Heimilistíminn - 08.09.1977, Side 38
rUEDLC náttúrunnar
Margir kalla steppuúlfinn slægasta
dýr heimsins. Hann heitir á latínu
Canis Latrans, og er skyldur venjuleg-
um úlfi, aöeins minni og slægari. Olf-
inum hefur viða verið útrýmt, en svo
hefur ekki farið um steppuúlfinn, hann
hefur aftur á mdti lagt undir sig ný
landssvæði. I upphafi var hann aðal-
lega á steppunum i vestanverðu
Mexikó og i fjöliunum þar. Siöan fór
hann að færa sig i norður, og hefur nú
náð alla leið fram til Alaska, og einnig
fært sig suður á bóginn í Mexico og í
austurtiluta Norður Ameriku er hann
lika kominn.
Steppuúlfurinn hefur orðið aö þola
margt vegna þess að hann drepur
gjarnan búsmala bænda, bæði kálfa og
fé. Hann er veiddur i boga, skotinn og
eitraö er fyrir honum sums staðar.
Fyrir hefur komið, að mönnum hefur
tekizt að útrýma honum á einstaka
stað, en venjulega hefur hann stungið
uppkollinum þar aftur eftirað frá hef-
ur liðið. Þessi dýrategund hefur virzt
vera undarlegum hæfileikum búin til
þess að berjast gegn óvinum sinum.
Steppuúlfurinn er ekki matvandur.
Hann étur nagdýr, fugla, skriðdýr,
skordýr, egg og ávexti. Hann þolir
næstum hvað sem er, og sem dæmi um
það má geta þess, að eitt sinn var
drepinn úlfur, og i maga hans fannst
gaddavir. Hann hleypur mjög hratt og
getur hlaupið með allt aö 65 km hraða
á klukkustund. Stundum gerir hann
óvænta árás og nær þannig bráöinni
frá einhverjum keppinauti sinum, án
þess sjálfur að leggja mikið á sig viö
að fanga hana. Steppuúlfurinn hefur
lært að notfæra sér þjóðvegi landa
þeirra, sem hann býr i. Hann heldur
sig gjarnan nærri vegunum, og hirðir
matarleifar, sem ferðamenn kasta frá
sér. Einnig étur hann dýr sem orðið
hafa fyrir biium á hraöbrautunum, en
gætir þess vel, að fara ekki sjálfur
fyrir bil. Steppuúlfurinn kann lika til
fiskveiða. A vetrum sést hann oft sitja
við vakir á isilögðum vötnum, og þar
gripur hann urriða eða annan vatna-
fisk, þegar hann birtist I vökinni.
Steppuúlfar finna oft hinar furðuleg-
ustu undankomuleiðir, ef verið er að
elta þá, og lif þeirra er i hættu. Til
dæmis segir sagan, að eitt sinn hati
steppuúlfur stokkið upp á flutningabll,
sem átti leið þar fram hjá, þar sem
hann var á flótta. Ýlfur steppuúlfsins
er ógnþrungið, og stundum má heyra
hvern úlfinn á fætur öðrum taka til við
að ýlfra, og er það þá hinn óttalegasti
kór.
Klipptu Ut þessa fjóra svörtu
fleti, og reyndu siðan aö raða
þeim þannig saman, að þeir
myndi ferhyrning. Hversu lang-
an tima þarftu til þess? Þetta
gæti veriö ástæða til keppni inn-
an fjölskyldunnar.
Horföu vel á þessa mynd, og
sjáöu svo hvaða tveir hlutir
heyra saman. Allt á að ganga
upp aö iokum.
Sjá lausn á bls 25
---------
38