NT - 17.08.1984, Side 12
Föstudagur 17. ágúst 1984 12
BíLVANGURsf■
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Úrval notaðra bíla • Opið virka daga frá 9-6 • Opið laugardaga
frá 1-5 • Símar: 39810 og 687300.
Yarahlutir
Eigum á lager mikið úrval boddí - varahluta í flestar
tegundir bíla m .a.
frambretti - húdd - stuðara - grill - sílsa
Vorum að fá komplett öxla í m.a.
Citroen - Renault - Peugeot - Simca - Hondu - M. Bens
Skeifunni 5
S/F símar: 33510 og 34504
■ Utan um húsið á þessu trölli er voldugt stálbúr til þess að verja ökumennina ef ferlíkið veltur í óaðlaðandi
eyöimörkinni. Aldrei fyrr hefur sjálf Sahara eyðimörkin séð farartæki sem er jafn ónæmt fyrir brögðum þeim og
hrellingum sem hún beitir þá sem voga sér að troða á yfirborði hennar.
Þetta... átta hjóla torfærutröll
- getur næstum allt
■ Hvað er nú þetta?
Porschc vörubíll í torfæru-
akstri? Ekki alveg, og þó.
Þessi bíll er framleiddur af
IVIAN verksmiðjunum
aðallega fyrir þýska
herinn, með drifi á öllum
átta hjólum og stýringu á
fjórum.
Hæð undir lægsta punkt
er yfir metri vegna hinna
þekktu MAN hásinga með
niðurgírun úti í hjólum og
risastórra dekkja.
Gífurlega sverir gormar
sjá um fjöðrunina en
sterkir stálarmar halda
hásingunum við bílinn. I
gegnum tíu gíra kassann
fara um 380 hestöfl frá
stórri MAN V8 díselvél
með forþjöppu og er há-
markshraðinn á ferlíkinu
yfir 90 km á klst.
Hver eru þá tengslin við
hina eðlu sportbílasmiðju
Porsche? Jú, þar var á-
kveðið að taka þátt í París
til Dakar eyðimerkurrall-
inu í vor, og útbúnir til
þess tveir Porsche 911 með
óbreytta vél en drifi á
öllum hjólum og mikið af
léttum plast og ál hlutum í
yfirbyggingunni.
Til þess að veita vara-
hlutaþjónustu var þriðji
bíllinn skráður til keppni
og að auki tvö torfærutröll
eins og sjást á myndinni.
Það eru nefnilega ekki
leyfðir þjónustubílar í
París-Dakar keppninni og
því var eina ráðið að skrá
þá sem keppnisbíla, í
flokki vörubíla.
Undir seglinu á pallin-
um var fullfermi af vara-
hlutum í Porsche og
MANana sjálfa, fyrir utan
dekk, verkfæri, viðlegu-
búnað, mat og vatn.
Auðvitað vann Porsche
keppnina eins og þeirra er
venja en sögur fara ekki af
hvar í röðinni MANarnir
ógurlegu lentu, enda var
það ekki tilgangurinn að
þeir yrðu fyrstir heldur að
vera ávallt til taks þegar á
reyndi.
Er þetta ekki alveg kjör-
inn bíll til ferðalaga á
íslenskum malarvegum,
þið vitið, þessum hættu-
legu illfæru manndráps-
slóðum sem varast ber að
koma nálægt á venju-
legum bíl? Eitt er víst,
það yrði fátt í vegi fyrir
honum þessum!
LAND-ROVER EIGENDUR
NÝK0MIÐ:
FJAÐRIR 0G DEMPARAR
STEINGRÍMUR BJÖRNSSON SF.
SUÐURLANDSBRAUT 12. REYKJAVÍK. SlMAR 32210 - 38365.
©
VARAHLUTIR HF
Fyrir japanska bíla
Daihatsu
Datsun
Honda
Isuzu
Ma/.da
Mitsuhishi
Suharu
Su/uki
'loyota
Vatnsdœlur - Vatnslúsar
Viftureimar - Tímareimar
Startarar - Alternatorar
Kveikjukerfi - Framljós
Bremsudælur - Dœlusett
Bremsuborðar - Bremsuklossar
Frambretti - Grill - Stuðarar
á Datsun o.fl. o.fl.
©
VARAHLUTIR HF
Ármúla 22 - Sími 31-9-19
0* ALLTI
KVEIKJUNA
Heimsþekktar vörur á frábæru verði.
Kerti frá AUTOLITE — BOSCH — CHAMPION.
Platínur — Kveikjulok, Hamrar, Þéttar og Kveikju-
þræðir frá USA og V.-Þýskalandi.
(fflmnau st h.f
sIðumúla sImi 82722
guMFEBOAR
Þegar bilar mætast er ekki nóg aö annar víki vel út á vegarbrún og
hægi ferö. Sá sem á móti kemur veröur aö gera slikt hiö sama en not-
færa sér ekki tillitssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraöi
þegar mæst er telst u.þ.b 50 km.