NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 25.10.1984, Qupperneq 23

NT - 25.10.1984, Qupperneq 23
1 Fimmtudagur 25. okt. 1984 23 J Útlönd • Deilt um kjarn- orku á Kyrrahaf i Sameinuðu þjóðirnar-Kcuter ■ Frakkar hafa lengi verið gagnrýndir vegna tilrauna sinna með kjarnorkuvopn í Kyrra- hafi. IMörg Kyrrahafsríki eru Frökkum mjög reið fyrir þessar tilraunir sem þau telja hættuleg- ar fyrir lífríki svæðisins og ógn- Samdráttur í lánum til land- búnaðarþróunar fátækra landa París-Reuter ■ Allar horfur eru nú á því að alþjóðleg lán til landbúnaðarþróunar á fá- tækum landbúnaðarsvæð- um muni dragast mikið saman á næstunni. Aðildarríki Alþjóða- sjóðs landbúnaðarþróun- ar, sem starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna.geta ekki komið sér saman um það hvernig fjárframlög til sjóðsins eigi að skiptast á milli þeirra á næstu þremur árum. Þegar sjóð- urinn var stofnaður árið 1977 varð að samkomulagi að iðnaðarríki í OECD greiddu 57% af fjármagni sjóðsins en olíufram- leiðsluríki í OPEC 43%. Síðan hefur framlag OPEC ríkja minnkað nokkuð vegna efnahags- örðugleika þeirra og vilja þau nú að framlag þeirra verði minnkað niður fyrir 40%. Bandaríkjamenn eru ekki heldur ánægðir með lán sjóðsins til landbúnað- arþróunar í Nicaragua og öðrum löndum sem hafa vinstrisinnaðar ríkis- stjórnir. Á þeim sjö árurn sem sjóðurinn hefur starfað, hefur hann lánað um tvo milljarða bandaríkjadali með hagstæðum kjörum til landbúnaðarþróunar í ýmsum löndum Asíu, Afríku og Suður-Amer- íku. Nú er hins vegar hætt við því að heildarfjármagn sjóðsins næstu þrjú ár verði aðeins um 750 mill- jónir dollarar þótt hann þyrfti um 1,4 milljarða dollara til að geta lánað jafn mikið og árin 1980 og 1981. un við öryggi þess. En Frakkar hafa látið öll mótmæli Kyrra- hafsþjóðanna sem vind um eyru þjóta og halda ótrauðir áfram tilraunum sínum. Fyrr í þessari viku varði full- trúi Frakka hjá Sameinuðu þjóðunum stefnu stjórnar sinn- ar jafnframt því sem hann gagn- rýndi stjórn Nýja-Sjálands fyrir að gera kjarnorkutilraunirnar að pólitísku deiluefni. Fulltrú- inn, sem heitir Francois de la Gorce, fullyrti að andstaða Ný- sjálendinga við tilraunir Frakka hefði ekkert með náttúruvernd að gera heldur „stæðu Nýsjá- lendingar gegn grundvallarrétt- indum Frakka vegna óskar um að ná sér niðri á Frökkum." Fulltrúi Nýsjálendinga svar- aði því til að andstaða þeirra við kjarnorkutilraunir Frakka í Suður-Kyrrahafi stafaði vissu- lega ekki aðeins af náttúru- verndarsjónarmiðum einum saman. Þeir teldu ásamt öðrum Kyrrahafsþjóðum að tilraunir með kjarnorkuvopn væru ógn- un við öryggi þessa tiltölulega friðsama heimshluta. í seinustu viku sendu Nýsjá- lendingar frá sér yfirlýsingu þar sem þeir mótmæltu tilraunum á Kyrrahafi sem hefðu það að markmiði að fullkomna stríðs- vélar kjarnorkustyrjaldar. Ný- sjálendingar telja skýrslu al- þjóðanefndar um lítil umhverf- isáhrif kjarnorkutilraunanna engin rök fyrir áframhaldi þeirra. Þeir mótmæla þeirri stefnu Frakka að halda tilraun- unum áfram næstu 15 ár ef trúa megi fréttum franskra blaða. Nýsjálendingar segjast niunu halda áfram tilraunum sínum til að fá þessar kjarnorkutilraunir tafarlaust stöðvaðar. Smjörútsala til Sovét - aukið jólabaksturinn! Lúxemburg-Reuter ■ A fundi landbúnaðarráð- herra Efnahagsbandalagsríkja um helgina fann breski landbún- aðarráðherrann að ráðabruggi bandalagsins um að selja niður- greitt smjör til Sovétríkjanna og Mið-Austurlanda. I Reuters- frétt segir að Danir og Hollend- ingar hafi tekið undir aðfinnslur Breta. Landbúnaðarráðherra EBE, Poul Dalsager, sagði hins vegar að ákvörðuninni yrði ekki breytt. Það var fyrir viku síðan að Evrópuráðið tók ákvörðun um að reyna að grynnka á óhóf- legum smjörbirgðum banda- lagsins með því að selja gamalt og nýtt smjör á útsöluverði bæði innan EBE-landa og utan. Ráð- gert var að í kjölfarið kæmi áróðursherferð þess efnis að hollir EBE-borgarar auki við sig jólabakstur og smjörneyslu til hagsbóta fyrir bandalagið. í ágústlok vó smjörfjall EBE um 1.25 milljón tonn. Nýsjálendingar, sem einnig flytja út mikið af smjöri, hafa mótmælt útsölunni og segja að hér sé um brot á alþjóðasam- þykktum um lágmarksverð að ræða. í samþykkt EBE er gert ráð fyrir því að seljendur, sem geti selt meira en 50 þús. tonn af nýju smjöri til Sovétríkjanna eða Mið-Austurlanda á heims- markaðsverði, (1200 dollurum tonnið), geti fengið jafnmikið magn af eldra smjöri til að selja á mun lægra verði eða 450 dollurum tonnið. Tryggingafélagið Lloyd’s: Undirbýr geimbjörgun London-Reuter ■ Alþjóðatryggingafélagið Lloyd’s, sem hefur aðsetur sitt í London, hefur leigt bandaríska geimferju til björgunarstarfa úti í geimnum. Fyrirtækið varð fyrir miklu fjár- hagslegu tapi ergeimferjunni mis- tókst að setja tvo indónesíska fjarskiptahnetti á rétta braut í febrúar á þessu ári. Hnettirnir voru tryggðir hjá Lloyd's sem neyddist til að greiða 180 milljón dollara tryggingafé til Indonesa. Auk þessara tveggja hnatta hafa Bandaríkjamenn einnig fallist á að sækja einn annan fjarskipta- hnött sem varð fyrir lítilsháttar bilun skömmu eftir að hann var settur á braut um jörðu. Lloyd’s mun greiða bandarísku geimferðastofnuninni 10,5 milljón dollara fyrir björgunina en í því er einnig falin greiðsla fyrir að koma hnöttunum aftur á loft. Tryggingafélagið hefur í hyggju að sclja iinettina til hæstbjóðanda og vonast það til þess að fá 30 til 40 milljón dollara fyrir indónes- ísku fjarskiptahnettina en eitthvað minna fyrir þann þriðja. Ekki er ólíklegt að Indónesar vilji kaupa hnettina sína attur enda voru þeir búnir að gera ráð fyrir þeim við uppbyggingu fjarskiptakerfi lands ■ Þessi þríggja mánaða gamli drcngur var meðal 150 íranskra flóttamanna sem komu til Danmerkur um síðustu helgi. Símamynd-POLROTO íranskir flóttamenn streyma til Danmerkur ■ Stríðið milli Irans og íraks, stöðug innanlandsólga, efna- hagsþrengingar og óánægja með klerkaeinræði hefur leitt til þess að fjöldi írana flýr nú til annarra landa. Margir íranir hafa að undanförnu leitað hælis hjá frændum vorum Dönum. Eru Danir meira að segja farnir að tala um flóttamannastraum í því sambandi. Um síðustu helgi komu til dæmis 150 íranir til Danmerkur. Danir neyddust til að taka í notkun bráðabirgðarhúsnæði fyrir þetta fólk í flugstöðvar- byggingunni Kongelund á Am- ager sem að hluta til hafði verið tekin úr notkun. Fólkið dvelst þar nú þar til betra húsnæði liefur fundist. Salemispappír - stórmál í kosningunum í Nicaragua General Motors: Minni gróði Delroit-Reufer ■ Gróði af rekstri Gen- eral Motors, stærsta bíla- framleiðanda heims, minnkaði um 43% á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Fyrirtækið græddi aðeins 417 milljón dollara á þessu tímabili en samtals var heildarsöluverðmætið í þessum mánuði 18,5 mill- jarðar dollara. Á sama tímabili í fyrra varð gróð- inn hins vegar 737 milljón- ir þótt sala fyrirtækisins út um allan heim hefði þá verið um 17,6 milljarðar. Talsmenn fyrirtækisins segja að minnkandi gróði stafi fyrst og fremst af sex daga verkfalli bandarískra verkamanna í bílaiðnaði í síðasta mánuði og verk- falli málmiðnaðarmanna í Þýskalandi nú í sumar. Þessi verkföll munu hafa leitt til um 200 milljóna dollara minni hagnaðar af rek.stri General Motors en ella. GM á nú í nýrri vinnu- deilu við verkamenn sem vinna í verksmiðjum fyrir- tækisins í Kanada þar sem margir af gróðavænleg- ustu bílum GM eru fram- leiddir. Verkföll í þessum verksmiðjum hófust í síð- ustu viku. Managua-Reuter ■ „Ég verð að játa það að ég hef séð salernispappír í fjöl- mörgum löndum. En ég held að í engu landi sé talað jafnmikið um hann og í Nicaragua. Salern- ispappír er hér orðinn áhrifa- mikið stjórnmálaafl..." Svo sagði í stórum leiðara í dagblaðinu E1 Nuevo Diario í Managua, sem styður stjórn Sandinista. Þarna er vísað til eins helsta kosningamálsins í forsetakosningunum í Nicarag- ua 4. nóvember - skorts á salernispappír. Andstæðingar stjórnarinnar hamra mjög á þessu máli og engin kosninga- ræða er svo aum að ekki sé minnst á þessa nauðsynjavöru. Slíkt þykir áróðursgildi salern- ispappírsins, að stjórnarand stæðingar sem liggja í skæiu- hernaði hafa reynt að vinna hug og hjörtu samlanda sinna með því að varpa salernispappír úr ilugvélum yfir norðurhéruð landsins. Stjórnvöld segja að vissulega sé það rétt að oft sé skortur á salernispappír, en benda á það að hér sé um veigalitla nauð- synjavöru að ræða samanborið við matvæli og eldsneyti. Auk þess vekja þau athygli á því að þörfin fyrir salernispappír sé í raun nýtilkomin í Nicaragua, því flestir landsmenn hafi ekki einu sinni vitað að slíkt væri til áður en stjórn Somozas var steypt árið 1979. Síðan þá hefur Sandinista- stjórnin gert mikið átak í hrein- Iætis- og heilbrigðismálum og t.d. opnað þrjú hundruð nýjar heilsugæslustöðvar, margar þeirra í héruðum þar sem höfðu aldrei sést læknar. — Eldsneyti sem ekki springur? Washinglon-Reuter ■ Hinn 10. nóvember ætla bandarísk llugmála- yfirvöld að láta Boeing 720 llugvél hrapa í Kali- forníu. í flugvélinni verða brúður í stað farþega. Tilgangurinn með þessu sviðsetta flugslysi er að prófa nýtt viðbótarefni í eldsneyti, sem álitið er að kvikni ekki svo glatt í þótt mikill árekstur verði. Er það náttúrlega mikil fram- för í öryggismálum, því ein helsta hættan við flug- slys er þegar sprengingar verða í eldsneytisgeymum og eldur brýst út. Auk þessa mun ætlunin að reyna ýrnsar aðrar nýj- ungar í öryggisbúnaði og eldvörnum.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.