Heimilistíminn - 02.12.1976, Page 28

Heimilistíminn - 02.12.1976, Page 28
björg Hákonardóttir). Er þaö athuga- semd við skrana eftir Jón Sigurðsson. Stendur þar og smáletursgrein til skýringa, liklega frú Ingibjörg dóttir Hákonarháleggsmóðir Magnúsar smeks, f. 1301, dó 1360 og bætt við siðan: „og mun það svo vera”. Um þetta atriði hefur komið fram sú skoðun sagnamanna og ættfræðinga, að taliðeraðhér séáttvið islenzka frú. „Frú hertogainnju Vilborgu Sigurðardóttir i Vatnsfirði”, húsfrú herra Eiriks Svein- bjarnars'onar’i Vatnsfirði (d. 1342) (hirð- stjóra og riddara (1316), talinn hafa fengið hiröstjórn norðan og vestan á Islandi 1323 og mun hafa haldið til æviloka og búið siðast að Vatnsfirði (tsl. ævi- skrár). Eirikur var vestfirzkur að föður- ætt, faðir hans var Sveinbjörn Súðvikingur, þ.e. bjó i Súðavik i Álftafirði við Djúp og kemur hann við sögu Staöa- mála. Sveinbjörn var sonur Sigmundar Gunnarssonar, sem var fylgdarmaður og i kappliði Þórðar kakala Sighvatssonar og átti Herdisi Hrafnsdóttur á Eyri I Arnar- firði Sveinbjarnarsonar af hinni fornu goðaætt Seldælum. Herra Eirikur var gerður riddari af Hákoni hálegg IV Noregskonungi 1316, ásamt að minnsta kosti tveim öðrum íslendingum (Guðmundi Sigurðssyni lögmanni i Hlið og Grimi Þorsteinssyni siðar lögmanni i Stafaholti), en alls gerði Hákon Noregs- konungur þá 24 menn sér handgengna og að riddurum i riki sinu. Gæti Eirikur þá hafa þegið hertoganafnbótina úr hendi konungs, þóttheimildir þegi algerlega um það, og engar heimildir frá 14. öld eru til i sambandi við það efni nema rekaskráin, sem nefmrfrú hertogainnju, konu Eirfks, Vilborgu Sigurðardóttur, en um hana er það vitað, að hún var áður gift manni að nafni Koðrán og eru ekki líkur fyrir, að hann hafi haft nokkur sérleg metorð. Atti hún meö honum dóttur að nafni Birgit, siðar hefur hún átt Eirik, sem vitaskuld hefur verið hertogi, þar sem hún er kölluð hertogainna. Vilborg var f. um 1265, dó 1343, og er hún sú Vilborg, sem Oddur biskup Einarsson hefir það eftir gömlum mönnum, að hún hafi verið kölluð frú hertogainna (Ártiðarskrá J.Þ. bls 242). Hún er og talin dóttir Sigurðar Seltjarna (sela) Sighvatssonar og Kolfinnu Þor- valdsdóttur Vatnsfirðings, systir Einars i •Vatnsfirði. En verið ranglega nefnd siðast i ættartölum Vilborg Einarsdóttir i Vatns- firði, þar til ættfræðingar hreinsuðu til i ruslastiu ættfrasðinnar og fundu rétt föðurnafn. Með Eiriki hertoga átti Vilborg Einar bónda i Vatnsfiri, mann Grundar- Helgu og var sonur þcirra Björn Jórsala- fari, sem liklega var riddari og hafði 3 liljur i innsigli sinu og þá einnig skjaldar- merki sinu. Vatnsfjarðar — Kristin Björnsdóttir, hafði 2 liljur i innsigli sinu og má þvi ætla, að hertogi hafi haft lilju i merki sinu. Herra Ketill Þorláksson (d._ 1343) á Kolbeinsstöðum hirðstjóri á 28 Islandi hafði 3 liljur i skjaldarmerki sinu, Eirikur leigði Flugumýri i Skagafirði af Hólabiskupi og mun hafa haftþar bú, i þvi héraöi, sem fyrri æðstu valdsmenn konungsrikisins Noregs-Island, eins og þeir Gizur Þorvaldsson á Reynisstað og herra Kolbeinn Bjarnason jarl á Sjávar- borg og mun fter ekki um hendingar einar að ræða. Konungur og skutilsveinn. Teikning I Flateyjarbók frá siðari hluta 14. aldar. Heldur mun það hafa málum ráðið, að þar sem Skagafjöröur var talinn megin- hérað Norðanlands og þar hafa völd islenzks höfðingja veriö samfelldust sbr. Kolbein unga, sem réði öllu i Norð- lendingafjórðungi. Einnig var annar biskupsstóll landsins innnan héraðs og biskupar oft þægir konungsþjónar. Gizur taldi eins og kunnugt er Skaga- fjörð vera erfðariki sitt eftir Asbirninga frændur sina. Eftir að Auðkýlingurinn og húnvetnski höfðinginn herra Kolbeinn Bjarnason var innlendur jarl, hefir hann setið á Sjávarborg i Skagafirði vel stað- settuskagfirzku höfuðbóli.sem siöar varð einn af stórgöröum Lofts rika Guttorms- sonar. Hér er visað til máldaga Sjávarborgarkirkju (Auðunnarmáldaga) 1316, sem getur jarls eftirfarandi „II Talenlæ (töflur) og klukka litil, er Kol- beinn jarl gaf og likakrákur, hundraös hross, 6 h. vöru og salún, silki hökull rauður meö hlöðum”. Er svo að sjá að Kolbeinn hafi gefið alla þessa gripi. Auðkýlingar virðast hafa boriö ægis- hjdlm um tima yfir fiesta höfðingja Norðanlands og gæti skýring verið sú, að Kolbeinn ættfaðirinn var raunverulegur jarl. Seta Eiriks á Flugumýri sem sjálf- sagter söguleg staðreynd, þar sem hann tók jörðina á leigu af Hólabiskupi, má telja nokkurn rökstuðning, að hefð mun hafa myndazt, vegna kröfu Skagfiröinga að tignasti verslegi maður landsins sæti þar innan héraðs i námunda við biskups- stólinn ef tök voru á og þar sem og er vitað, að ættarriki herra Eiriks var á Vestf jörðum á slóöum hinna gömlu goða- ætta Seldæla og Vatnsfiröinga, þó einnig sé hér nærtæk skýring, að hiröstjórn var og i höndum herra Eiriks noröan og vestan og það starf hiö raunverulega valdssvið. Hér að framan hefur veriö reynt aö færa ofurlitil rök fyrir, að litið hefur verið á ísland sem jarlsdæmi 1262-1309 eins og fræöimenn og sagnfræðingar hafa bent á (m.a. Björn Þorsteinsson) og ég hefi hér reynt að sýna fram á, að ef til vill hefur jarlsnafnbótin breytzt hérlendis i hertoganafnbót á fyrri helming 14.aldar og Islendingar ekki haldiö þvi á lofti, og sjálfsagt ekki verið annað en nafnbót og að herra Eirikur hertogi hafi aðeins veriö fremstur á meðal þeirra islenzku aðals- manna, sem þáðu herra og riddaratitil úr höndum Noregskonungs og Eirikur var sjálfsagður formaður fyrir sem hiröstjóri. Má samt ætla, aö Noregskonungur hafi viljað lita á Island sem hertogadæmi á þessari lénsöld á Island sem frjálst riki i persónusambandi víð konunginn eins og eru augljós réttindi Islendinga i Gamla .sáttmála 1262-64 og þeirra eigin sam- þykktum frá 1320 á alþingi og i Arnesinga- skrá 1375. Seinast mun ég benda á þaö, að skjaldarmerki, sem er kallað „Skjaldar- merki konungsins af Islandi”, og er i „Armorial Wijnbergen”, franskri skjaldarmerkjaskrá frá þvi um 1280. Sé hið raunverulega skjaldarmerki konungsrikisins fslands eða jarlsdæmis- ins innan konungsrikisins Noregur- Island. Merkið likist mjög þvi norska og er meö Ólafs helga ljónið meö öxi sem tákn hins ævarandi konungs og dýrlings Noregs, ber ljónið rauðan lit, rauöa öxi á gullnum (efst) silfruöum og bláum feldi, silfraöi (hviti liturinn) og sa blái er engin hending og sýnir, að íslendingar munu hafa frá alda öðli þótt þessir litir fegurstir og ein- kenna land sitt og urðu seinna litir með rauðum lit i þjóðfánanum. Ljóniö og öxin eru reyndar einnig rauð i skjaldar- merkinu.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.