NT


NT - 03.09.1984, Side 9

NT - 03.09.1984, Side 9
innar var ekkert samráö haft við helsta stjórnarandstöðu- flokkinn, Framsóknarflokk- inn. um þetta mál. Stjórn Framsóknarflokksins taldi þessi tíðindi hins vegar svo alvarleg, að hún kaus þá Eystein Jónsson og Hermann Jónasson til þess að fara á fund ríkistjórnarinnar og skýra henni frá, að Framsóknar- flokkurinn væri andvígur því, að stefnt væri með slíku ofur- kappi að því, að ísland sækti um aðild að Efnahagsbanda- laginu. Framsóknarflokkurinn hvetti eindregið til þess, að mál þetta yrði athugað miklu betur og stefnt yrði að við- skipta- og tollasamningi, en ekki aðild. Þessi afstaða Framsóknar- manna varð til þess, að við- reisnarstjórnin fór að hugsa sig bétur um. Jafnframt munu hafa borist fregnir utan frá, að íslandi yrði ekki veitt full aðild sökum þess, hve skammt iðn- þróun þess væri komin. En stjórnin var samt ekki af baki dottin. Ahugi hennar beindist næst að aukaaðildinni. í Alþýðu- blaðinu 6. febrúar 1962 má líta á útsíðu stóra fyrirsögn, sem hljóðar á þessa leið: „Aukaað- ild hentar Islandi best.“ Grein sú, sem fylgir þessari fyrirsögn, hefst á þesa leið: „Samband íslendinga við Vestur-Evrópu má ekki rofna. Tengsl við Efnahagsbandalag- ið eru okkur nauðsynleg, og aukaaðild virðist henta íslend- ingum best. sagði Gylfi Þ. Gíslason viðsk.m.rh. á fundi Alþýðufélags Reykjavíkur í fyrradag." Frásögn blaðsins lýkur svo á þessa leið: „Sagðist Gylfi vera þeirra skoðunar, að ísland ætti einmitt að sækja um slíka aðild, þ.e. aukaaðild. Það væri hins vegar enn vafamál, hven- ær ísland ætti að senda umsókn sína. Það væri enn of snemmt, en sennilega yrðu íslendingar að taka ákvörðun sína í þessum efnum, þegar Norðmenn hefðu lagt fram umsókn sína , en búast mætti við, að þeir gerðu það í næsta mánuði. Gylfi sagði, að Islendingar mæítu ekki draga þaö lengi að saákja um aukaaðild, eftir að Norð- menn hefðu lagt fram umsókn sína.“ í framhaldi af þessu gerðist það svo nokkrum dögum seinna eða 10.-11. febrúar, að haldinn var flokksstjórnar- fundur Alþfl. Þar var samþykkt, að ísland ætti að „Það eru ekki liðnir margir dagar í „frels- inu“, þegar Gunnar Snorra- son kaupmað- ur í Hólagarði hælir sérafnýj- um viðskipta- háttum: Hann kaupir kar- töflur af bænd- um undir skráðu verði.“ þeir óttist undirboð og drátt á greiðslum þegar „frelsið" eldist. Blaðamenn taka lítt undir það. En hver er reynsl- an? Það eru ekki liðnir margir dagar í „frelsinu'1, þegar Gunnar Snorrason kaupmaður sækja urn aukaaðild að Efna- hagsbandalaginu. Meira um aukaaðild Haustið 1962 komu mál þessi til ítarlegrar umræðu á Alþingi. í langri yfirlitsræðu, sem Gylfi Þ. Gíslason við- skiptamálaráðherrra flutti, skýrði hann frá því, að ríkis- stjórnin teldi ekki fulla aðild koma til greina, og væri því um tvennt að velja - aukaaðild eða viðskipta- og tollasamn- ing. Á samanburði, sem Gylfi ■ Eysteinn Jónsson. gerði á þessum tveimur leiðum, kom skýrt í ljós, að ríkisstjórnin taldi aukaaðild miklu betri. M.a. sagði Gylfi: „Höfuðmunur tollasamn- ingsleiðarinnar og aukaaðild- arleiðarinnar er í rauninni fólg- inn í því, að með aukaaðildar- leiðinni er auðveldara að tryggja íslendingum hag- kvæma viðskiptaaðstöðu. En það kostar samninga um við- kvæm mál, eins og rétt útlend- inga til atvinnurekstrar hér á landi og innflutning erlends fjármagns og erlends vinnu- afls. Ef tollasamningsleiðin er farin, kemur hins vegar aldrei til slíkra samninga, en útilokað virðist, að viðskipaaðstaða ís- lendinga geti með þvi móti nokkrun tíma orðið eins góð og hún getur orðið á grundvelli aukaaðildarsamnings. Þá er það að sjálfsögðu meginmunur á aukaaðildarleiðinni og tolla- samningsleiðinni, að aukaaðili tekur með einum eða öðrum hætti þátt í störfum bandalags- ins og getur að vissu leyti haft í Hólagarði hælir sér af nýjum viðskiptaháttum: Hann kaupir kartöflur af bændum undir skráðu verði. Hér í Þykkvabæ er rekin kartöfluverksmiðja. Græn- metisv. landb. hefir ekki sölu- umboð fyrir hana. Þar ríkir „frelsið". í dag þurftu ráða- menn verksmiðjunnar að ræða við hreppsyfirvöld um vanda- mál hennar. Hver skyldu þau hafa verið? Jú, viðskiptaaðilar hennar, sem hafa 60 daga greiðslufrest, standa ekki við samninga, og eru búnir að koma fyrirtækinu í algera úlfa- kreppu. Svona lítur „frelsið" út þar. Þess er skylt að geta í þessu sambandi, að styddi Grænmetisv. landb. ekki við bakið á kartöfluverksmiðj- unni, væri hún stopp. Og skrifin halda áfram: Kar- töflur beint úr garðinum í verslunum! Staðreyndin er sú, að heilbrigðisreglugerð hefir skotið loku fyrir sölu kartaflna með þeim hætti, sem nú viðgengst. Pökkun í birgða- stöð Grænmetisv. hefir eðli- lega verið tímatöf á leið vör- unnar á sölustað. En hvað hefir skeð? Jú, það kom til sögunnar annað afl: Kaup- aðstöðu til þess að geta haft áhrif á stefnu þess, en ríki, sem gerir tollasamning við Efna- hagsbandalagið. er utan þess og tekur að sjálfsögðu engan þátt í störfum þess né hefur aðstöðu til að hafa áhrif á stefnu þess." (Alþt. 1962, B1708) „Órökstudd afstaða" Síðar í umræðunum, þegar Gylfi ræddi um afstöðu Fram- sóknarflokksins, fórust honum orð á þessa leið: ■ Hcrmann Jónasson. „Ríkisstj, hefur sagt það eitt, að hún telji íslendinga ekki geta tekið á sig þær kvaðir, sem hún hefur fengið upplýsingar um að hljóti að fylgja fullri aðild. Öðrum leiðum vill ríksstj. halda opnum. Alþýðubandalagið vill ekkert samband við Efna- hagsbandalagið, af því að það er á móti því, eðli þess og til- gangi. Framsfl. vill ekki heldur aðild að Efnahagsbandalag- inu, hvorki fulla aðild né auka- aðild, eflaust ekki vegna þess, að hann sé á móti Efnahags- bandalaginu eins og Alþb., heldur vegna hins, að Framsfl. slær því föstu, að aukaaðild muni fylgja skuldbindingar, sem engin veit, hvort þurfa að fylgja slíkri aðild, og hann mælir með tollasamningi, án þess að geta vitað nokkuð um, hvort slíkur samningur gæti veitt íslandi þau réttindi, sem því er brýn nauðsyn að öðlast. Ég harma það mjög, að Framsfl. skuli taka svo órök- studda afstöðu, - afstöðu, sem er skoðun Framsfl. í málinu, „Blaðamenn hafa sett goð á stall. Það heitir Jens ■■■ Þegartil sölu upp- skerunnar kemur, þá vill hann ekki sitja við sama borð og þeir, sem haldið hafa framleiðslu hans gang- andi.“ menn ákváðu að fara sínu fram, og heilbrigðisyfirvöld horfa á með blinda auganu. Hitt er annað, að það læðist að manni sá grunur, að kaupmenn hefðu ekki lagt vinnu í, að þvo kartöflur á sinn kostnað, eins að nauðsynlegt sé að bíða átekta vegna þess, hversu mörg atriði þess séu enn óljós." Sem betur fer, er það þessi „órökstudda afstaða" Frant- sóknarflokksins, sem hefur sigrað, og allir flokkar hafa nú samstöðu unt. „Einbýl, jafnvíg á báðar hendur“ Saða íslands er að verða sú, að það hefur að nábúum tvö öflug efnahagsbandalög, ann- ars vegar Bandaríkin og hins vegar Efnahagsbandalag Evr- ópu. Mikil hætta er á þeim áróðri, að það verði talið erfitt fyrir smáríki eins og ísland, að standa til lengdar utan hinna stóru bandalaga. í þeim efnum verður vafalaust rn.a. vitnað til ríkja eins og Danmerkur og írlands. Slíkur samanburður er þó alveg út í hött. Þar er fyrst að nefna legu íslands. ísland liggur langt frá öðrum Evrópulöndum, næstum mitt á ntilli Anieríku og Vestur- Evrópu. ísland hefur meiri verslunarskipti við Ameríku en nokkurt Evrópuland, síðast, en ekki síst. er svo sú sérstaða, sem hlýzt af fámenni íslensku þjóðarinnar. Allt þetta styður þá niður- stöðu, að ísland eigi að njóta umræddrar sérstöðu sinnar með því að hafa sem best sambönd við bandalögin beggja megin hafsins, en tengj- ast ekki öðru þeirra nánara efnahagslega eða pólitískt en hinu. Staða Islands yrði þá sú, sem Einar Benediktsson lýsir svo vel í Sóleyjarkvæði sínu, að vera „áttvís á tvennar álfu- strendur, einbýl, jafnvígábáð- ar hendur". íslensk utanríkisstefna myndi þá beinasl að því að njóta legu landsins til góðrar sambúðar við bandalögin, en gerast ekki oftengt öðru hvoru þeirra. Öll reynsla bendir til þess, að ná- búarnir í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, myndu vel skilja þessa afsöðu Islendinga pg viðurkenna hana í verki, ef íslendingar sjálfir fylgdu þessu máli sínu nógu vel eftir. Flest rök benda til þess, að ísland gæti á þennan hátt best tryggt sjálfstæði sitt, en þó átt góða sambúð við alla nábúa sína, og verið hlutgengur þátt- takandi í alþjóðlegu samstarfi. Hins vegar er hætta á því, ef Island innlimast í öflugt efna- hagsbandalag, að hlutur þess yrði þar ekki öllu meiri en Orkneyja í breska samríkinu. og nú munu dæmi um, héfðu þær veriö keyptar í Grænmet- isv. landb. - En hvað gera menn ekki fyrir „frelsið". Blaðamenn hafa sett goð á stall. Það heitir Jens. Og „frelsið" hans Jens? Það er þannig, að hann er undir sama hatti og aðrir kartöflubændur, hvað varðar fyrirgreiðslu þess samfélags, sem hann starfar í, og hefði s.l. vor ekki fengið áburð í akra sína, ef ekki hefði komið til ábyrgð búnaðarfé- lags hreppsins. Þegar til sölu uppskerunnar kemur, þá vill hann ekki sitja við sama borð og þeir, sem haldið hafa fram- leiðslu hans gangandi. Hann einn selur nú nálega sama magn daglega, og hinir 50 bændurnir í hreppnum. Þetta er „frelsið" hans Jens, sem blöðin lofa! Þessi viðskiptaháttur er þekktur frá fornu fari, en fé- lagsskapur bænda um sölumál afurðanna batt að mestu enda á hann. Nú vekja Jens, og nokkrir aðrir bændur þennan draug til lífs á nýu. En þeir eru ekki að baða sig í tærri lind frelsisins. Þeir busla f forarpytti. Sigurbjartur Guðjónsson. Hávarðarkoti, Þykkvabæ. ■ För þeirra á fund ríkisstjórnarinnar sumarið 1961 hafði mikil áhrif. TIMI.W ! Málsvari frjálslyndis,: . samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og Þórarinn Þórarinsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasimi: 18300. , Kvöldsímar: 686387 og 686306. Verð í lausasölu 25 kr. og 30 kr. um helgar. Áskrift 275 kr. Setnihg og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent hf. Fjöreggið ■ Andrés Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, gerði fyrir nokkru að umtalsefni hinar áratugalöngu árásir, sem samvinnuhreyfingin hefur orðið að sæta. Andrés Kristjánsson sagði: „Því verður varla haldið frarn með ótvíræðum rétti, að íslensk samvinnuhreyfing eða helstu fyrritæki og stofn- ariir hennar í verslun og atvinnurekstri, kaupfélögin og samband þeirra, hafi notið meðbyrseða umburðarlynd- is um skör fram af hendi þeirra rnanna, flokka og málgagna, sem telja aðra viðskipta- og rekstrarhætti í þjóðfélaginu ákjósanlegri. Um samvinnuhreyfinguna og starf hennar í landinu hefur satt að segja staðið linnulítil orrahríð alla stund síðan hún náði fótfestu hér á landi fyrir rúniri öld, að vísu í mislöngum lotum og með ofurlitlum hléum, en aldrei hefur verið fritt að fullu, á þessum vígstöðvum. Þessi aldarlöngu, hörðu og hvíldarlitlu átök sýna og sanna svo að varla verður urn villst, að hér er vegist á um gerólík og andstæð sjónarmið, sem eru að verða ósættanleg. Hins hefði þó ef til vill mátt ætla, að með tíð og tíma kæmust á nokkurn veginn varanleg grið milli þessara andstæðu fylkinga í samfélaginu, þannig að báðar viðurkenndu tilverurétt þessara mismunandi sjónarmiða og rekstrarforma í hinu blandaða hagkerfi okkar og héldu sig innan ramma málefnalegrar umræðu um þau en slíðruðu að mestu sverð hinnar vægðarlitlu höggorrustu sem geisað hafði. En því virðist ekki að heilsa. Herforingjar stríðsins gegn samvinnuhreyfing- unni hefja gunnreifir nýja sókn á annarri öld samvinnu- starfsins í landinu og láta ekki deigan síga. En þetta harðsækna stríð gegn samvinnuhreyfingunni er og hefur verið að mestu á aðra hlið. Samvinnumenn bregða aðeins vörnum við þegar harkalega er að þeim ráðist. Það verður varla ineð sanngirni sagt, að samvinnumenn hafi haft árásarfrumkvæði í þessum vopnaskiptum síðustu áratugina að minnsta kosti. Þeir hafa ekki legið í skotgröfum gegn hersveitum og borgum einkarekstrarins, eða annarra rekstrarforma af andstæðum toga, og sjaldan gert árásir að fyrra bragði. Samvinnumenn viðurkenna að fullu rétt einkaframtaks- ins til starfa og athafna, þótt þeir telji samvinnuúrræði betri kost í mörgum greinum. Flestir samvinnumenn líta meira að segja svo á, að hér sé alls ekki um hatrammar andstæður að ræða, sem þurfi endilega að standa í sífelldu stórstríði, heldur sé samvinnustarf í raun einstaklingsframtak í öðru veldi, þar sem samvinnusamtök séu vogarstöng einstakling- anna til hagsbóta og framfara, og henni megi beita að þéim mörkum, að það skerði ekki réttmætan hlut annarra. Margir talsmenn hlutafélaga og einkaframtaks vilja hins vegar gefa þeim rekstri miklu frjálsari hendur til söfnunar einkagróða af honum og virða ekki nógu vel landamæri annarra, telja sig hafa rétt til að ráða einir rekstri sínum og afrakstri hans, þótt hann sé sóttur í vasa annarra, og telja viðskiptamenn ekki eignarétt til áhrifa né hlutdeildar í ágóða. Þetta er í raun og veru ásteitingarsteinninn. “ En þótt árásirnar geti verið hvimleiðar, eru þær sönnun þess, að enn hefur samvinnuhreyfingin gagnleg verk að vinna. Andrés Kristjánsson segir: „Ef sá dagur rynni, að andstæðingar samvinnu- hreyfingarinnar legðu frá sér vopnin og þögnin sveipaði hana með öllum sínum þunga legðist hún sjálf í kör. Umræða um hana - góð eða ill eftir atvikum - er fjöregg hennar. Henni stafar engin hætta af þeirri umræðu né gagnrýni sem að henni er beint heldur hinu að þagað sé um hana alla daga.“

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.