NT - 04.09.1984, Blaðsíða 5
íslenska þjóðtrú og þjóðhætti.
Leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir, en meðal leikenda
eru Erlingur Gíslason, sem
leikur Skugga-Svein, Baldvin
Halldórsson, Ketill Larsen og
Pétur Einarsson.
Þriðja verkið er Ríkarður
III eftir William Shakespeare
og verður það jólasýning
Þjóðleikhússins í ár. Þetta er í
fyrsta skipti sem einn af sögu-
leikjum Shakespeares er sýnd-
ur hér á landi. Ríkarður III er
nú vinsælasta söguleikrit
Shakespeares, og að margra
áliti er þar að finna nokkur
bestu leikatriðin í saman-
lögðum verkum hans. Helgi
Hálfdánarson hefur þýtt verk-
ið en leikstjóri verður John
Burgess frá breska Þjóð-
leikhúsinu.
Fjórða verkið er Rashomon
eftir Fay og Michael Kanin.
Petta er leikrit um glæp sem
byggist annarsvegar á sögum
eftir japanska rithöfundinn
Ryunosuke Akutagawa og
hinsvegar á samnefndri kvik-
mynd Kurosawas. Leikstjóri
er Haukur J. Gunnarsson en
Árni íbsen hefur þýtt leikinn.
Fimmta verkið er Cicago,
söngleikur eftir Fred Ebb og
Bob Fosse. Eftir þessa höf-
unda liggur fjöldinn allur af
söngleikjum en hérlendis eru
þeir líklega þekktastir sem höf-
undar söngleiksins Kabarett,
sem Þjóðleikhúsið sýndi á sín-
um tíma. Benedikt Árnason
og Kenn Oldfield leikstýra,
Sigurjón Jóhannsson gerir
leikmynd, Una Collins gerir
búninga, Terry Davies er
hljómsveitarstjóri og Flosi
Ólafsson sér um þýðingu.
Sama fólkið sá um uppsetningu
Gæja og pía.
Sjötta verkið er Islands-
klukkan, eftir Halldór
Laxness. Þjóðleikhúsið verður
35 ára í apríl n.k. og verður
þetta afmælissýning en á næsta
ári eru einnig 3Ö ár liðin síðan
Tvær persónur ganga
nú um með sama and-
litið og verður það
uppspretta endalauss
misskilnings.
Þýðandi verksins er Þórar-
inn Eldjárn en leikstjóri Gísli
Rúnar Jónsson. Aðalsteinn
Bergdal fer með aðalhlutverk-
in tvö, forstjórann og starfs-
manninn, en aðrir leikarar eru
Bríet Héðinsdóttir, Þorsteinn
Gunnarsson, Hanna María
Karlsdóttir, Guðmundur
Pálsson, Kjartan Ragnarsson,
Guðmundur Ólafsson, Kjart-
an Bjargmundsson, Viðar
Eggertsson, Lilja Þórisdóttir
og Karl Gunnarsson.
Verkið verður frumsýnt í
lok september í Austurbæjar-
bíói og verður þar sýnt á
miðnætursýningum.
Fyrsta leikritið sem frum-
sýnt verður í Iðnó í vetur, er
Dagbók Önnu Frank, eftir
Frances Goodrich og Albert
Hackett. Þetta ersannsögulegt
leikrit, byggt á dagbók
Gyðingarstúlkunnar Önnu
Frank sem dvaldist í felum í
tvö ár á geymsluiofti í Amster-
dam, ásamt foreldrum sínum,
systur og fleira fólki, vegna
ofsókna nasista. Sveinn Vík-
ingur þýddi verkið en leikstjóri
er Hallmar Sigurðsson. Aðal-
hlutverk er í höndum ungrar
stúlku frá Selfossi, Guðrúnar
Kristmannsdóttur, en hún lék
titilhlutverk leiksins í upp-
færslu Leikfélags Selfoss fyrir
tveim árum. Með önnur helstu
hlutverk fara Sigurður
Karlsson, Valgerður Dan, og
Ragnheiður Tryggvadóttir.
Verkið verður frumsýnt í októ-
ber-byrjun.
Þriðja verkið er Agnes og
almættið, eftir John Piel-
meien. Þettaernýtt bandarískt
leikrit sem vakið hefur mikla
athygli. Það er nokkurskonar
Þriðjudagur 4. september 1984 5
höfundurinn fékk nóbelsverð-
launin. íslandsklukkan var
fyrst leikin við opnun Þjóðleik-
hússins árið 1950 og var síðan
sýnd aftur árið 1968. Sveinn
Einarsson, fyrrum þjóð-
leikhússtjóri verður leikstjóri
að þessu sinni.
Sjöunda verkið er Dafnis og
Klói, heilkvöldsballett við
tónlist eftir Maurice Ravel.
Nanna Ólafsdóttir mun semja
ballettinn og stjórna og verður
það í fyrsta skipti sem íslenskur
danshöfundur semur heil-
kvöldsballett. Islenski dans-
flokkurinn dansar.
Barnaleikritið í ár verður
Kardimommubærinn, eftir
Thorbjörn Egner, í leikstjórn
Klemensar Jónssonar. Nú eru
liðin tíu ár síðan þetta vinsæla
barnaleikrit var síðast sýnt í
Þjóðleikhúsinu og nú komin
ný kynslóð barna sem fær þarna
að kynnast Soffíu frænku og
ræningjunum þrem. Hulda
Valtýsdóttir og Kristján frá
Djúpalæk þýddu leikinn en
frumsýningin er fyrirhuguð í
nóvember.
Á litla sviðinu verða sýnd
tvö ný bandarísk leikrit. í
septemberlok verður verð-
launaleikritið Góða nótt eftir
Marsha Norman frumsýnt og í
janúar, Gertrude Stein Ger-
trude Stein Gertrude Stein,
eftir Marty Martin. Góða nótt
fjallar um Jessie, miðaldra
konu sem lifir fáfengilegu lífi
í sveit með móður sinni og
hyggst svipta sig lífi. Móðirin
beitir öllum brögðum til að fá
Jessie ofan af þessari ákvörð-
un. Gertrude Stein fjallar um
bandarísku skáldkonuna Ger-
trude Stein sem bjó í París á
fyrra helmingi þessarar aldar
og kynntist þar helstu lista-
mönnum þess tíma.
Til viðbótar þessum verkum
verður söngleikurinn Gæjar og
píur tekinn aftur upp í haust
og verða á honum nokkrar
sýningar.
sakamálaleikrit með trúarlegu
ívafi og fjallar um nunnu í
nunnuklaustri sem eignast hef-
ur barn. Barnið finnst látið og
er réttarlæknir kvaddur á stað-
inn til að kanna málið. Þýðandi
leiksins er Úlfur Hjörvar en
leikstjóri Þórhildur Þorleifs-
dóttir. Verkið verður frumsýnt
í desemberbyrjun.
í lok janúar verður frumsýn-
ing á Draumi á Jónsmessunótt,
eftir William Shakespeare.
Þetta er vinsælasti gaman-
leikur skáldsins og fjallar um
unga elskendur sem er meinað
að eigast en þá skerast álfar og
aðrar ævintýraverur í leikinn.
Leikritið verður sýnt í sam-
vinnu Leikfélagsins og Nem-
endafélags Leiklistarskóla
íslands. Þýðandi verksins er
Helgi Hálfdánarson, Grétar
Reynisson sér um leikmynd og
búninga og Jóhann G. Jó-
hannsson um tónlistarstjórn en
leikstjóri verður Stefán Bald-
ursson.
Síðasta verkið á leikárinu
verður nýtt íslenskt leikrit sem
verður kynnt nánar síðar þar
sem endanleg ákvörðun hefur
ekki verið tekin enn um hvaða
verk verður fyrir valinu.
Nokkrir íslenskir höfundar
vinna nú að leikritum í sam-
vinnu við Leikfélagið.
Frá fyrra leikári verða tekin
til sýninga Fjöreggið eftir
Svein Einarsson og Gísl eftir
Brendan Behan.
Sala á áskriftarkortum á
sýningar Leikfélasins er nú að
hefjast. Að þessu sinni verða
seld áskriftarkort sem gilda á
þær fjórar sýningar sem verða
í Iönó en sérstakt afsláttarkort
verður selt á sýninguna í Aust-
urbæjarbíói. Verð áskriftar-
kortanna er 900 krónur en
afsláttarkortið á sýninguna í
Austurbæjarbíói kostar 200
krónur. Álmennt miðaverð á
sýningar Leikfélagsins verður
250 krónur.
J.
■ Ingólfur Guðbrandsson stjómandi Pólýfónkórsins, ásamt hluta af stjórn kórsins, þeim Guðmundi Guðbrandssyni, Fríðriki
Eiríkssyni, Eddu Magnúsdóttur og Tryggva Eiríkssyni. Nr-mjmt svcmr
Stórviðburður hjá Pólýfónkórnum:
Flytur H-moll messuna
á 300ára afmæli Bach
■ „Það er lán að geta talist
gjaldgengur á þessu stóra af-
mæli. Það gerist bara einu sinni
á ævi manns.“
Þetta segir Ingólfur Guð-
brandsson, sem mun stjórna
flutningi Pólýfónkórsins og Sin-
fóníuhljómsveitar íslands á
H-moll messu Jóhanns Sebasti-
ans Bach á 300 ára fæðingaraf-
mæli tónskáldsins hinn 21. mars
1985.
H-moll messan er eitt af önd-
vegisverkum tónbókmenntanna
og hefur hún aðeins verið flutt
tvisvar áður hér á landi, í bæði
skiptin af Pólýfónkórnum undir
stjórn Ingólfs Guðbrandssonar,
í síðara sinnið árið 1976.
28. starfsári Pólýfónkórsins
verður hleypt af stokkunum
með söngnámskeiði, sem hefst
í lok september. Á þar að fríska
upp á raddir söngfólksins eftir
sumarhléið, og það verður ít-
alska söngkonan Eugenia Ratti,
sem fær það hlutverk. Er þetta
í þriðja sinn, sem hún kemur
hingað til að þjálfa raddir
kórsins. Ratti dvelur hér í tvær
vikur og mun þjálfa kórfélaga
bæði í einka- og hóptímum.
Undir lok júnímánaðar á
næsta ári heldur kórinn væntan-
lega suður til Ítalíu og mun
syngja í helstu borgum landsins,
þ.á m. Flórens, Siena og Róm.
Það er þó háð því, að samkomu-
lag náist við hljóðfæraleikara.
Sinfóníuhljómseit íslands verð-
ur á ferðinni í Suður-Frakklandi
á sama tíma og er vonast til að
hún geti farið þaðan til Ítalíu.
Þá gæti farið svo, að H-moll
messan yrði flutt í þessum höfuð-
stöðvum heimslistarinnar.
Pólýfónkórinn mun reka kór-
skóla eins og endranær. Hefst
starfsemi hans 1. október og
stendur í tíu vikur. Kórskólinn
stendur opinn öllum áhuga-
mönnum um söng, og hefur
hann verið vel sóttur á ári
hverju. Innritun í hann ferfram
hjá ferðaskrifstofunni Útsýn.
.Skráning nýrra kórfélaga fer
einnig fram næstu daga í símum
76583 (Lára) eftir kl. 13 en í
43740 (Friðrik), 39382
(Tryggvi) og 82795 (Edda) eftir
vinnutíma og um helgina.
■ Því miður er hann Ofeigur Björnsson gullsmiður að
fara að sýna í Helsinki, en ekki er að efa að hann hefði
fengið stórkostlega aðsókn hér heima með þessi statív
undir gripina.
Sýning hans ber nafnið Instinkt og er önnur einkasýning
Ofeigs. Áður hefur hann sýnt í Gallerí Grjót við
Skólavörðustíg. Auk þess hefur hann tekið þátt í fjölda
samsýninga.
Efnisviður Ófeigs er aðallega leður, kopar og fjaðrir,
auk hefðbundinna efna. Sýning hans í Helsinki stendur í
rúmlega þrjár vikur, ef einhver skyldi vilja bregða sér.
■ Forsvarsmenn hins nýja læknatals. Talið frá vinstri, Leó
E. Löve forstjóri ísafoldar, Tómas Á Jónsson og Þorvaldur
Veigar ritnefndarmenn og ritstjórinn Gísli Ólafsson.
NT mynd Árni Bjarna.
Nýtt Læknatal:
Sextíu prósent
aukning lækna
- ffrá útgáffu síðasta Læknatals
■ Nýtt Læknatal er komið
út og var í gær kynnt fjöl-
miðlum af útgefanda, rit-
stjóra og ritnefndarmönnum.
I bókinni eru æviskrár 1193
lækna og er það rúnt 60%
aukning í stéttinni frá því
bókin kont síðast út 1970. Þá
voru teknir allir læknar sem
starfað höfðu til ársins 1965
og töldust 719 en nú er bætt
við í talið öllum sem bæst
hafa við til ársloka 1980, sem
eru 474.
Læknatalið er merkt ætt-,
fræðirit, þar er getið uppruna
hvers læknis, maka, tengda-
foreldra ogbarna. Starfsferill
er rakinn og getið helstu rita
sem viðkomandi hefur
samið. Ennfremur er náinna
tengsla eða skyldleika lækna
innbyrðis getið. Að sögn
Gísla Ólafssonar ritstjóra
gekk söfnun upplýsinga um
læknana misvel og vildu fá-
einir ekki láta þar koma neitt
fram nemagrunnupplýsingar
sem finnast hjá læknafélag-
inu og einn læknir þvertók
fyrir að sín væri getið í
bókinni, - og var það þá ekki
gert. Bókin, sem ber nafnið
Læknar á íslundi er 735 blað-
síður og kostar rétt tæpar
3000 krónur út úr búð. Að
sögn útgefandans er hér um
sérstakt útgáfuársverð að
ræða og er ætlunin að hækka
verðið þegar frá líður.
í læknatalinu er meðþeirri
undantekningu sem þegar er
talin getið allra sem tekið
hafa læknapróf hér á landi
frá fyrstu tíð eða haft með
lækningar hérlendis að gera
um einhvern tíma. Elsti
læknir bókarinnar er Hrafn
Sveinbjarnarson sent háls-
höggvinn var árið 1213.