NT - 04.09.1984, Blaðsíða 28
-f T1Í7 Þriðjudagur 4. september 1984 28
L lU Útlönd
Brasilúmenn
selja farþega
flugvélar
Sao Jose Dos Campos-Reuter
■ Brasilíumönnum hefur á
undanförnum árum tekist mjög
vel að komast inn á hinn alþjóð-
lega flugvélamarkað þar sem
bandarísk og evrópsk fyrirtæki
hafa hingað til verið að mestu
einráð.
Á aðeins fimmtán árum hefur
Embraer-flugvélaverksmiðjun-
um, sem eru í ríkiseign, tekist
að komast í hóp sex stærstu
framleiðenda heims á litlum
farþegaflugvélum og vegur þess
vex stöðugt.
I'egar Embraer-fyrirtækið var
stofnað í ágúst fyrir fimmtán
árum bjuggust fæstir við að því
myndi takast að komast inn á
hinn alþjóðlega flugvélamark-
að. Fyrirtækið átti aðallega að
framleiða litlar flutninga- og
æfingavélar fyrir brasilíska flug-
herinn. En lítil átján sæta
flugvél, Bandeirantes, reyndist
vinsæl erlendis og Embraer
tókst að komast inn á banda-
ríska flugvélamarkaðinn árið
1978 þegar mörg minni flugfélög
voru einmitt að byrja að leita
eftir litlum, ódýrum og spar-
neytnum flugvélum.
Nú þegar hafa 430 Bandeir-
antes-flugvélar selst, þar af 130
í Bandaríkjunum. Þær seljast
ennþá vel og í ár er búið að gera
samning um sölu á 24 flugvélum
af þessari gerð til erlendra aðila.
En Embraer ætlar ekki að
binda framtíð sína við þessa
einu flugvél enda hafa ýmsar
nýjungar komið fram í flugvéla-
framleiðslu frá því að fram-
leiðsla hennar hófst. Á næsta
ári mun fyrirtækið hefja fram-
leiðslu á nýrri 30 sæta flugvél
sem gengur undir heitinu
Brasilía EMB-120. Hönnun
hennar hefur kostað um 250
milljón bandaríkjadali. En tals-
menn Embraer segjast þess full-
vissir að hún muni skila hagnaði
fyrir fyrirtækið. Nú þegar hafa
þeir fengið 22 pantanir á
Brasilíu EMB-120 frá banda-
rískum flugfélögum en samtals
þarf að selja 150 flugvélar til
þess að hún skili hagnaði.
Forseti Embraer, Ozires
Silva, seir að þrátt fyrir þessa
velgengni hafi fyrirtækið engar
áætlanir um að hefja framleiðslu
á stærri flugvélum. Hann segist
láta stóru flugfélögunum eftir
að tapa á slíkri framleiðslu.
■ Ef allt gengur að óskum
mun löngu útdautt kynjadýr
hefja sig til flugs á nýjan leik
innan næstu tveggja ára; svo-
kallaður pterosaurus eða flug-
eðla, stærsta kvikindi sem vitað
er að hafi flogið um loftin blá á
þeim sælu tímum erdínósaurus-
ar, tyranósaurusar, brontósaur-
usar og önnur furðudýr voru
drottnarar jarðarinnar. Téð ill-
fygli mun nú hafa verið útdautt
í um 64 milljónir ára.
Það er á vegum Smithsonian1
stofnunarinnar bandarísku sem
Snýr flugeðlan aftur
innan tveggja ára?
dýrið flýgur, eftirlíking þess
náttúrlega, mjög nákvæm, gerð
eftir steingerðri flugeðlu sem
fannst í vesturhluta Texasfylkis
snemma á síðasta áratug. Þessi
flugeðla sem á fræðimáli kallast
Quetzalcoatlus northropi í
höfuðið á aztekaguði hafði væng-
haf allt upp í 12 metra, eða ekki
ósvipað og lítil einkaflugvél.
Talsmaður Smithsonian-stofn-
unarinnar segir að vonir standi
til að flugeðlan geti flogið um
miðborg Washington eftir um
tvö ár.
Stofnunin hefur ákveðið að
verja 200 þúsund dölum til
smíðinnar, en það er fyrirtæki
Paul B. Mac Creadys í Pasadena
í Kaliforníu sem hefur tekið að
sér verkið. Mac Cready þessi er
þekktur meðal flugáhugamanna
og hefur um árabil unnið að
tilraunum með flugvélar sem
eru knúnar áfram af mannafli
einu saman. En það er ljóst að
■ EF marka má skoðana-
kannanir, eru úrslitin ráðin
fyrirfram í þingkosningunum,
sem verða í Kanada í dag.
Framsækni íhaldsflokkurinn
ætti að vinna yfirburðasigur.
Löngum valdaferli Frjálslynda
flokksins, lýkur þá að sinni.
Annars er vissara að taka
skoðanakönnunum í Kanada
með fyrirvara. Þær breytast oft
skyndilega. Eftir að Mulroney
hafði verið kosinn formaður
íhaldsflokksins vorið 1983,
sýndu skoðanakannanir að
flokkurinn myndi fá 55%
greiddra atkvæða, ef kosið
væri þá, en Frjálslyndi flokkur-
inn 27%. Ári síðar eða í júní
síðastliðnum, þegar Turner
var kosinn formaður Frjáls-
lynda flokksins, sýndu skoð-
anakannanir að Frjálslyndi
flokkurinn myndi fá 46%
greiddra atkvæða, ef kosið
væri þá, en íhaldsflokkurinn
ekki nema 32%.
sónulega óheppinn og ekki
fullnægt þeim vonum, sem
höfðu verið gerðar til hans.
Fy rsta og stærsta óhapp hans
var það, að það henti hann að
klappa konu á rassinn og það
ekki einu sinni einni konu
heldur tveimur, sem báðar
voru háttsettar í flokki hans.
Þetta hefði þó sennilega ekki
komið að sök, ef það hefði
ekki gerzt í augsýn alþjóðar
eða í sjónvarpinu.
Eftir þetta breiddist það út
eins og eldur í sinu um Kan-
ada, að það væri ómögulegt að
hafa fyrir forsætisráðherra
mann, sem ætti það til að
klappa konum á rassinn, jafn-
vel þótt það virtist óvitandi.
Hvað gæti t.d. gerzt, ef Elísa-
bet drottning kæmi í heim-
John Turner og kona hans
Glataði Turner sigrinum þegar
hann klappaði konu á rassinn?
Frjálslyndi flokkurinn hefur stjórnað í næstum hálfa öld
Nú hefur þetta enn snúizt
við. Allar síðustu skoðana-
kannanir benda til, að minnst
14% munur verði á fylgi flokk-
anna.
Það getur raskað þessum
tölum eitthvað, ef nýi jafnað-
armannaflokkurinn fær meira
fylgi en skoðanakannanir
benda til, en það þykir þó
heldur ólíklegt.
HVAÐ er það, sem hefur
valdið þessari miklu breytingu,
sem orðið hefur á fylgi flokk-
anna síðan Turner tók við
formennsku Frjálslynda
flokksins og forsætisráðherra-
embættinu fyrir rúmum tveim-
ur mánuðum?
Svarið virðist liggja í því, að
John Turner hefur verið per-
sókn? Fengi hún ef til vill
klapp á rassinn?
Þótt Turner kæmi yfirleitt
að öðru leyti heldur vel fyrir,
nægði þetta honum til dómsá-
fellis.
Það bættist svo ofan á þetta,
að Mulroney reyndist mun
snjallari í kappræðum, sem
þeir áttu í sjónvarpinu, einkum
þó í fyrsta einvíginu. Turner
sótti sig hcldur í þeim síðari,
en það nægði honum þó ekki.
Mulroney hélt áfram að
tryggja sér vinninginn.
Mulroney er ekki aðeins
mciri mælskumaður en
Turner, heldur kemur enn bet-
ur fyrir í viðræðum við kjós-
Brian Mulroney
endur. Hann státar af því, að
hann sé kominn af alþýðufólki
og hafi af eigin rammleik brot-
izt til mennta og frama. Turner
er hins vegar kominn af efnuðu
fólki og fékk styrk til náms við
fræga skóla, eins og Oxford-
háskólann. Þótt hann reyni að
'vera alþýðlegur, hefur hann
yfir sér meiri yfirstéttarbrag.
MÁLEFNALEGA er ekki
margt, sem skilur þá að Mul-
roney og Turner. Ihaldsflokk-
urinn í Kanada er í röð um-
bótasinnaðri íhaldsflokka,
enda kallar hann sig Fram-
sækna íhaldsflokkinn. Frjáls-
lyndi flokkurinn er talinn hafa
færzt heldur til hægri síðan
Turner tók við forustunni af
Trudeau. Þaðerþvíekkimikið
sem skilur flokkana að.
mörg tæknileg vandamál munu
mæta smiðum flugeðlunnar og
mikið vandaverk að láta hana
fljúga sæmilega eðlilega. Ljóst
er að ef kostnaður fer mjög
fram úr áætlun mun ekkert
verða af þessu fyrirhugaða
afturhvarfi til hinnar gráu forn-
eskju flugeðlunnar. En man ein-
hver eftir teiknimyndasögunni
um hana Birnu Borgfjörð sem
flaug á flugeðlu?
wiiiLri
Þérarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
í utanríkismálum má heita
að stefna þeirra sé hin sama
bæði hvað varðar afstöðuna til
Nató og Bandaríkjanna.
íhaldsflokkurinn hefur verið
talinn standa heldur nær
Bandaríkjunum en Frjálslyndi
flokkurinn, en þess hefur þó
ekki gætt, þegar hann hefur
farið með stjórn.
John Diefenbaker, sem var
forsætisráðhcrra og formaður
íhaldsflokksins 1957-1963, var
ekki í neinu uppáhaldi iijá
Bandaríkjamönnum. Þegar
Diefenbaker varð forsætisráð-
herra 1957, hafði Frjálslyndi
flokkurinn farið með stjórn í
samfleytt 22 ár. Síðan 1963
hefur hann svo aftur farið
samfleytt með stjórn, að tæpu
ári undanskildu.
Vafalaust hefur það einhver
áhrif á úrslitin í Kanada hve
langur valdaferill Frjálslynda
flokksins er orðinn. Það er
sennilega ein skýringin á því,
að íhaldsflokknum hefur ekki
tekizt að ná völdum aftur, að
hann hefur ekki verið heppinn
með forustumenn. Völd sín á
árunum 1957-1963 átti flokkur-
inn mest Diefenbaker að
þakka, en hann var mesti
mælskumaður kanadískra
stjórnmálamanna á sínum
tíma.
Margt bendir til, að nú sé
Mulroney að ná svipaðri stöðu.
Turnor ætlar hins vegar ekki
að komast í stað þeirra Mac-
Kenzies, Pearsons og Trude-
aus, en þeir þrír hafa gegnt
forsætisráöherraembættinu í
þann tíma. sem Frjálslyndi
flokkurinn hefur farið með
völd eða í tæp 45 ár.