Heimilistíminn - 02.12.1976, Blaðsíða 16

Heimilistíminn - 02.12.1976, Blaðsíða 16
: " ■ ■ Kver með útlendum kvœðum ;, >?. -sg&v 7' ;y: ; •;: ■ ■■ i. . ■■■•'.y - v Jón Helgason íslenzkaöi Hin nýja bók Jóns Helgasonar er framhald af „Tuttugu erlend kvæði og einu betur”. r U tfarasálmur Prudentius P1""^ 1 ' Ur nýjum bókum Prudentius, fullu nafni Aurelius Prudentius Clemens, upprunninn af Spáni, dó nálægt 410 og var þá um það bil sextugur. Hann er talinn fremstur meðal skálda sem ortu kristileg kvæði með rómverska skáldskapararfleifð aö baki. Otfararsálmur hans, Jam mæsta quiesce querela, hefur verið höfuðsálmur kirkjunnar i sinni grein, þar er brýnt fyrir mönnum að dauöinn sé ekki annaö en svefn, og að þeim svefni loknum sé upprisa og eilif sæla fyrir höndum (en hins er ekki getið, að sumir megi þó búast við öllu lakara hlutskipti þegar þeir vakna). Þessi sálmur var einnig mikils metinn i lúterskum sið, til að mynda var hann tekinn upp á frummálinu I gamlar sálma- bækur íslenzkar, og mun hafa verið sunginn yfir látnum prestum, það hefur þótt vel við eiga að kveðja þá á grafarbakkanum með meiri viðhöfn en sauðsvartan almúgann, og þar á ofan gat verið hollt að áminna þann sem var á leiö inn i alþjóðasamneyti eilifðar- innar, að fara nú að berja mesta ryðið af skólalatinunni sinni. Kunnust þýðing á útfararsálmi Prudentiusar á Noröurlöndum er eftir Johan Olof Wallin (1779-1839), erkibiskup i Uppsölum, en nokkuð er þar farið frjálslega með frumtextann. Hér á eftir er Wallin fylgt að mestu leyti. Lát huggast, þú ástvinur hryggur! Nú hætti þinn grátur að streyma! Því dauðinn er leið sú er liggur til lífsins og ódáinsheima. 16

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.