NT - 17.08.1984, Blaðsíða 25

NT - 17.08.1984, Blaðsíða 25
Föstudagur 17. ágúst 1984 25 Útlönd r Forseti Nicaragua vill hitta Reagan Mexíkó-Reuter ■ Embættismenn frá Nica- Júgóslavía: Afnemur verð* stöðvun Bclgrad-Reuter ■ Stjórn Júgóslavíu til- kynnti í gær að hún hygð- ist aflétta verðlagshöftum á ákveðnum neysluvörum, í samræmi við samkomu- lag sem gert var við Al- þjóðlega gj aldey rissj óð- inn. Vörurnar sem um ræðir eru aðallega í þeim flokki sem ekki telst til nauð- synja. Undirstöðuiðnað- arvörur og nauðsynjar verða áfram undir eftirliti stjórnarinnar. Verðstöðvuninni verð- ur aflétt 1. september og þá fellur einnig úr gildi reglugerð sem skyldaði framleiðendur varanna til að tilkynna verðhækkanir með 30 daga fyrirvara. ragua og Bandaríkjunum hittust á leynilegum fundi í gær í Mexíkóborg til að ræða unt leiðir til að leysa deilur land- anna. Bandaríkin ásaka Nicaragua fyrir að flytja út kommúnista- byltingu til nágrannaríkja sinna og Nicaragua vill fá Bandaríkja- menn til að hætta stuðningi sínum við hægri sinnaða skæru- liða sem vinna að því að steypa stjórn Sandínista. Þetta er fjórða lotan í þessum viðræðum ríkjanna sem þykir benda til þess að samkomulag sé ekkl útilokað þótt margir vari við of mikilli bjartsýni. Sér- stakur sendimaður Reagans í Mið-Ameríku, Harry Shlaude- man, er aðalfulltrúi Bandaríkj- anna í viðræðunum en Victor Hugo Tinoco aðstoðarutanrík- isráðherra er fyrir samninga- nefnd Nicaragua. Daníel Ortega, leiðtogi stjórnarinnar í Nicaragua, mun hafa látið í Ijós vilja til að fara til Washington og ræða beint við Ronald Reagan Bandaríkja- forseta. Mun þessi ósk Ortega vera meðal þeirra umræðuefna sem fulltrúar Bandaríkjanna og Nicaragua ræða nú á fundum sínum í Mexíkó. Stjórnvöld í Nicaragua segja að innanlandsstríðið hafi þegar kostað meira en 7000 manns lífið og efnahagur landsins hefur líka látið á sjá. ■ Bandarísk sprengjuleitarþyrla á flutningaskipinu Shreveport sem nú er komið til Rauðahafs. Þetta er ein affjórum þyrlum sem Bandaríkjamenn nota til að leita að sprengjum í Rauðhafl. símamvnd-poi.Fo i o V-Þýskaland: Atvinnuleysi eykur vinnu- álag þeirra Starfsmenn atvinnu- miðlana mótmæla Hamborj>-Reuter ■ Starfsmenn atvinnu- miðlana í Hamborg héldu í gær einnar klukkustund- ar mótmælaaðgerðir til að mótmæla auknu vinnu- álagi sem fylgdi fjölgun at- vinnuleysingja. Um eitt þúsund manns tóku þátt í mótmælaað- gerðunum. Starfsmenn at- vinnumiðlananna krefjast þess að starfsliði verði fjölgað í samræmi við hið aukna vinnuálag. 1 Vestur-Þýskalandi eru nú um 2,2 milljónir at- vinnuleysingja. Mikil þátttaka í sprengju- leit í Rauðahafi í gær Kairo-Reuier er nú hafln fyrir alvöru. ■ Sprengjuleitin í Rauðahafi Sprengjuleitarskip og þyrlur frá Umsjón: Ragnar Baldursson og Guðmundur Hermannsson Bandaríkjunum, Frakklandi, Bretlandi og fleiri ríkjum taka þátt í ieitinni. Nýjustu tækni er beitt við leitina enda hafa sprengjur nú þegar laskað að minnsta kosti 17 skip auk þess sem fréttir hafa borist um að enn fleiri skip hafi skemmst þótt það hafi ekki enn fengist staðfest. Bandarískar þyrlur af RH-53 gerð flugu í gær yfir hafsvæðinu fyrir utan hafnarborgina Jeddah í Saudi-Arabíu. Síðast þegar fréttist höfðu þær saint ekki ennþá fundið neinar sprengjur. Nú hefur leit að sprengjum líka verið hafin í Nasser-vatni sem er fyrir ofan Aswan-stífluna í Egyptalandi. Egypsk yfirvöld eru hrædd um að þar hafi verið komið fyrir sprengjum. Þau stöðva nú öll skip sem fara um vatnið og leita í farangri fólks af ótta um að hryðjuverkamenn muni reyna að láta sprengjur í vatnið. 40 milljón flokksfélagar: Kínverskir leiðtogar reyna að tryggja stöðugleika í flokknum ■ Félagar í Kommúnistaflokki Kína munu nú vera yflr 40 milljónir talsins að því er skipulagsnefnd flokksins skýrði frá nú fyrir skömmu. Flokkurinn var stofnaður fyrir 63 árum og voru stofnfélagar þá aðeins um flmmtíu talsins. Fyrstu áratugina gekk á ýmsu og var flokkurinn um tíma í hættu á útrýmingu. En við lok seinni heimsstyrjaldar höfðu kommúnistar náð öruggri fótfestu í sveitum Kína og þegar Alþýðulýðveldið Kína var stofnað árið 1949 voru félagar í flokk þeirra um flmm milljónir. Síðan fjölgaði félögunum menningarbyltingarinnar voru jafnt og þétt og við upphaf þeirorðnir 17milljónir. I menn- Indland: 767 járnbrautar- slys á hverju ári Bombay-Reuter ■ Frá því í apríl á síðasta ári þar til í mars á þessu ári urðu samtals 767 járnbrautarslys á Indlandi. Að minnsta kosti 200 manns létust í þessum slysum auk þeirra fjöl- mörgu sem slösuðust. Síðast í gær varð alvarlegt járn- brautarslys á lndlandi þar sem að minnsta kosti 25 manns létu lífið. Slysið vildi þannig til að járnbraut- arbrú í Madyha Pradesh-fylki lét undan þunga lestarinnar og fimm járnbrautarvagnar steyptust niður í á. Meira en hundrað manns slösuðust alvarlega og talsmenn indversku járnbrautanna sögðu að tala látinna ætti hugsanlega eftir að hækka. Indverska járnbrautarkerfið nær yfir um 61.000 km og um 9.6 milljón manns ferðast eftir því á hverjum degi. Versta járnbraut- arslys, sem hefur orðið á síðari tímum, átti sér stað í júní 1981 þegar lest steyptist út af járnbraut- arbrú niður í á. Þá létu 270 manns lífið. ingarbyltingunni urðu miklar sviptingar í flokknum. Gömlum og reyndum flokksfélögum var vikið úr embættum og ungir róttæklingar komu í þeirra stað. Meira en 20 milljónir nýrra félaga voru teknir í flokkinn á þessum árum. Það er því ljóst að meirihluti félaga í Kommúnistaflokki Kína urðu félagar í flokknum á tíma menningarbyltingarinnar eða í lok hennar þegar vinstri róttækni réði ríkjum í Kína. Þrátt fyrir þetta hefur flokkur- inn hafnað menningarbylting- unni með öllu og tekið upp gjörbreytta stefnu þar sem vest- rænn kapítalismi er að mörgu leyti tekinn til fyrirmyndar. Leiðtogar kommúnista- flokksins eru sér mjög meðvit- aðir um að þorri flokksfélag- anna gekk í flokkinn þegar stefha hans var því sem næst þver- öfug við það sem hún er núna. Þótt stór hluti fyrrverandi rauð- liða hafi nú breytt pólitískri afstöðu sinni og styðji núver- andi stefnu stjórnvalda eru sjálf- sagt margir sem enn eru undir áhrifum hinnar gömlu vinstri stefnu. Fyrir meira en einu ári hófst leiðréttingarherferð í flokknum sem er ætlað að þurrka út áhrif vinstri róttæklinga. Mörgum leiðtogum vinstri róttæklinga hefur þegar verið vikið úr em- bættum og sjálfsagt fylgja fleiri í kjölfarið. Á síðustu finim árum hafa líka 4,8 milljónir nýrra flokksféi- aga verið teknir í flokkinn. Þessir nýju félagar eru eindregnir stuðningsmenn núverandi ■ Hu Yaobang aðalritari Kommúnistaflokks Kína. .stefnu og þeir eru yfirleitt mun betur menntaðir en þeir flokks- félagar sem fyrir eru. Kínverskir flokksleiðtogar vonast til þess að þessar aðgerð- ir tryggi stöðugleika í flokknum þannig að núverandi stefnu verði ekki breytt þó að þeir sjálfir falli frá og ný kynslóð leiðtoga taki við. Slapp með skrekkinn M»ns, Bel)>íu-Reuter ■ Anthony Delon, sonur franska kvikmyndaleikarans Alain Delon, slapp með skrám- ur eftir að hafa ekið sportbifreið sinni á 130 kílómetra hraða á belgíska landamærastöð. Svartaþoka var yfir landa- mærunum og segist Anthony ekki hafa séð landamærastöð- ina. Hann ók fyrst á steinvegg, síðan á umferðarmerki, og lög- reglubíl og endaði á kyrrstæðum bíl. Anthony, sem undanfarið hefur átt vingott við Stephanie prinsessu af Monaco, var fluttur á sjúkrahús ásamt farþega í bílnum en þeir sluppu báðir með lítilsháttar skrámur. Saksóknarinn í Mons íhugar nú að kæra Anthony fyrir gá- leysisakstur. Bandaríkin: Andstæðingur Kastros kærður fyrir morð á kúbönskum erindrekum New York-Reuter ■ Eduardo Arocena, einn af helstu leiðtogum Omega 7 hópsins sem vinnur að því að steypa stjórn Kastros á Kúbu, hefur nú verið ákærð- ur fyrir tvö morð og fjölda sprengjutilræða í New York og Miami. Við réttarhöldin, sem hóf- ust á þriðjudaginn ásakaði saksóknarinn Eduardo Ar- ocena fyrir að hafa skipulagt morðið á kúbönskum stjórn- arerindreka við Sameinuðu þjóðirnar í september 1980. Hann er einnig ásakaður fyr- ir að hafa fyrirskipað morð á kúbanska útlaganum Eulalio Jose Negrin en hann var skotinn fyrir utan heimili sitt í nóvember 1979 eftir að samtök sem hann tilheyrði hófu samningaviðræður við stjórn Kastros. Arocena segist vera sak- laus og neitar öllum kæru- atriðum sem auk fyrrnefndra morða fela í sér ólöglega eign og meðferð sprengju- efna og annarra vopna.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.