Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1973, Page 23
og kynni öll, og óska svo þessum gáf
aöa drengskaparmanni, konu hans og
fólki hans ööru blessunar og farsældar
á ókomnum árum.
Jóh. Salberg Guömundsson
Hinn 25. marz s.l. varð Gisli
Magnússon, bóndi i Eyhildarholti átt
ræður. Gisli er fæddur að Frosta-
stöðum i Blönduhlið, sonur Magnúsar
Gislasonar, bónda þar og konu hans
Kristinar Guðmundsdóttur frá Gröf i
Laxárdal i Dalasýslu. Þeim hjónum,
Magnúsi og Kristfnu, búnaðist vel á
Frostastöðum. Bjuggu þau þar lengi
stærsta búi i Skagafirði, og var
Magnús talinn einn af auðugustu
bændum landsins, jafnt að jörðum og
lausafé.
Gisli Magnússon ólst upp með
foreldrum sinum á hinu stóra og um-
svifamikla heimili að Frostastöðum.
Þar gekk hann að sjálfsögðu að öllum
bústörfum með föður sinum og öðru
heimilisfólki. Hafði hann strax i
bernsku sérstakt yndi af sauðfé
og hrossum enda varð hann ungur
ágætur fjármaður. Sú list var meira
metin áður fyrr en nú á siðustu árum.
en er ávallt frumskilyrði þess, að
fjárbúið geti orðið bóndanum i senntil
arðs og yndis.
Gisli Magnússon lauk gagnfræða-
prófi frá Menntaskólanum i Reykjavik
1910. Hann var námsmaður ágætur og
hefur án efa átt kost á langskólanámi,
er þá þótti forréttindi ungra manna,
þvi i þá daga hindraði fátæktin skóla-
göngu margra hæfileikamanrta. Gisli
valdi hina leiðina. Hugur hans stóð til
búskapar i hinni fögru heimabyggð.
Hann ákveður að búa sig sem bezt
undir framtiðarstarfið, fer i bænda-
skólann á HÓlum haustið 1910 og
brautskráist þaðan vorið 1911. Frá
1912-1914 stundar Gisli svo búnaðar-
nám i Noregi og Skotlandi, sérstaklega
sauðfjárrækt.
Eftir heimkomuna 1914 vinnur Gisli
að búi foreldra sinna að Frostastöðum
til vorsins 1923. Hann kvæn tist 19. júli
1917 Guðrúnu Stefaniu Sveinsdóttur,
bónda á Skatastöðum i Austurdal. Þau
hjón kaupa hið fagra stórbýli Ey-
hildarholt i Ripurhreppi, vorið 1923,
setja þar þégar saman bú og hafa búið
þar óslitið siðan, þó að siðustu árin
hafi yngstu synir þeirra að mestu tekið
við búskapnum.
Eyhildarholt er kostamikil og fögur
jörð, en gölluð, þar eru túnræktarskil
yrði litil, vegna þess, hve landið allt
liggur lágt, en mikil og grasgefin
engjalönd og frábært beitiland á hinni
vfðáttumiklu Borgareyju, þegar hún
liggur ekki undir vatni og is. En jörðin
er erfið, vegna þess að daglega þarf að
fara til bústarfa fram og aftur yfir
Héraðsvötnin eða kvislar úr þeim á
bátum eða hestum, ekki aðeins með
fólk og tæki, heldur einnig búsmala
allan margan daginn.
Nú hafa þau hjón Gisli og Guðrún,
búið I Eyhildarholti i hálfa öld á næsta
vori. Þau hafa fyrir löngu siðan gert
garðinn frægan. Fyrir tvennt er Gisli
kunnastur, afrek i sauðfjárrækt og
farsæl félagsmálastörf i þágu sveitar
sinnar og sýslu og landsins alis.
Gisli i Eyhildarholti er fjölhæfur
gáfumaður, fagurkeri, fremur dulur
að eðlisfari, tilfinninganæmur og
drengur góður. Ég kynntist honum
fyrst haustið 1938, er ég var á hrúta-
sýningarferð um Skagafjörð. Ég hafði
haldið sýningar i flestum sveitum
Skagafjarðar áður en ég kom i Ripur-
hrepp. Ég hafði veitt þvi athygli, að
sumir allra beztu hrútarnir i sýslunni
voru ættaðir frá Eyhildarholti, og þeir
báru það með sér, að þeir voru af þaul-
ræktuðum stofni. Hlakkaði ég þvi til að
koma i Eyhildarholt og sjá hvað Gisli
bóndi átti heima, úr þvi hann hafði selt
frá sérsvo ágætarkindur, sem ég hafði
séð. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum.
Hafði ég aldrei fyrr séð jafnmarga og
vel ræktaða hrúta á einu búi. Þeir báru
með sér, að þar hafði snillingur að
verki verið. Hvar sem á þá var litið
eða á þeim tekið blöstu við kostirnir og
kynfestan. Þeir höfðu stutt, svert og
reist höfuð, miklar granir, flenntar
nasir, gleiða, sterka kjálka, gleitt
setta, stutta og svera fætur, stuttan,
sveran háls, frábærlega jafnvaxinn
og holdmikinn bol, hæfilega langan,
framstæða breiða bringu, útlögur
rifjanna framúrskarandi hvelfdar,
herðar ávalar, bakið breitt, kúpt og
holdgróið, malir breiðar og holdgrónar
og lærin stutt og frammúrskarnadi
vöðvafyllt.
Svipmót fjárins var hið ákjósanleg-
asta, ullin yfirleitt ágætlega hvit, and-
litið á sumu hvitt með dökkum dröfn-
um og dökkum grönum, en á öðru
igult. Þessi frábæri fjárstofn var
felldur við fjárskiptin. Þótt reynt væri
að varðveita eiginleika stofnsins með
sæðingum, þá mistókst það til ómetan-
legs tjóns fyrir islenzka sauðfjárrækt.
En lífið heldur áfram, þótt mannanna
verk misfaristoft.Nýrfjárstofn kom að
Eyhildarholti við fjárskiptin, rauna-
lega lélegt fé miðað við gamla stofn-
inn. En tekið var til óspilltra mála við
ræktunina með allgóðum árangri. Nú
eiga þeir Eyhyltingar ágætt fé, þótt
það jafnist ekki á við gamla stofninn.
Hæfileikar Gisla i Eyhildarholti hafa
einnig notið sin á félagsmálasviðinu.
Hann hefur gengt langtimum saman
islendingaþættir
flestum þeim störfum á sviði félags-
mála, sem til falla i einu sveitar- og
sýslufélagi, Hann átti sæti i hrepps-
nefnd Ripurhrepps um 37 ára skeið og
var oddviti i 24 ár, sýslunefndarmaður
siðan 1942, i yfirskattanefnd Skaga-
fjarðarsýslu siðan 1934 i stjórn Kaup-
félags Skagfirðinga fyrst 1919—1922 og
aftur 1939 til þessa dags og hefur verið
varaformaður þess siðan 1946. Gisli
hefur eins og margir mændur á Norð-
urlandi verið^ mikill unnandi Hóia-
skóla. Hann var prófdómari við þann
skóla um langt árabil, og svo mikils
hefur hann metið þessa menntastofn-
un, að allir synir þeirra Eyhildarholts-
hjóna, niu að tölu, eru búfræðingar frá
Hólum. Þykir mér óliklegt að svo hefði
til tekizt, ef Gisli hefði ekki talið skól-
ann eftirsóknarverðan ungum mönn-
um.
Gisli var kjörinn varafulltrúi á
Búnaðarþing 1942 og aðalfulltrúi 1962
og siðan. Hefur hann alls setið á 13
Búnaðarþingum. Störf Gisla á Búnað-
arþingi i félagsmálum yfirleitt hafa
einkennzt af þvi að fylgja ætið af festu
og fullum drengskap hverju góðu máli,
sem lfklegt er að verði til framfara á
sviði menningar og hagsældar fólksins
i landinu, einkum þess er skarðastan
hlut býr. Hann hugsar öll málvandlega
lætur sér eigi óðslega um skjótan
framgang þeirra, en kvikar hvergi frá
þeim málstað, er hann telur réttan.
Hann biður heldur átekta og sætir lagi
þegar færi gefst til að koma þörfu máli
1 höfn.
Gisli Magnússon i Eyhildarholti
hefur verið formaður Framsóknar-
félags Skagfirðinga frá stofnun þess
1928. Hann hefur ætið verið ótrauður
baráttumaður þess flokks og sam-
vinnustefnunnar.
Gisli i Eyhildarholti er frábær
ræðusnillingur og löngu landskunnur
fyrir blaðaskrif sin. 1 ræðu og riti er
hann gagnorður og rökfastur og
beitir islenzkri tungu af leikni og
smekkvisi málsnillingsins.
Þau Eyhiidarholtshjón, Guðrún og
Gisli, eignuðust 13 börn, 2 dóu i frum-
bernsku, en 11 eru enn á lifi, 9 synir og
2 dætur, allt hið bezta fólk. öll eru
börnin búsett i Skagafirði.
Heimilið i Eyhildarholti er eitt af
þessum landskunnu hlýleika og
menningarheimilum. Þangað er gott
að koma. Veldur þar mestu alúð, gáfur
og höfðingslund húsráðenda.
Ég árna Gisla i Eyhildarholti allrar
blessunará ókomnum árum. Við hjón-
in þökkum honum ótal ánægjustundir,
þvi jafnan hefur hann verið mestur
aufúsugestur á heimili okkar.
Halldór Pálsson.
23