NT - 04.09.1984, Page 32
■ Þjónn, - það er froskur í salatinu.
Laumufarþegi inn í landið:
■ Þegar að landi kom beið ufsans ekki annað en að úldna í lest og hafna þvínæst í gúanó. Fagur var fiskur í sjó.... NT-mynd ingveidur
Fimm daga bið eftir löndun í Vestmannaeyjum:
Froskurí
salatinu!
■ Kvakk,- og milli salatblað-
anna hoppaði örlítill froskur
þegar lesandi NT hugðist festa
kaup 4 góðmetinu í einni
Reykjavíkurbúðinni. Þarna
var kominn anga Iítill froskur
sem hafði smyglað sér inn í
landið frá Hollandi með hjálp
salatsendingar og gerði sig lík-
legan til þess að hoppa yfir
landið þvert og endilangt. En
kaupandinn taldi þennan
kaupbæti tilheyra sér og kom
Kermit litla fyrir í plastmáli.
Heima beið svo sonurinn, 8i
ára snáði sem einmitt átti af-
mæli þennan dag og varð held-
ur en ekki upp með sér af
þessarri óvæntu afmælisgjöf.
En hann Kermit okkar var
ekkert yfir sig hrifinn af
myndatökum og forðaðist linsu-
opið eins og heitan eldinn. Að
lokum tókst þó að ná af
honum sæmilegri passamynd
en hvort hérlend yfirvöld væru
tilbúin að veita honum hæli er
allt annað mál.
„Skipstjórarnir hlýddu því
ekki sem þeim var sagt og
fóru auðvitað í það sem nóg
var af, ufsann. Hafa senni-
lega haldið að það væri allt í
lagi. En húsin eru full af
unnum ufsa og það er mjög
fátt fólk komið til vinnu eftir
fríin í stöðvunum. Það kæm-
ist allt fyrir í einni stöð og
hefur eðlilega ekki áhuga á
að vinna lengur en til klukkan
fimm, loksins þegar sólin er
farin að skína,“ sagði Hjörtur
Hermannsson verkstjóri í
einu af þremur frystihúsum
þeirra Eyjamanna, Fiskiðj-
unni. „Það er líka í raun og
veru hreint brjálæði að vinna
ufsa um þessar mundir. Það
er hvergi hægt að selja þetta
og nóg af ufsa hvar sem er í
heiminum,“ sagði Hjörtur
ennfremur.
Ekkerttil aðtala um
„Þetta er ekkert til að tala
um,“ sagði Gísli Jónasson
forstjóri útgerðarfyrirtækis-
ins Samtog sem á þá þrjá
togara sem nú eru í Vest-
mannaeyjahöfn og beðið
hafa löndunar. Auk Sindra
sem þegar er nefndur eru
togararnir Klakkur og Gíde-
on með talsverðan afla, mest
smá- og milliufsa og verður
landað úr þeim í vikunni.
„Við reyndum að fá að landa
úr Sindra annarsstaðar, alveg
frá Hornafirði til Reykjavík-
ur en það gekk ekki, - menn
eru ekkert gráðugir í þessar
fisktegundir núna“ Að-
spurður um afla hinna togar-
anna sem liggja í höfn kvaðst
Gísli búast við að hann væri í
ágætu standi en þeir voru
kallaðir inn í höfn áður en
lestir fylltust þegar sýnt var
hvert stefndi.
„Þorskurinn datt einmitt
niður um það leyti sem farið
var í þessa túra og tonnatalan
er afskaplega rík í þessum
mönnum þó verðmætið hefði
getað orðið eins mikið ef þeir
hefðu verið rólegri. Við ætl-
um að láta skipin fara út með
hæfilegu millibili, - höldum
þeim eitthvað inni',“ sagði
Hjörtur í Fiskiðjunni.
Ástand í höfnum sunnan
og suðvestanlands er mjög
misjafnt um þessar mundir.
Þannig er í Þorlákshöfn næg
atvinna en í Grindavík var
eitt frystihúsanna lokað
vegna aflaleysis en heimildar-
menn NT þar töldu að lítill
áhugi væri á að halda þeim
gangandi með ufsa.
Stærstur hluti aflans var auk þess ufsi sem er illseljanlegur
■ Þrjátíu til fjörutíu tonnum af lausum fiski, að mestu ufsa var hent í gúanó í gærdag úr togaranum Sindra í
Vestmannaeyjum.
Eins og kom fram í NT í gær var Sindri þá búinn að bíða í Vestmannaeyjum eftir löndun síðan á miðvikudag í
síðustu viku en sökum mannfæðar í frystihúsum hefur gengið erfiðlega að landa og vinna þann afla sem að landi
hefur borist. Þegar farið var að skoða aflann reyndist mestallur lausi fiskurinn ónýtur en kassafiskurinn er í ágætu
—...--..... standi. Heildarafli Sindra var 120 tonn og að langstærstum hluta ufsi, en hann er
mjög illseljanlegur um þessar mundir.
■ Froskur, já ég er froskurínn í salatinu og hvað með það.
NT-myndin Sverrir
25% af afla Sindra
var hent í gúanó!