezta manns, sem ég hef mætt á lifsleið minni. Hvil i friði. Rætist trú okkar. Erlendur Sigmundsson 18 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.