NT - 24.08.1985, Side 11
Bíllinn, sem alla hefur dreymt um
Verdur kynntur í byrjun september
► Tregðumismunadrif ► Afistýri
► 14" felgur ► Rafstýrðir útispeglar
► Miðstýrðar hurðalæsingar
► og margt fleira
■ Diane Lane er þama ekki mjög lík persónunni sem hún leikur í
Næturklúbbnum, - en þessi útgáfa af mér er þó meira í samræmi við
raunveruieikann, sagði hún.
Diane Lane í Næturklúbbnum
■ Diane Lane, ung leikkona í
Hollywood, vann sér mikinn frama
með leik sínum í kvikmyndinni „Cott-
on Club“ eða Næturklúbbnum, eins
og myndin hefur verið kölluð hér á
landi. Kvikmyndin hefur gengið hér
mánuðum saman.
Diane sagði nýlega í viðtali við
„leikarablað“, að það hefði oft verið
mikið erfiði og tafir við upptöku
myndarinnar. Sum atriðin hafi verið
umskrifuð aftur og aftur og margtekin
upp á filmu, enda varð myndin með
þeim dýrari í framleiðslu (kostnaður-
inn er sagður 58 milljónir dollara).
Diane var spurð um samstarf henn-
ar og mótleikarans, Richards Gere.
„Ég verð að viðurkenna að ég var
æðislega skotin í honum. En þetta var
allt búið um leið og myndinni var
lokið, og var í raun mjög saklaust allt
saman,“ sagði Diane, sem tók sér
gott frí til að hvíla sig eftir Nætur-
klúbbinn.
Barnabarn Francos
byrjar nýtt líf
■ Lífið hefur sýnt á sér margar
hliðar fyrir Maria del Carmen Martin-
ez-Bordiu, barnabarn Francos, fyrr-
um einræðisherra Spánar en sem
stendur er hún sólarmegin. Ekki alls
fyrir löngu ól hún dóttur á sjúkrahúsi
í París og mátti vart á milli sjá hvort
foreldranna, Maria del Carmen eða
maður hennar Jean-Marie Rossi var
hamingjusamara.
Árið 1984 var þeim báðum þungt í
skauti. Maria del Carmen, sem áður 1
hafði verið gift spánska prinsinum
Alfonso af Bourbon og Segovia, ná-
frænda Juan Carlos Spánarkonungs,
fékk þær skelfilegu fréttir dag einn í
febrúar á liðnu ári að fyrrum maður
hennar (þau skildu 1982) og synir
þeirra tveir, sem bjuggu áfram hjá
föður sínum eftir skilnaðinn, hefðu
lent í hroðalegu slysi. Annar sonur-
inn, Francisco 11 ára, dó af afleiðing-
um meiðslanna sem hann hlaut.
Þá kom til sögunnar Jean-Marie
Rossi, sem sjálfur var faðir tveggja
barna, og veitti hinni syrgjandi Maria
del Carmen þá huggun sem í hans
valdi stóð. Sex mánuðum síðar þurfti
Maria del Carmen að endurgjalda
huggunina. Þá drukknaði 10 ára göm-
ul dóttir Jean-Marie.
Þessi sorgarsaga varð til þess að
binda þau Maria del Carmen og
Jean-Marie traustum böndum og þau
ákváðu að gifta sig. Nokkru síðar
kom í Ijós að Maria del Carmen var
barnshafandi og þeim báðum til
mikillar ánægju ól hún dóttur í fyll-
ingu tímans.
Þó að slíkur missir sem þau höfðu
bæði orðið fyrir verði aldrei bættur,
var. það þó alténd sárabót að fá nýtt
barn í fjölskylduna.
■ Sjáið þið hana dóttur mína, er hún ekki yndisleg? Maria del Carmen hefur
nú tekið gleði sína á ný.
BÍLARNIR, SEM SELJAST MEST,*
ERU FRÁ MITSUBISHI.
Verð frá kr. 577.000,- _________
[hIheklahf
* Samkv. skýrslu Hagstofu íslands 170-172 Sími 21240
PRISMA