NT - 17.08.1984, Blaðsíða 27
Bikar-
keppni
FRI
■ Kristján Harðarson
■ Bikarkeppni Frjáls-
íþróttasambands Islands
fer fram í Laugardal í
Reykjavík um helgina, en
þetta verður í 19. sinn
sem keppnin er haldin.
Að þessu sinni taka
lið þátt í henni og
búast við hörkubaráttu,
bæði í stigakeppninni og
milli einstaklinga.
Liðin sem nú taka þátt
í bikarkeppninnþeru ÍR,
ÚÍA, HSK, Ármann,
UMSK og KR, en lið KR
er frekar þunnskipað nú
þar sem einungis tveir
keppendur eru í liðinu.
IR-ingar hafa oftast
unnið keppnina, eða 12
sinnurn, en KR-ingar
hafa fjórum sinum sigrað.
Sambandið hefur
styrkt bikarkeppnina, en
FRÍ nýtur í ár íþrótta-
styrks SÍS. Morgunblaðið
gefur svo bikar þann sem
keppt er um.
Bikarkeppnin hefst kl.
14 á laugardag og verður
svo fram haldið daginn
eftir á sama tíma. Er
ástæða til að hvetja
áhugafólk og aðra til að
mæta í Laugardalinn,
því sérstök stemmning
fylgir alltaf keppnum
þessum, og hart er barist
um hvert stig.
Föstudagur 17. ágúst 1984 27
Breska knattspyrnusambandið:
Skallagrímur í Borgarnesi:
Sundfólkið efst
á héraðsmótinu
■ Sunddeild Skallagríms í
Borgarnesi hefur staðið sig með
miklum ágætum í sumar. Milli
30 og 40 börn og ugnlingar liafa
æft reglulega hjá deildinni og
er áhuginn mikill. Má nefna að
Skallagrímur vann Héraðsmót
Borgarfjarðar með miklurn
mun en sunddeild umf. íslend-
ings hefur unnið það mót síð-
astliðin 11 ár. Krakkarnir í
Skallagrími hafa ennfremur
sett yfir 70 aldursflokkamet í
héraðinu.
Þjálfarar krakkanna eru
Björg Kristófersdóttir, Ingi-
mundur Ingimundarson og
Berta Sveinbjarnardóttir.
■ Þetta eru sundkrakkarnir úr
og Berta.
Skallagrími og efst á myndinni eru þjálfararnir Björg, Ingimundur
NT-mynd RaRnheiöur
Norðurlandamót unglinga:
Kristján
stökk
lengst
■ Norðurlandamót unglinga
20 ára og yngri var haldið í
Sollentuna í Svíþjóð um síðustu
helgi. Island sendi sameiginlegt
lið með Dönum á mótið og
mátti liðið gera sér að góðu
botnsætið bæði í karla- og
kvennaflokki. Kristján Harðar-
son náði þó mjög góðum ár-
angri á mótinu, því hann varð
NM-meistari í langstökki,
stökk 7,41 m.
Sigurstökk Kristjáns kom í
síðustu umferð langstökksins,
en finnskur keppandi var með
forystuna alltfram til þess tíma.
Sá finnski hafði stokkið 7,36
m, en Kristján náði að stökkva
fimm sentímetrum lengra og
tryggja sér gullið.
Þá stóð Bryndís Hólm sig
með miklum ágætum í lang-
stökki kvenna. Hún stökk 5,66
m og hreppti bronsverðlaunin.
Sem fyrr getur varð lið Dana
og íslendinga neðst í báðum
flokkunum. í karlaflokki sigr-
uðu Finnar, en Svíar unnu í
kvennaflokki.
2. deildin í knattspyrnu:
FH nær öruggt
upp í 1. deild
■ FH sigraði ÍBV 3-2 í hörku-
leik í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu í gærkvöldi. Eftir
þessi úrslit getur fátt komið í
veg fyrir að FH-ingar endur-
heimti sæti sitt í 1. deild að ári,
en Vestmannaeyingar eru nær
örugglega úr toppbaráttu deild-
arinnar.
Jón Erlingsson skoraði fyrsta
mark leiksins og FH, þegar á 5.
mín. leiksins en um miðjan
hálfleikinn skoraði Jóhann
Georgsson fyrir Eyjamenn úr
vítaspyrnu. Þannig var staðan í
leikhléi, 1-1.
1 síðari hálfleik tók svo ÍBV
forystuna. Knötturinn barst þá
inn í vítateig FH og Kári Þor-
leifsson afgreiddi hann í stöng-
ina og inn. Gott mark.
En FH-ingar lögðu ekki árar
í bát. Guðmundur Hilmarsson
gaf knöttinn inn á Pálma Jóns'-
son sem skoraði. Lokaorðið
átti svo markakóngurinn Ingi
-Björn Albertsson, rétt fyrir lok
leiksins, 3-2.
Sigur FH var sanngjarn í
leiknum, því auk markanna
þriggja áttu þeir einnig tvö skot
í stöng í leiknum. En þetta var
baráttuleikur og Vestmanna-
eyingar börðust af miklum
móð enda lifðu þeir enn í
voninni um 1. deildarsæti fyrir
leikinn.
Stigagjöf fyrir
ólæti áhorfenda
■ Breska knattspyrnusam-
bandið hefur ákveðið að taka
upp sérstaka stigagjöf fyrir
ólæti á leikvöllum og er það
von þess að með þessu móti
megi takast að stemma stigu
við þessari óheillaþróun.
Liðum verður raðað upp eftir
hegðan áhorfenda þeirra og
verður síðan reynt að koma í-
veg fyrir að þau lið, sem mesti
skríllinn fylgir, eigist við á
frídögum. Þá verður reynt að
flýta leikjum til að draga úr
ólátunum.
Hins vegar féll knattspyrnu-
sambandið frá þeirri hugmynd
að svipta ólátaseggi vega-
bréfum sínum til að koma í veg
fyrir að þeir gætu ferðast með
félögum sínum til annarra
landa. Þá var einnig hætt við að
banna sölu áfengra drykkja á
leikvöllunum, þar sem slíkt
bann hefði bitnað harkalega á
þeim félögum, sem eiga spaka
áhangendur.
I úrslit
■ Léttir tryggði sér sæti í
úrslitakeppni 4. deildarinn-
ar í knattspyrnu er liðið
náði jöfnu gegn Hildi-
brandi í Vestmannaeyjum
í B-riðli deildarinnar á
þriðjudagskvöld. Loka-
tölur urðu 1-1 og skoraði
Sigbjörn ' Óskarsson mark
Hildibrands en Sveinn Á.
Baldursson fyrir Létti.
AUGLYSENDUR ATHUGE)
Fylgirit NT um
3. deildin í knattspyrnu:
Fylkir og Reynir
bítast á toppnum
■ Þrír leikir voru háðir í
A-riðli 3. deildar í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld. Fylkir
sigraði Víking í Ólafsvík
2-0, HV vann Snæfell 3-2
og í Sandgerði malaði
Reynir Snæfell 4-1.
Með sigri sínum halda
Fylkismenn enn forystunni
í riðlinum en Reynir er
aðeins stigi á eftir þeim.
Það var Oskar Theódórs-
son sem skoraði bæði mörk
Fylkis í Ólafsvík, sitt í
hvorurn hálfleik.
Guðmundur Stefán Mar-
íasson náði forystunni fyrir
Snæfell, en í síðari hálfleik
héldu Reynismönnum eng-
in bönd, Ómar Björnsson
gerði tvö mörk og þeir Jón
Sveinsson og Hjörtur Jó-
hannsson sitt hvort.
Uppi á Skaga náði Heim-
ir Bergsson forystunni fyrir
Selfoss en Egill Ragnars-
son jafnaði fyrir hlé. I þeim
síðari skoraði Elías Víg-
lundsson tvívegis, fyrst
með neglingu af 30 m færi
og síðan beint úr auka-
spyrnu en Selfyssingar áttu
lokaorðið. Þórarinn Ing-
ólfsson skoraði það mark
úr tvítekinni vítaspyrnu.
Staðan i A-riðli cr nú þessi:
Fylkir 13 1« 1 2 33-15 31
RcynirS 13 9 3 1 32-11 30
Víkingur Ó1 13 9 1 4 29-18 28
Stjaman 13 6 2 5 30-21 20
Selfoss .... 13 6 2 5 23-18 20
Grindavik . 12 3 4 5 13-20 13
HV ......... 13 3 2 8 19-31 11
ÍK.......... 13 2 3 8 14-25 9
Snæfell ... 14 1 2 10 11-37 5
byggingariðnað kemur út
4. viku í ágúst.
Auglýsingar sem birtast eiga
í blaðinu þurfa að
hafa borist auglýsingadeild NT
í síðasta lagi föstudaginn 17. ágúst.
Símarnir eru 18300 - 687648 - 686300