Heimilistíminn - 07.05.1975, Blaðsíða 18
6. maí
Það liggur i eðli þinu að rannsaka og
spyrja og meira að segja sem barn reynd
irðu alltaf að komast að ástæöum og inni-
naldi hlutanna. Sennilega hefurðu oft far-
ið i taugarnar á heimilisfólkinu, þar sem
þú varst alltaf að leita réttra svara.
Þetta verður mjög áberandi, þegar þú
ferð aö starfa og mikið af velgengninni og
frægðinni áttu forvitninni að þakka.
Ahugamál þin i lifinu geta veriö ærið
andstæð. Þött þú sért hrifinn af listum og
skapandi störfum, ertu lika hagsýnn og
svo getur farið að þú lærir iðn, lifir af
henni og gangi vel. Ef til viil nærðu frama
á sviði lista, en hættir og snýrð þér að við
skiptum, en veröur þó ekki ánægður. Ef
þú heldur fast við hugsjónir þinar geturöu
verið viss um frægö og velgengni.
Þú eignast auðveldlega vini, þótt þú
sért svolitið til baka og virðist oft merki-
legur með þig. Um leiö og þú viðurkennir
einhvern i þinn hóp, er þaö um aldur og
ævi. Þú stendur alltaf með vinum þinum
og fórnar oft miklu þeirra vegna. Hjóna-
band þitt verður að likindum hamingju-
samt, en gættu þess að velja maka, sem
getur fylgzt með þér.
7. mai
Persónuleiki þinn er óvenju viðáttumik-
ill, ef svo má segja og verður til þess að þú
kemst i snertingu við alla hluti. Þótt þú
hafir áhuga á menningarmálum, ertu
ekki á móti þvi að græða peninga á list
þinni, ef hægt er. Þú ert ekki einn af þeim,
sem álitur listina þurfa að svelta i þak-
herbergi til að halda áfram aö vera list.
En þú ert þeirrar skoðunar að hverjum
eigi að borga eftir afköstum og þar eigi
listamenn ekki að vera undan skildir.
Þú hefur einstakan hæfileika til að
skipuleggja lif annarra. Þú getur gert
mikið fyrir fólk.'sem erfitt er að komast
aö. Þú getur sett á svið opinbera sýningu,
svo allt gangi eins og i sögu og verið vin-
sælt. Þér likar vel að vera sá aöili sem
stendur að baki hlutunum og stjórnar. Þú
værir frábær umboösmaöur skemmti-
krafta, framkvæmdastjóri, ræðumaður
og fleira, en hvaö sem þú tekur þér fyrir
hendur, mun alltaf einhver listgrein veröa
tómstundastarf þitt, einkum ef þú getur
unnið að henni heima.
Þú ert tilfinningarikur og ástriöufullur
og elskar börn. Þú yröir ánægöastur með
að giftast snemma og eignast stóra fjöl-
skyldu en ef þaö er ekki hægt veröuröu
bezti frændi eöa frænka I heimi.
Það er hægt að lifa góðu lifi i Englandi
....ef maður lætur sér nægja morg-
unverð og siðdegiste.
Kona getur þagað vandlega fyrir þeim
ieyndarmálum, sem hiín veit ekki.
Gáfaðir menn eru ekki vinsæl-
ir..þess vegna geri ég mig heimskari
en ég er.
Nií á ég fjögur börn til að lyfta þeim
arfi, sem ég læt ekki eftir mig.
4
Sumir halda að maður sé málefnaleg-
ur, þegar maður er leiðinlegur.
Áhrifamesta jáiö er neeeeeið, sem ást-
fangin stúlka hvíslar.
Til eru lika þeir, sem geta ekki svikið
undan skatti.
*
Stuttur kjóll getur orðið til að karl-
maður hleypi konu á undan sér inn I
strætisvagn.
*
Ef enginn segði neitt án þess að hafa
vit á þvi, yrði óhugnanleg þögn á jörð-
inni.
Adam borðaði eplið. Við hin þjáumst
enn af tannpinu.
Dásamlegt væri að geta lokað eyrun-
um eins snögglega og augunum.
18