NT - 04.09.1984, Qupperneq 3
■ Þingflokkur framsóknarmanna í upphafi fundar í gær. Hér er
það Páll Pétursson sem stjórnar.
■ Þingflokkur sjálfstæðismanna í upphafi fundar í gær. Hér er
það Ólafur G. Einarsson sem stjórnar.
Þingflokkar funda
um „framtíðarplanið“
■ Þingmenn stjórmálaflokk-
anna fengu í gær til meðferðar
tillögur þeirra Þorsteins Páls-
sonar og Steingríms Hermanns-
sonar um framtíðarverkefni
stjórnarinnar. Eins og áður hef-
ur verið rakið í NT fela þær
m.a. í sér að gífurlegt átak
verður gert í nýsköpun atvinnu-
lífsins og sjóðakerfið verður
stokkað upp. Þá eru tillögur
formanna í landbúnaðar-
málum mjög í anda þeirra tiUagna
er voru samþykktar á aðalfundi
Stéttarsambands bænda s.s. á
þá leið að gerðir verði samning-
ar við bændum um að smám
saman verði dregið úr fram-
leiðslu á mjólkur og kjötvörum
þannig að framleiðslan miðist
við innanlandsmarkað. Þá á að
veita bændum heimild til að
stjórna framleiðslunni með því
■ Af meðferð þingflokkanna á „framtíðarplaninu“ má óhikað
mæla styrkleika formannanna.
að ákveða kvóta bæði á vinnsl-
ustöðvar og framleiðendur.
Sjálfstæðismenn funduðu stutt
og ræddu mest um forsendur
fjárlaga. Menn voru einhuga
um hallalaus fjárlög, 60% há-
mark á erlendar skuldir. Skattar
yrðu ekki hækkaðir. Allt þýðir
þetta mikinn niðurskurð.
Framsóknarmenn funduðu í
fimm tíma. Steingrímur flutti
erindi um atvinnu og mark-
aðsmál síðasta áratugar. Þá
voru fjárlög rædd og að lokum
samstarfssamningurinn.
Þingflokkarnir munu í dag
ræða framtíðarplan formanna
og gera breytingar. For-
mennirnir hittast síðan aftur,
samræma sjónarmiðin og leggja
síðan endanlegt plagg fram til
samþykktar (eða synjunar).
Þriðjudagur 4. september 1984 3
Þorskstofninn
aldrei stærri?
- Fjöidi þorskseiða í
sjónum einn mesti í 15 ár
■ „Útbreiðsla og fjöldi þorsk-
seiða var með því mesta sem
mælst hefur síðan hliðstæðar
athuganir hófust fyrri 15 árum
og má flokka árganginn með
hinum stóru árgöngum þorsk-
seiða frá 1970, 1973 og 1976.“
Þannig segir í niðurstöðu-
plaggi Hafrannsóknastofnunar
úr árlegum könnunartúrum
rannsóknarskipanna Bjarna
Sæmundssonar og Árna Frið-
rikssonar í síðasta mánuði. Þar
segir ennfremur að þorskseiðin
hafi verið stór og vel á sig komin
að megninu til. Mest er af þeim
fyrir norðan landið, svo sem
venja er til en einnig talsvert við
Vestfirði, fyrir austan land og á
hafinu milli íslands og
Grænlands. Einnig mældist
meira af ýsuseiðum en oftast
áður og var ástand þeirra seiða
gott eins og þorskseiða.
Hvað loðnuna snertir flokk-
ast árið 1984 með hinum rýru
árgöngum eftir 1976 en er þó
meiri en undanfarin tvö ár.
Athygli vekur að mestur hluti
loðnuseiðanna er mjög smár og
vatnaði nær alveg stór seiði sem
oftast eru verulegur hluti heild-
arfjöldans. Karfaseiði reyndust
vel yfir meðaltali síðastliðinna
10 ára hvað fjölda snertir og er
árgangurinn svipaður og 1981.
Athygli leiðangursmanna
vakti að nánast engin loðnuseiði
fundust norður og norðvestur af
Vestfjörðum og er ástæðan talin
sú að ískaldur pólsjór hefur náð
þar upp á landgrunnið eins og
ísrekið fyrr í sumar sýndi.
Annríki
ílög-
gæslu
■ Löggæslan í Reykjavík
snérist í ýmsu um síðustu helgi.
Á laugardaginn voru þrír menn
úrskurðaðir í gæsluvarðhald,
þar af tveir grunaðir um tengsl
við ávísanamál sem RLR hefur
til rannsóknar. Þriðji maðurinn
var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 17. október vegna sí-
brota.
Þá voru þrír staðnir að inn-
brotum um helgina. Einn var að
brjótast inn f Vídeó-leigu í
mjðbænum, annar inn í bóka-
búð í Breiðholtinu og sá þriðji
hugðist brjótast inn á matsölu-
stað við Suðurlandsbraut.
í gær var svo fjórði maðurinn
úrskurðaður f gæsluvarðhald,
grunaður um aðild að fyrrnefndu
ávísanamáli.
Fjórir jafnir og efstir eftir tvær umferðir á skákþingi Islands
Tímahrak setti svip á
skákir í 2. umferð
Halldór G. Einarsson tekur sæti Pálma Péturssonar
■ Nokkrar æsispennandi
skákir voru tefldar í 2. umferð
á skákþingi fslands í gær-
kveldi. Halldór Grétar Einars-
son kom fljúgandi vestan af
fjörðum og mun fylla skarð
Pálma Péturssonar er varð að
hætta við þátttöku í mótinu.
Halldór hefur um langt skeið
verið einn harðasti skákmaður
Vestfirðinga og þeir hafa ríka
ástæðu til að binda vonir við
hann, því í 1. umferð veittist
honum létt að sigra íslands-
meistarann Hilmar Karlsson.
Stýrði Hilmar þó svörtu
mönnunum.
Geypilegt tímahrak setti
svip sinn á allmargar skákit
einkum þó í skákum Lárusar
Jóhannessonar og Guðmundar
Sigurjónssonar, Jóhanns
Hjartarsonar og Margeirs Pét-
urssonar og Björgvins Jóns-
sonar og Karls Þorsteins.
Áður en lengra er haldið er
vert að renna yfir úrslit gær-
dagsins:
2. umferð:
Helgi-Jón V2:V2
Jóhann-Margeir Vv.Vi
Björgvin-Karl biðskák
Lárus-Guðmundur 0:1
Sævar-Dan V2:V2
Haukur-Ágúst 1:0
Hilmar-Halldór 0:1
Skák Helga og Jóns lauk
fyrst allra. Eftir 19 leiki slíðr-
uðu keppendur sverðin í stöðu
sem ekki bauð upp á stórátök.
Jón lenti í smávegis beyglu
þegar í byrjun tafls en varðist
örugglega. Skákinni lauk eftir
2'A klst. Meiri tilþrif voru í
viðureign hinna Olympíufar-
anna, Jóhanns Hjartarsonar
og Margeirs Péturssonar. Þó
Jóhann hefði hvítt náði Mar-
geir snemma tafls mun betri
stöðu. Ekki bætti úr skák að
þegar líða tók á setuna þá
minnkaði umhugsunartími
Jóhanns verulega þannig að
eftir 30 leiki átti hann aðeins 3
mínútur eftir til að ná tíma-
mörkunum við 40. leik.
Má mikið vera hafi Margeir
ekki misst af vinningsleið undir
lok setunnar. Onákvæmur
drottningarleikur kostaði dýr-
mætan tíma og Jóhann náði að
rétta úr kútnum. Það var svo
Margeir sem bauð jafntefli
þegar mikil uppskipti höfðu
átt sér stað.
Önnur tímahrakssena varð
í skák Lárusar Jóhannessonar
og Guðmundar Sigurjónsson-
ar. í flókinni miðtaflsstöðu
fórnaði Lárus manni og átti þá
einungis 10 mínútur eftir til að
leika 20 leiki. Svo var manns-
fórn þessi kefjandi að Guð-
mundur, sem átti tæpa klst.
eftir, notaði megnið af tíma
sínum til að finna viðunandi
■ Halldór G. Einarsson kom
fljúgandi vestan af fjörðum til
þátttöku í landsliðskeppninni.
Hann vann skák sína í 1.
umferð.
leið. Það tókst ekki; Lárus var
skyndilega kominn með sælu
peði meira og í þeim sviptingum
sem fylgdu í kjölfarið vann
hann tvo létta menn fyrirhrók.
En rétt í námunda við 40. leik
fór fallöxin niður þó staða
hans væri sennilega unnin.
Karl Þorsteins var enn í
sviðsljósinu í stórskemmtilegri
skák við Björgvin Jónsson.
Hvergi banginn fórnaði verð-
launahafinn frá heimsmeist-
aramóti unglinga skiptamun,
en gáði ekki að veikleika
kóngsstöðu sinnar og Björgvin
náði uppskiptum sem ættu að
duga til vinnings. Biðstaðan er
þessi:
Björgvin - Karl
Björgvin lék biðleik.
Þeir félagarnir Sævar
Bjarnason og Dan Hansson
tefldu þunga stöðubaráttu-
skák. Náði Sævar snemma
vænlegri stöðu en frumkvæði
hans lak smátt og smátt niður
og þeir deildu vinningnum. Þá
sigraði Haukur Angantýsson
Ágúst Karlsson mjög örugg-
lega
Staðan eftir tvær umferðir
er þá þessi:
1. - 4. Helgi Ólafsson, Jón L.
Árnason, Guðmundur Sigur-
jónsson og Jóhann Hjartarson
1 'h v. hver. 5.-6. Haukur
Angantýsson og Halldór G.
Einarsson 1 v. -1 frestuð skák.
7.-9. Dan Hansson, Margeir
Pétursson og Sævar Bjarnason
1 v. hver. 10. Karl Þorsteins Vi
v. + 1 biðskák. 11. Hilmar
Karlsson 'h v. 12. Björgvin
Jónsson 0 v. + 1 biðskák. 13.
-14. Ágúst Karlsson og Lárus
Jóhannesson 0 v.
Þeir Margeir Pétursson og
Karl Þorsteins sömdu jafntefli
á sína skák úr 1. umferð án
frekari taflmennsku.
í dag verða tefldar biðskákir
en 3. umferð hefst kl. 18 nk.
miðvikudag og þá tefla saman
Guðmundur og Helgi, Jón og
Björgvin, Dan og Lárus, Hall-
dór og Sævar, Ágúst og
Hilmar, Margeir og Haukur
og Karl og Jóhann.
■ Jóhann Hjartarson var hætt kominn í skák sinni við Margeir Pétursson.'Það varð hlutskipti
hans að verja vonda stöðu í miklu tímahraki. Margeir missti af vænlegri leið og varð að sætta sig
við jafntefli.
Helgi Ólafsson skrifar um skák