NT - 04.09.1984, Síða 16
Þriðjudagur 4. september 1984 16
Opnast leið fyrir íslenska uppfinningamenn á heimsmar kaðinn?
íhuga þriggja milljóna að
ild að úrvinnslustofnun
- Iðnlánasjóður, Samvinnusjóður og Landsbankinn hugsanlegir hluthafar
■ „Það er verið að athuga
möguleikana á þessu, og við
höfum lýst yfír ákveðnum vilja,
en það hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun í stjórn
sjóðsins", sagði Gísli Bene-
diktsson, framkvæmdastjóri
Iðnlánasjóðs, í samtali við NT
en sjóðurinn er einn nokkurra
íslenskra aðila sem íhuga nú að
gerast eignaraðilar í fyrirtækinu
Norde Invent, sem safnar ný-
Japanir hafa uppgötvað efni sem kemur í stað kísilmálms í hálf leiðurum:
„Er innan við 1 % af
kísilmálmmarkaðinum“
-segir Magnús Magnússon, hjá Kísilmálmvinnslunni
■ „Þessi uppgötvun breytir
lítið framtíðarspám okkar um
kísilmálmmarkaðinn, þar sem
hér er um mjög takmarkað
notkunarsvið og magn að
ræða“, sagði Magnús Magnús-
son, sem sér um tæknileg mál-
efni Kísilmálmvinnslunnar,
þegar NT spurði hann hvaða
áhrif uppgötvun japanska fyrir-
tækisins NEC á efnunum gal-
lium arseníð og ál arseníð, sem
koma í staðinn fyrir kísilmálm í
hálfleiðurum, gæti haft á fram-
leiðendur kísilmálms.
Magnús sagði að kísilmálm-
markaðurinn velti nú um 420
þúsund tonnum á þessu ári, en
þar af væru 97% notuð til að
blanda við ál eða til að framleiða
sílikonefni, svo sem gúmmí ,
olíu og plast . „Afgangurinn,
þessi þrjú prósent, fer víða, svo
sem í blöndun stáls, framleiðslu
sólarrafhlaða, og hálfleiðara.
Framleiðendur hálfleiðara nota
um 4000 tonn af kísilmálmi
árlega, eða innan við 1% af
heildarmarkaðinum", sagði
Magnús.
„Ef framleiðsla á þessu efni í
stórum stíl heppnast, þá leiðir
það væntanlega til þess að
hlutur kísilmálms í hálfleiður-
um minnkar, a.m.k. þeim hálf-
leiðurum þar sem boðhraði
skiptir mestu máli“, sagði
Magnús Magnússon að lokum.
jum uppfínningum, vinnur úr
þeim og býr þær undir fram-
leiðslu og sölu á heimsmarkaði.
Fyrirtæki þetta hefur verið í
eigu skandínavískra aðila, fyrir-
tækja, banka og sjóða, og starf-
að um nokkurra ára skeið, en
nú stendur til að tífalda hlutaféð
í félaginu. Um leið vildu for-
ráðamenn fyrirtækisins víkka
grundvöll félagsins og leituðu til
viðskiptaráðuneytisins með að
fá íslenska aðila til þátttöku í
því. Rætt hefur verið um að
hlutur íslendinga verði allt að 2,9
milljóna íslenskra króna, eða
sem svarar 6,25% alls hlutafjár
eftir hlutafjáraukninguna.
„Það hefur vantað einhverja
leið, sem gæti tekið við uppfinn-
ingastarfsemi hér“, sagði Þor-
steinn Ólafsson, formaður
stjórnar Samvinnusjóðs íslands,
en sjóðurinn hefur málið til
athugunar. „Þetta yrði af okkar
hálfu hugsað sem leið til þess að
koma íslenskum uppfinningum
á framfæri með skipulögðum
hætti, og í samvinnu við aðila
sem hefðu þekkingu á þessu
sviði“. Þorsteinn sagði að Sam-
vinnusjóður myndi taka afstöðu
til eignaraðildar á stjórnarfundi
síðar í mánuðinum.
Einnig mun Landsbanki ís-
lands vera að athuga með að
kaupa hlut í Norde Invent.
■ Gætu íslendingar sjálfír átt þátt í |
með fulltrúa þýska fyrirtækisins sem
Cabina rúmsamstæðan
er komin
Samvinnubankinn breytir vöxtum:
„Samræmið að auk-
ast í vöxtunum"
Verð kr. 12.600.-
Fæst í teak og beyki.
Dýnustærðir 200x90 teak
191 x92 í beyki
Húsgögn og
. . . Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi 6-86-900
I „Það var talað um að samræmi mundi smám
saman skapast á milli vaxtaákvarðana bank-
anna, og mér sýnist það nú vera að gerast.
Bankarnir mæta hver öðrum í samkeppninni“
sagði Geir Magnússon, bankastjóri Samvinnu-
bankans, í samtali við NT, en Samvinnubankinn
hefur tilkynnt um breytingar á fyrri vaxta-
ákvörðun og tóku þær gildi 1. september.
Samvinnubankinn hækkaði m.a. vexti sína á
sex mánaða bundnum innlánsreikningum í
24.5%.
Enn er þó nokkur munur á vöxtum bankanna,
og má nefna að vextir á tólf mánaða bundnum
reikningum eru frá 21% og upp í 24%.
Geir Magnússon sagði að bankarnir væru
bundnir af tvennu við vaxtaákvarðanir sínar.
Annars vegar væri þakið sem Seðlabankinn setti
á eldri útlán. Hins vegar væri reikningsgeta
Reiknistofu bankanna. Bankarnir hefðu allir
reynt að setja á stofn nýja reikninga, sem féllu
betur að þörfum sparenda, en Reiknistofan
hefði ekki getað komið þeim fyrir í starfi sínu.
Reiknistofan væri því orðin mikill flöskuháis í
reikningaþróuninni.
Leiðtogar kveðja tollahöftin
■ Þessi mynd af fulltrúum ís-
lands á þriðju leiðtogaráðstefnu
EFTA í vor er úr nýjasta frétta-
bréfi EFTA. Ráðstefnan var
haldin í Visby í Svíþjóð og í
tilefni þess að síðustu samnings-
bundnu tolla- og magnhöftin á
verslun innan því sem næst
allrar Vestur-Evrópu höfðu
gengið úr gildi, en aðalumræðu-
efnið var aukin samskipti við
Efnahagsbandalagið.
Verslunarjöfnuður íslands
við hin EFTA löndin sex var
óhagstæður um 2,4 milljarð
króna á árinu 1983. Um 23% af
innflutningi okkar kom frá þess-
um löndum, en um 15% af
útflutningnum fór til þeirra;
höfðu bæði innflutningurinn og
útflutningurinn dregist saman
frá árinu áður. Mest fluttum við
út til Portugal; fyrir um 1,4
milljarð króna, en innflutningur
varð mestur frá Svíþjóð og Nor-
egi, um 1,8 milljarður frá hvoru
landi.
Á myndinni eru talið frá
vinstri Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, Benedikt
Gröndal, sendiherra, Matthías
Á. Mathiesen, viðskiptaráð-
herra og Þórhallur Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri.
Úrval af skólatöskum, pennaveskjum og öðrum skólavörum
Háaleitisbraut 58-60 Sími 35230
Bókabúð Safamýrar