Heimilistíminn - 08.09.1977, Qupperneq 13
Blómin okkar
Gefið hungruðum potta-
blómum ekki mikinn áburð
Ykkur finnst ef til vill heldur undar-
legt, aö við skulum taka okkur fyrir
hendur hér á blómasíðunni, að ræða
um blómaáburð, þegar komið er fram
i september. Slikt er þó ekki að
ástæðulausu, þvi allt árið um kring er
blómaáburður seldur i verzlunum;
sumurn gæti dottið i hug, að fara að
nota hann ióhófí yflr vetrarmánuöina.
Plönturnar eru þá oftheldur vesaldar-
legar og þá reynum viö að finna ein-
hver ráð til þess að hressa þær við.
Blómaáburðurinn er þó sennilega ekki
rétta leiðin þar sem aldrei má gefa
veikluiegri plöntu blómaáburö.
Venjulega stendur á umbúðúnum ut-
an um áburðinn, hvernig á að blanda
hann. Gætið þess að hafa blönduna
aldrei sterkari en þar er kveðið á um.
Mun betra er aö hafa hana heldur
veikari, og oft er það algjör nauðsyn,
annars getið þið drepið plöntuna ykk-
ar. Plöntum á að gefa áburð á vaxtar-
skeiði þeirra, eða i þann mund, sem
það er að hefjast, ekki undir lok þess,
eða eftir að plönturnar eru hættar að
vaxa á veturnar, og eiginlega fallnar i
dvala.
Planta sem fær nægilega næringu
vex hraðar en hin, sem er að visna Ur
næringarskorti. Hún litur betur út, og
hefur meiri mótstöðu gegn sjúkdóm-
um. Plantan þarf á áburði að halda,
vegna þess að næringarefnin, sem
upphaflega hafa verið i moldinni i
pottinum skolast smátt og smátt Ur
honum við vökvun og eftir verður
dauður og næringarsnauður jarðveg-
ur, hafi hann ekki verið það þegar i
upphafi. Ofter moldin sem fólk notar á
blómin sin ekki allt of góð og þá batnar
hún að minnsta kosti ekki er timar liða
fram.
Þrjú aðalefni þurfa að vera i áburði.
Það eru nitrogen, phosphorus og
potassium. Venjulega er hægt að sjá á
umbúðum áburðarins, hvaða efni hann
hefur að innihalda. Bezti áburðurinn
er talinn eiga að hafa þessi þrjú efni I
hlutföllunum 5-10-5 eða 15-30-15. Þess-
ar tölur standa á umbúðum i sumum
tilfellum, en i öðrum tilfellum er að-
eins talað umprósentur, og séu hlutföll
efnanna þessi, þá er áburðurinn sagð-
ur góður.
Mjög nauðsynlegt getur verið, að
vita i hvaöa hlutföllum áðurnefnd þrjú
efni koma fyrir i áburðinum, sem þið
ætlið ykkur að nota, þar sem ekki
hæfir sami áburður öllum plöntum,
eða að minnsta kosti gerir hann þeim
ekki öllum jafngott.
Blaðmiklar plöntur þurfa til dæmis
mikið af nitrogeni. Þá verða blöð
þeirra fallegri og þær fara að skjóta út
nýjum sprotum af miklum dugnaði.
Fái planta ekki nægilega mikið af
nitrogeni verða blöðin gul eða brún eða
detta af henni. Of mikið notrogen getur
svo leitt til allt of mikils vaxtar hjá
plöntunni og þá verða leggir hennar
ekki eins sterkir og æskilegt mætti
teljastogplötunnihættir tilað sýkjast.
Blómstrandi plöntur þurfa ábyrö
með meira magni af phosphor.
Ræturnar verða sterkari og leggirnir
sömuleiðis, og knúppamyndunin
eykst.Grasafræðingur hefur sagt okk-
ur, að gott sé að kaupa fosfórsýru sem
mun fást hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna og setja ofurlitið af henni út I
vökvunarvatnið ef reyna á að fá kakt-
usa til þess að blómstra. Spyrjizt fyrir
um rétta blöndu áður en þið farið að
nota þetta efni á blómin ykkar til þess
að drepa þau ekki. Ef phosphorinn er
of lítill I jarðveginum getur það orðiö
til þess að blómstrandi plöntur leggjá
allt sitt i blöðin og þau verða græn og
falleg, en engin koma samt blómin.
Potassium færir plöntunum kraft.
Það vinnur meö nitrogeninu og
plönturnarfá sterka leggi og blaðvöxt-
urinn eykst, planta sem ekki fær nægi-
lega mikið potassium fellir oftast
neðstu blöðin.
Nokkur holl ráð að lokum: Vökviö
aldrei með blómaáburði á þurra mold.
Vokvið fyrst með vatni og sfðan má
bæta við áburðarblöndu hálftlma siö-
ar. Ef moldin i blómapottinum er mjög
blaut er rétt að láta mesta vatnið siga
úr áður en áburðarblöndunni er hellt
yfir.
Notið ekki blómaáburðá plöntu sem
nýlega hefur verið sett niður eöa ný-
búið er að umpotta. Biðið i einn mánuö
eða þar um bil áður en þið takið til við
áburðargjöfina. Nægur áburöur ætti
að vera i nýrri mold og aukaskammtur
gæti brennt ræturnar á plöntunni.
Berið ekki blómaáburð á veika plöntu
hún á nóg meö að berjast fyrir lifi sinu,
þótt henni sé ekki að auki drekkt i
áburðarvatni.
fb