Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1973, Síða 16
Karl Guðjónsson
fyrrv. alþingismaður, Vestmannaeyjum
Þann 7. marz s.l. andaðist á sjúkra-
húsi hér i borg Karl Guðjónsson,
fyrrv. alþingism. i Vestmannaeyjum,
rúmlega 55 ára að aldri. Leið okkar
Karls Guðjónssonar lá fyrst saman
1956, er ég tók sæti á Alþingi i fyrsta
sinn. Þá vorum við i hópi þeirra, er
voru kosnir af flokkum okkar i fjár-
veitinganefnd og áttum þar samleið til
ársins 1963. Karl Guðjónsson var
kosinn formaður fjárveitinganefndar
haustið 1956 og gegndi þvi starfi á
er hún missti mann sinn á sviplegan
hátt frá tveimur ungum dætrum og
þriðju undir belti. Ekki var beðið um
hjálp, að ég til vissi, en Sigurfinnur
kom eins og hendi væri veifað frá
annariku búi, eiginkonu og tveimur
ungum sonum með þau smyrsli sem
dugðu og var hjá þeim á aðra viku.
Þetta óvenjulega bróðurþel, dreng-
skap og allt annað þakka þær nú af
hrærðu hjarta.
Unnur minnist þess lika, þegar
dætur hennar voru á heimili þeirra
hjóna á öllum tima árs og nutu alls
hins bezta sem hægt var. Ég hafði lika
gaman af að taka þátt i gleði þeirra,
þegar verið var að búa sig af stað
austur i Stardal. og einnig að taka á
móti þeim þegar þaðan var komið.
Þær komu ætið þrungnar fögnuði og
lifsgleði, með ógleymanlegar minn-
ingar af samskiptum góðra manna og
fallegra dýra.
Erla, elzta dóttir Unnar, sem er gift
og búsett austur á Hornafirði, naut
ekki siður ástrikis á þessu örláta
heimili. Þess vegna er hugur hennar
óskiptur þar nú. Vegna fjarlægðar
getur hún ekki komið, og biður hún
Guð að blessa minningu frænda sins.
Við Unnur, dætur hennar og menn
þeirra, vottum Sólveigu og sonum
hennardýpstu samúðog biðjum góðan
Guð að blessa þau og þeirra heimili.
Kæri vinur. Nú tekur móðir jörð þinar
jarðnesku leifar i fang sitt, en andi
þinn er frjáls og svifur á vængjuðum
gandi friðar, vonar og gleði inni
musteri eilifðarinnar.
Bjarni M. Jónsson.
þremur þingum. eða til vorsins 1959.
Karl Guðjónsson hafði setið á Alþingi
næsta kjörtímabil á undan og var þvi
nokkuð farinn að venjast þingstörfum,
er hann gerðist formaður fjárveitinga-
nefndar, en hafði hins vegar ekki áður
tekið þátt i störfum f járveitinga-
nefndar. Honum var mikill vandi á
höndum. þegar hann tók þetta starf að
sér. Hann var einn úr sinum flokki i
nefndinni. Meirihluti nefndarinnar var
þá samansettur af 4 Framsóknar-
flokksmönnum. einum Alþýðubanda-
lagsmanni. sem var Karl. og einum
Alþýðuflokksmanni. en allir vorum við
stuðningsmenn þeirrar rikisstjórnar,
sem þá sat við völd. það var rikisstjórn
Hermanns Jónassonar. 1 nefndinni
voru fyrir. bæði úr hópi okkar
Framsóknarmanna. þaulvanir
forystumenn úr fjárveitinganefnd
Alþingis, eins og Halldór Asgrimsson
frá Vopnafirði og Karl Kristjánsson
frá Húsavik. En úr hópi Sjálfstæðis-
manna var Pétur Ottesen meðal
þeirra manna. sem áður sátu i fjár-
veitinganefnd og hafði m.a. gegnt þar
formannsstörfum. Ég efast ekki um
það. að Karl Guðjónsson gerði sér
grein fyrir þvi, er hann hóf störf, sem
formaður þessarar nefndar, að verk-
efni sem framundan var, var ærið
vandasamt, bæði vegna þess að vinna i
fjárveitinganefnd Alþingis er alltaf
mikil og vandasöm og þá sem fyrr og
siðar gekk erfiðlega að ná endum
saman, þar sem fjárlagatekjur ná
sjaldan þvi, sem löngun Alþingis
manna er til athafna á sviði þeirra
umbótamála, sem þeir vilja vinna að.
En þar að auki bættist það við, sem
vandamál Karls, að hann, nýliði i fjár-
veitinganefnd, gerðist þar formaður
innan um þessa æfðu fjárveitinga-
nefndarmenn, sem þar voru fyrir. Það
sýndi sig þegar i upphafi, að Karl
Guðjónsson hafði til brunns að bera,
þá hæfileika, sem gerðu það að
verkum. að hann sat sæti sitt vel.
Hann var skapfestu- og heilsteypu-
maður. Alveg laus við fum. Hann var
einnig afskaplega samstarfslipur og
gætti þess, að halla hvorki á samherja
né andstæðinga i viðskiptum i störfum
nefndarinnar, þó að hann væri jafn
ákveðinn með sinar skoðanir, er til
þeirra þurfti að taka. Honum tókst þvi
fljótlega að ná tökum á nefndinni. og
vinnubrögð voru þar öll með ágætum
og samskipti þeirra nimenninga. sem
voru úr 4 stjórnmálaflokkum, gengu
vel um dagleg störf fjárveitinga-
nefndar.
Ekki þarf orðum að þvi að evða. að
sjónarmið okkar. sem mynduðum
meirihluta, og stóðum að stjórn
Hermanns Jónassonar. voru að sjálf-
sögðu ólik um margt. Ahugaefni ol'.kar
um fjárveitingar voru lika misjöfn. En
þó að Karl Guðjónsson hefði á ýmsum
hlutum aðrar skoðanir en við
samstarfsmenn hans i meirihlutanum
höfðu, þá kom það ekki til neinna
vandræða. heldur tókst að leysa það
með lipurð og festu og halda i horfinu,
svo að fjárlagaafgreiðsla vrði með
skikkanlegum hætti, sem var
sameiginlegt áhugamál okkar allra.
Karl Guðjónsson lifði það einnig i
störfum sinum. sem formaður fjár-
veitinganefndar, að vera kominn i
andstöðu við þá rikisstjórn. sem hann
starfaði fyrir. meðan á fjárlaga-
16
islendingaþættir