Heimilistíminn - 13.05.1976, Qupperneq 5
bætti það li'ðan sjóræningjanna, á göng-
unni til Panama. En þegar þeir voru
komnir alla leið, reyndist þetta þeim
happadrjúgt, þar sem jörðin var orðin að
þykkri leðju, hvað gerði riddaraliðssveit-
um Spánveija ókleift aö hafa stjórn á
hestum sinum og i orrustunni, sem á eftir
kom, máttu riddararnir sin litils sem
einskis.
Panama logar
Sjóræningjarnir létu til skarar skriða
gegn Panamaborg. Orrustan stóð i þrjár
klukkustundir og endaði með þvi að Spán-
verjar voru gjörsamlega ofurliði bornir.1
Þeir misstu 600 manns fallna og álika
margir særöust.
Sjóræningjamir dvöldu I Panamaborg i
þrjár vikur og reyndu að komast að þvl,
hvar auðæfin væm geymd. Allir þeir
Spánverjar, sem ekki höfðu haft vit á að
flýja, urðu nú að sæta hinum verstu pynd-
ingum.
En pyndingamar báru litinn árangur.
Aðeins brot af fjársjóðnum kom fram I
dagsljósið með þeirri aðferð. Sótrauður af
vonzku brenndi þá Morgan borgina til
grunna.
Leiðin til Atlantshafsstrandarinnar var
viðburðasnauð Morgan og mönnum hans,
en þegar ströndinni var náð, lögðust þeir
allir til svefns. En meðan flestir sváfu,
tóku Morgan og nokkir útvaldir úr hópn-
um sig til, skipuðu fjársjóðnum um borð I
þrjú skip og sigldu til hafs I skjóli nætur.
Þegar svo hinir yfirgefnu sjóræningjar,
náðu loks að komast til Jamaica, ákveðn-
ir I að hefna harma sinna á Morgan, urðu
þeir fyrir vonbrigðum. Morgan hafði snú-
ið aftur til Englands, og snúið sögu sinni
svohaglega við, að yfirvöldin gerðu hann
að landsstjóra á Jamaica. Næst þegar
hann hitti sfðan gömlu skipsfélagana sína,
brá hann snöggt við og lét hengja þá alla.
Einhvemtima fannst kort, sem sýndi að
Ibúar Panama hefðu grafið auðæfin I
göngum og hellum undir borginni. En þá
var svo vel gróið yfir rústirnar, að ó-
mögulegt var að finna þá staði, sem
merktir voru á kortinu.
En Breti nokkur, George Williams
freistaði þar gæfunnar nokkru eftir
heimsstyrjöldina fyrri. Hann notaði
málmleitartæki og tókst að finna hluta
fjársjóðsins falinn undir rústum hallar
biskupsins.
En dýrmætasti gripurinn fannst ofan
jarðar. Það var gullaltarið mikla, sem
ibúarnir höfðu málað yfir og skilið eftir
þar sem það stóð. Þessi dýrgripur er enn i
Panama, þar sem ferðalangar geta séð
hann.