NT - 03.09.1984, Blaðsíða 26

NT - 03.09.1984, Blaðsíða 26
| | L r Mánudagur 3. september 1984 26 Ll Íj>ró*tÍBr „Þetta var erfiðara en í fyrra“ - segir Hörður Helgason þjálfari nýbakaðra islandsmeistara Akraness ■ „Þetta er gott lið sem ég er með og góður mannskapur sem stendur á bak við liöiö, þess vegna höfum við náð þetta langt“ sagði Hörður Helgason þjálfari Skagamanna í samtali við NT, en lið hans vann á laugardag Islandsmeistaratitil- inn í knattspyrnu 1984. Frá því Hörður tók við liðinu fyrir tveimur árum hefur liðið unnið Islandsmeistaratitilinn og orðið bikarmeistar bæði árin. Glæsi- legur árangur og NT sendir Skagamönnum hamingjuóskir í tilefni af meistaratitlinum. „Mér finnst það hafa verið erfiðara að vinna báða titlana í ár en í fyrra. Þrátt fyrir að íslandsmeistaratitillinn liggi fyrr á borðinu nú en í fyrra. Við vissum það í byrjun að þetta mundi verða erfiðara, það var öllum liðunum kappsmál að vinna okkur. Þar að auki misst- um við Sigurð Jónsson, en hann var lykilmaður hjá okkur í fyrra. En þetta tókst með samstillingu og góðum mannskap." Á laugardagskvöld var glatt á hjalla á Akranesi. Leikmenn íslandsmeistaranna hittust hjá Herði þjálfara og síðan lá leiðin á Hótel Akranes á dans- leik. Að kvöldi laugardagsins 15. september verður haldin mikil sigurhátíð á Akranesi, en fyrr um daginn leika Skagamenn síðasta leik sinn í íslandsmót- inu á þessu keppnistímabili, gegn Breiðabliki á heimavelli sínum á Skipaskaga. ■ Hörður Helgason þjálfari Skagamanna á sigurstund. ÞórvannHauka - í æfingaleikjum í handknattleik í Eyjum Frá Sigfúsi (iuúinundssyni íþróttafrétta- manni NT í Vestmannaeyjum ■ Nýliðar Þórs í 1. deildinni í handknattleik, léku tvo æfínga- leiki gegn Haukum úr Hafnar- fírði um helgina. Haukar sem féllu í 2. deild á síðasta keppnis- tímabili töpuðu báðum leikjun- um fyrir Þórurum. Fyrri leikurinn fór 25-22 fyrir Þór eftirað staðan íhálfleikvar 12-10 heimamönnum í vil. Gylfi Birgisson var atkvæða- mestur Þórara með 11 mörk. í síðari leiknum sigruðu Þór- arar með 30 mörkum gegn 23. Staðan í hálfleik. var 15-11. Sigurður Friðriksson skoraði 7 mörk fyrir Þór, þar af 5 úr vítum og Gylfi Birgisson skor- aði 6, þar af 1 úr víti. Þeir Jón Hauksson og Sigurjón Sigurðs- son skoruöu 8 mörk hvor fyrir Hauka. ■ Hér tekur Sigurður Halldórsson sigurhopp þrátt fyrir að hafa ekki sigrað í leiknum. Skagamenn tryggðu sér hins vegar íslandsmeistaratign og því gat Sigurður hoppað. KR-ingarnir á myndinni eru Ágúst og Jósteinn. nt mynd Ámi Bjama Nádu jafntefli gegn KR og urðu íslandsmeistarar - Skagamenn hafa tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu 1984 ■ KR og Akranes gerðu markalaust jafntelfí á Laugar- dalsvelli á laugardag. Með því eina stigi sem Skagamenn fengu úr þessum leik tryggðu þeir sér íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu 1984, því Keflvík- ingar töpuðu á sama tíma fyrir Þór í Keflavík Leikur KR og í A á laugardag var lítið spennandi á að horfa og lítið um hættuleg mark- tækifæri. KR-ingar voru þó mun ákveðnari aðilinn allan leikinn og lið Skagamanna komst ekki almennilega í gang fyrr en síðustu mínútur leiks- ins. Leikurinn fór rólega af stað, en fyrsta marktækifærið leit dagsins ljós á 11. mín. Svein- björn Hákonarson átti þá gott langskot að marki KR, en Stef- án markvörður varði vel. Á 25. mín. munaði iitlu að mistök Árna Sveinssonar kost- uðu Skagamenn mark. Hann gaf boltann á Gunnar Gíslason KR-ing, sem síðan renndi hon- um áfram á Björn Rafnsson, sem síðan komst í gegnum HNOT- SKURN ■ Daufur leikur í sólskini og kúrekastemningu á Laug- ardalsvelli. „Villta vesturs" bæjarllðinu tókst ekki að knýja fram sigur úr þessu einvígi. Þeir voru ekki nógu nákvæmir á gikknum þegar mest á reið. Leikmenn lið- anna gátu því með sanni reykt saman friðarpípu að leikslokum. Skagavörnina. Sóknin endaði með því að Björn skaut í hliðarnetið úr nokkuð þröngu færi. Tveim mínútum síðar var Björn aftur á ferðinni. Hann gaf góða sendingu inní vítateig ÍA á Ágúst Már sem „kiksaði“ illa fyrir opnu marki. Stuttu síðar skallaði Ágúst rétt yfir eftir aukaspyrnu Sæbjörns. Sæbjörn var síðan sjálfur á Einkunnagjöf NT KR Stefán Jóhannsson ......3 Sævar Leifsson..........2 Haraldur Haraldsson .... 3 Jakob Pétursson ........3 Jósteinn Einarsson .....3 Ágúst Már Jónsson -.....4 Gunnar Gíslason ........4 Björn Rafnsson..........4 Sæbjörn Guðmundsson . 4 Óskar Ingimundarson ... 5 Hálfdán Orlygsson......5 Aðrir léku of stutt. IA Bjarni Sigurðsson ......2 Guðjón Þórðarson .......2 Jón Áskelsson ..........5 Ólafur Þórðarson ..:.... 3 Sigurður Halldórsson.... 4 Hörður Jóhannesson .... 5 Sveinbjörn Hákonarson .. 4 Karl Þórðarson..........3 Sigþór Ómarsson........5 Guðbjörn Tryggvason ... 4 Árni Sveinsson..........3 Aðrir léku of stutt. ferðinni rétt fyrir hlé, en skot hans fór rétt framhjá. Það voru síðan Skagamenn sem áttu síðasta orðið í hálf- leiknum. Eftir mikinn usla í vítateig KR, skaut Hörður Jó- hannesson framhjá markinu úr góðu færi. Síðari hálfleikur var ekki skárri en sá fyrri, síður en svo. KR-ingar voru mjög nálægt því að ná forystu á 66. mín. er Gunnar Gíslason renndi bolt- anum að marki Skagamanna. Boltinn stefndi í netið, en á síðustu stundu náði Guðjón Þórðarson að bjarga á línu. Guðjón lék miðvörð í þessum leik, þar sem Sigurður Lárus- son fyrirliði var í leikbanni. Ólafur Þórðarson tók stöðu Guðjóns sem hægri bakvörður. Þremur mín. eftir að Guðjón bjargaði á líunni frá Gunnari var sá síðarnefndi aftur í hættu- legu tækifæri. Skot hans úr góðu færi fór hinsvegar yfir mark Skagamanna. Þremur mín. fyrir lok leiks- ins komst Sigurður Helgason varamaður í liði KR upp að endamörkum og gaf boltann fyrir markið. Þar var enginn KR-ingur tilað reka endahnút- inn á sóknina og rann hún því út í sandinn. Það sem eftir lifði af leiknum var eins og Skagamenn áttuðu sig á því að þeir þyrftu að skora mark til að tryggja sér titilinn, en það var of seint. Þar með leit fyrsti markalausi leikur Akra- nesliðsins í sumar dagsins ljós. Á 69. mín. leiksins kom Sigurður Jónsson inná sem var- amaður í lið ÍA fyrir Sigþór Ómarsson og er það í fyrsta sinn í sumar sem hann leikur með liðinu eftir meiðslin sem hann hlaut í maí mánuði síðast- liðnum. Júlíus Ingólfsson kom líka inná í liði IA á 83. mín fyrir Sveinbjörn Hákonarson. Hjá KR kom Sverrir Herbertsson inná á 63. mín. fyrir Óskar Ingimundarson og Sigurður Helgason kom inná fyrir Hálfdán á 75. mín. Bestu menn liðanna í leiknum á laugardag voru þeir Bjarni Sigurðsson í liði ÍA og Sævar Leifsson í liði KR. Dregið hjá FRÍ ■ Dregið var í happ- drætti Frjálsíþröttasam- bands íslands þann 20. ágúst síðastliöinn. Sólar- landaferðir komu upp á miða númer 5718, 5121 og 4189. Kaupmanna- hafnarferðir komu upp á miða númer 4191, 2271, 4992, 3982, 15662, 10805 og 12545.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.